Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ull er ekki bull

Það er alveg á tæru

Ull er ekki bull
Rætt um ull Rapp­ar­inn Viktor Mælginn er mik­ill áhuga­maður um ull, eins og sést. Mynd: Mosfellsbær

Þann 5. des­em­ber var und­ir­rituð vilja­yf­ir­lýs­ing milli Mos­fells­bæjar og Desja­mýri 11 ehf.  um opnun nýrrar sýn­ingar um sögu ull­ar­iðn­að­ar­ins í Ála­foss­kvos en greint er frá þessu í til­kynn­ingu frá Mos­fellsbæ

Samhliða voru kynntar fyr­ir­hug­aðar end­ur­bætur á verslun og nýrri veit­ing­ar­sölu sem stendur til að opna þar og gert er ráð fyrir fjöl­breyttu við­burð­ar­haldi á staðnum.

Sýningin sem áformað er að opna verður um sögu Ála­foss­kvosar og ull­ar­iðn­aðar á Íslandi og verður hún stað­sett í versl­unar- og athafna­rými verk­smiðju­húss­ins að Ála­foss­vegi 23 þar sem Ála­foss­versl­unin hefur verið til húsa. Samkvæmt Mos­fellsbæ mun sú verslun mun loka í mars næst­kom­andi en þá hefj­ast end­ur­bætur á hús­næð­inu og upp­bygg­ing sýn­ing­ar­innar. For­hönnun breyt­inga hefur verið unnin af Basalt Arki­tektum og er rýmið hannað jafnt fyrir nær­sam­fé­lagið sem og gesti. Þar verður barna­horn, aðstaða fyrir prjóna­nám­skeið, fjöl­nota svæði fyrir tón­leika og við­burði sem stuðlar að félags­legum sam­skiptum, sköp­un­ar­gleði og menn­ing­ar­legri þátt­töku. Myndir af for­hönnun verk­efn­is­ins eru nú til sýnis í Ála­foss­versl­un­inni. 

Desja­mýri 11 ehf. ber allan kostnað vegna sýn­ing­ar­innar og mun sjá um hönnun og fram­kvæmd hennar í sam­ráði við Mos­fellsbæ. Vilja­yf­ir­lýs­ingin gildir til fimm ára, á þeim tíma mun bær­inn greiða leigu af sýn­ing­unni og verður sýn­ingin eign bæj­ar­ins að sýn­ing­ar­tíma loknum.

Ála­foss­kvos er mið­stöð lista og menn­ingar í Mos­fellsbæ og er mark­miðið með end­ur­bót­unum og vænt­an­legri sýn­ingu að lyfta ásýnd svæð­is­ins, varð­veita sögu þess og efla Ála­foss­kvos sem áfanga­stað fyrir ferða­menn. Þá er gert ráð fyrir að nem­endur í skólum Mos­fells­bæjar geti heim­sótt sýn­ing­una á vegum skól­anna án end­ur­gjalds.

Und­ir­skriftin miklaVið und­ir­skrift­ina voru Regína Ásvalds­dóttir bæj­ar­stjóri, Lárus Guð­bjarts­son eig­andi Desja­mýri 11 ehf., Hrólfur Karl Cela hjá Basalt Arki­tektum, Sigurður Sævar Gunn­ars­son fram­kvæmda­stjóri Ístex, Jóel Sig­urðs­son for­maður íbúa­sam­taka Ála­foss­kvosar, Kristján Bjarki Jónasson hjá Mark­aðs­stofu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og bæj­ar­full­trú­arnir Anna Sigríður Guðna­dóttir, Halla Karen Krist­jáns­dóttir, Hrafn­hildur Gísla­dóttir, Sævar Birg­is­son og Dagný Krist­ins­dóttir.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi