Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

16 ára strákur dæmdur fyrir fjölda líkamsárása og vopnaburð

„Ég er ekki að fara drulla mér út ef þessi hommi segir mér að drulla mér út.“

16 ára strákur dæmdur fyrir fjölda líkamsárása og vopnaburð
Vatna­ver­öld í Reykja­nesbæ Réðst á eitt fórn­ar­lamb sitt þar fyrir utan. Mynd: Reykjanesbær

Sextán ára drengur hefur verið dæmdur í fang­elsi af Hér­aðs­dómi Reykja­ness fyrir mörg brot af ýmsu tagi sem framin voru á árunum 2024 og 2025.

Hann var með ann­ars ákærður fyrir lík­ams­árás á bif­reiða­stæði og gang­stétt við Vatna­ver­öld í Reykja­nesbæ, ráð­ist með ofbeldi að dreng með því að slá hann fjórum sinnum með krepptum hnefa í hægri öxl, allt með þeim afleið­ingum að dreng­ur­inn hlaut eymsli í fram­an­verðri öxl­inni yfir deltoid vöðva.

Þá var hann ákærður fyrir lík­ams­árás á bif­reiða­stæði við Krossmóa í Reykja­nesbæ, ráð­ist með ofbeldi að strætó­bíl­stjóra sem stóð í hurða­gátt stræt­is­vagns­bif­reiðar, og slegið hann einu höggi með krepptum hnefa í and­litið þegar bíl­stjór­inn hugð­ist vísa stráknum út úr stræt­is­vagn­inum, allt með þeim afleið­ingum að bíl­stjór­inn hlaut þreifieymsli og bólgu yfir kinn­bein­inu og fyrir neðan vinstra neðra augn­lok auk þess sem gler­augu hans brotn­uðu.

Hann var sömu­leiðis ákærður fyrir lík­ams­árás í kyrr­stæðum stræt­is­vagni í bif­reiða­stæði við Krossmóa í Reykja­nesbæ, ráð­ist með ofbeldi að bíl­stjóra og slegið hann einu höggi með krepptum hnefa í and­litið þegar bíl­stjór­inn hugð­ist vísa honum út úr stræt­is­vagn­inum, allt með þeim afleið­ingum að öku­mað­ur­inn hlaut blóð­nasir úr hægri nös, þreifieymsli og bólgu yfir kinn­beini, medi­alt auk þess sem kvarn­að­ist úr fram­tönn hægra megin

Hann var einnig ákærður fyrir lík­ams­árás á gang­stétt við strætó­skýli við Krossmóa í Reykja­nesbæ, ráð­ist með ofbeldi að bíl­stjóra þegar að bíl­stjór­inn neit­aði ákærða að koma um borð í stræt­is­vagn, og slegið hann einu höggi með krepptum hnefa í and­litið þannig að öku­mað­ur­inn féll og skall með höf­uðið í göt­unni en dreng­ur­inn féll með bíl­stjór­unum í göt­una, þar sem strák­urin sló bíl­stjór­ann aftur í and­litið og spark­aði í bringu hans þegar að fórn­ar­lambið reyndi að standa upp, allt með þeim afleið­ingum að það hlaut hrufl á hægri kinn fyrir neðan auga auk þess [sem] króna brotn­aði af tönn.

Hann var jafn­framt ákærður fyrir að ráð­ast með ofbeldi að konu með því að hafa gripið í og ýtt við henni þannig að hún rak höf­uðið í borð­plötu, allt með þeim afleið­ingum að hún hlaut sár á neðri vör.

Að lokum var hann ákærður fyrir lík­ams­árás á gang­stétt við strætó­skýli við Krossmóa í Reykja­nesbæ, ráð­ist með ofbeldi að vagn­stjóra þegar að hann vís­aði drengnum út úr stræt­is­vagni, með því að hafa ýtt honum út um dyr stræt­is­vagns­ins þannig að bíl­stjór­inn féll í jörð­ina þar sem strák­ur­inn sló fórn­ar­lamb sitt ítrekað með krepptum hnefa í and­litið og lík­ama auk þess sem strákur spark­aði í vinstri hönd hans, allt með þeim afleið­ingum að bíl­stjór­inn hlaut blóð­nasir, bólgur og eymsli í and­liti og nefi auk brots á löngu­töng vinstri handar, þá brotn­uðu gler­augu sem vagn­stjór­inn var með á sér.

„Ef hann myndi snitch-a mig myndi ég drepa hann“

Það voru þó ekki einu brotin sem hann var ákærður fyrir heldur var hann ákærður fyrir að hafa í tvígang hníf á sér og fíkni­efni.

Í dómnum er vitnað í dreng­inn í nokkur skipti og sagði hann meðal ann­ars um bíl­stjóra sem ætl­aði að reka hann út: „Ég er ekki að fara drulla mér út ef þessi hommi segir mér að drulla mér út. Hann á að keyra.“

Þá sagði hann þegar hann var spurður út í árás­ina við Vatna­ver­öld: „Ef hann myndi snitch-a mig myndi ég drepa hann en ekki lemja hann í öxl­ina.“

Dreng­ur­inn var á end­anum dæmdur í sex mán­aða fang­elsi en dóm­ur­inn er skil­orðs­bund­inn til tveggja ára. Hann ját­aði sum brot en ekki önnur. Þá þarf hann að greiða fórn­ar­lömbum sínum rúmar tvær millj­ónir króna í miska­bætur og 1,3 millj­ónir í máls­kostnað og svo þarf hann að borga 2,9 millj­ónir í sak­ar­kostnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi