Karlmaður hefur verið dæmdur í fangelsi fyrir brot í nánu sambandi en Héraðsdómur Reykjavíkur tók málið fyrir.
Maðurinn var ákærður fyrir brot í nánu sambandi með því að hafa á alvarlegan hátt ógnað lífi, heilsu og velferð fyrrverandi sambýliskonu sinnar. Hann gerði það með því að senda henni mörg ógnandi texta- og hljóðskilaboð.
Maðurinn játaði sök en hafnaði bótakröfu sem var tvær og hálf milljón króna.
Hann var á endanum dæmdur 90 daga fangelsi en dómurinn er skilorðsbundinn til tveggja ára. Þá þarf hann að greiða fórnarlambi sínu 400 þúsund krónur.












Athugasemdir