Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Reis hátt upp úr röð áfalla og reynir að hjálpa

Björg Þór­halls­dóttir, mynd­list­ar­kona og athafna­kona í Noregi, leggur áherslu á að gleðja aðra hvort sem það er í gegnum mynd­list­ina eða önnur verk­efni. Sjálf hefur hún þurft að vinna mikið í sér í kjöl­far ýmiss konar áfalla og það hjálpar henni að hjálpa öðrum.

Reis hátt upp úr röð áfalla og reynir að hjálpa

Hún er ljós­hærð, með ljós­blá augu og það er stutt í brosið og hvellandi hlát­ur­inn. Hún fædd­ist á Íslandi og var eins árs þegar fjöl­skyldan flutti til Noregs þar sem hún ólst upp að mestu leyti. Hún afsakar sig án þess að neinn hafi minnst á íslensk­una hennar og seg­ist tala „1975-íslensku“.

Fjöl­skyldan, for­eldrar og þrjár dætur, bjuggu fyrst í Bergen og síðan fluttu þau til Lommeda­len í Bærum fyrir utan Osló. Þau komu reglu­lega í heim­sókn til Íslands og talar Björg um minn­ingar frá Íslandi þegar hún var lítil.

„Það var svo „magical“ að koma til Íslands af því að ég á svo mikið af æðis­legum frændsystk­inum. Mér fannst alltaf vera svo gott að vera á Íslandi,“ segir Björg sem finnst enn jafn­gott að koma til Íslands. Hún gæti hugsað sér að dvelja á land­inu í ein­hvern tíma og halda sýn­ingu á verkum sínum. Og það er oft talað um Ísland á heim­ilum Íslend­ing­anna í Noregi.

Björg er með mörg járn í eld­inum. Þar má nefna sam­kom­una Hjer­tefred í Noregi sem haldin er á 26 stöðum í kringum allra­sálna­messu þar sem lista­menn koma fram og er mark­miðið að tala um sorg og dauða og minn­ast hinna látnu. Síðan er það nám­skeiðið Destionasjon glede sem á að styrkja þátt­tak­endur. Og nýjasta bók Bjargar, GLEÐI BJARGAR, er komin út í íslenskri þýð­ingu. Eins og nafn bók­ar­innar gefur til kynna er þar að finna heil­ræði til að finna gleð­ina.

Lækning listarinnar

Björg greind­ist með ADHD fyrir fjórum árum og seg­ist hún hafa átt erfitt með að ein­beita sér í skól­anum sem barn og ung­lingur. Hún er auk þess les­blind og með talna­blindu. Svo seg­ist hún hafa verið mjög feimin.

„Mér fannst vera erfitt að vera í skól­anum en ég er voða­lega þakk­lát fyrir að ég gat teiknað,“ segir hún og átti hún það til að teikna í stað þess að skrifa þegar hún þurfti að útskýra hlut­ina.

Og þótt hún ætti erfitt með að lesa elskaði hún að vera á bóka­safni og var hrifin af bókum um lækn­inn Albert Schweitzer sem vann um tíma í Afríku. „Mig lang­aði til að verða læknir þegar ég yrði stór og fara til Afríku og hjálpa börnum. Þegar ég varð eldri vildi ég hjálpa heim­inum á minn hátt og ég geri það með list­inni.“

Hópnauðgun

Einn dag­inn þegar Björg var níu ára var hún úti að leika sér með strákum í bekknum þegar hópur ung­lings­stráka birt­ist. Björg segir að þeir hafi verið um tíu tals­ins og senni­lega átján til tutt­ugu ára. Og þeir hópnauðg­uðu níu ára gömlu barn­inu. Skóla­bræður hennar horfðu á.

Björg sagði engum frá. Hún þorði það ekki. Hún var hrædd um að nauð­gar­arnir myndu gera sér eitt­hvað meira síðar.

Litla stúlkan var ekki bara hrædd. Hún fann líka fyrir skömm. „Ég skamm­að­ist mín svo mikið. Mér fannst ég vera svo óhrein. Þetta er ekki mín skömm heldur er skömmin hjá þeim sem gerðu þetta.“ Það gerði hún sér ekki grein fyrir á þessum tíma. Hún seg­ist hafa þvegið sér þrisvar á dag en það var sama hve mikið hún þvoði sér, henni fannst hún aldrei vera hrein.

„Ég breytt­ist mjög mikið eftir þetta.“

Saklaust barnið missti auk þess sjálfs­virð­ing­una. „Ég breytt­ist mjög mikið eftir þetta. Ég varð mjög lokuð.“

Það hjálp­aði Björgu að fjöl­skyldan flutti til Malasíu sama ár og henni var nauðgað en þar bjuggu þau í þrjú ár. Henni fannst gott að kom­ast frá Noregi. „Það var svo mik­ill léttir af því að ég var svo hrædd. Ég elskaði að búa þar og ég held að þessi ár hafi bjargað mér.“

Svo kom að því að fjöl­skyldan flytti frá Malasíu. „Pabbi og mamma ætl­uðu að flytja til Íslands eftir að við höfðum búið í Malasíu en þeim fannst þau ekki getað slitið okkur upp frá rótum í Noregi. Strák­arnir í bekknum mundu alveg hvað þeir höfðu séð. Þeir vissu ekki hvernig þeir áttu að vera gagn­vart mér svo þeir voru ekk­ert voða­lega góðir. Og þá urðu stelp­urnar ekk­ert voða­lega góðar við mig heldur.“ Það var farið að leggja Björgu í ein­elti. „Það voru sögð leið­in­leg orð, ég sat alein og krakk­arnir vildu ekki leika við mig. Ef það var til dæmis verið að spila þá fengu allir aðrir spil en ekki ég. Þetta voru tvö erfið ár og svo skipti ég um skóla.“

Lærði að komast af

Hinn stóri heimur kall­aði en eftir að hafa búið í Malasíu í þrjú ár vildi Björg kynn­ast heim­inum enn meira. Hún vildi kynn­ast öðrum menn­ing­ar­heimum. Hún ákvað á ung­lings­ár­unum að ger­ast skiptinemi og 17 ára gömul flutti hún til Mexíkó. Og listin þar heill­aði.

„Ég elskaði list Frida Kahlo. Alla lit­ina. Það er ótrú­legur kúltúr þarna svo sem frá Maja-indíán­unum. Mér fannst vera ótrú­lega spenn­andi að fara þangað og kynn­ast fólk­inu og kúlt­úrnum.“

Árið í Mexíkó varð ekki eins og hún bjóst við. Hún flutti til fjöl­skyldu á vegum skiptinema­sam­taka en henni fannst fjöl­skyldan ekki sinna sér sem skyldi og hún fékk aðra fjöl­skyldu til að búa hjá.

Áföllin dundu þó enn yfir en Björgu var tvisvar sinnum nauðgað þetta ár í Mexíkó. Og hún sagði ekki frá og bætir við að það hafi gerst að konur hafi farið illa út úr því ef þær segja þar frá nauðgun.

Björg segir að í Mexíkó hafi hún lært að kom­ast af. „Það er sama hvað hlut­irnir eru erf­iðir, maður getur gert eitt­hvað og það hefur gefið mér styrk.“

Lífið hélt áfram. Og Íslend­ing­ur­inn fór þetta á hnef­anum. Og svo dundi enn eitt áfallið yfir.

Einn dag­inn þegar Björg var í Mexico City fór að blæða mikið úr móð­ur­lífi hennar. Hún seg­ist telja að hún hafi misst um tvo lítra af blóði en skiptinema­sam­tökin sáu til þess að hún var lögð inn á sjúkra­hús. Í ljós komu sam­grón­ingar vegna klamid­íu­sýk­ingar en Björg hafði smit­ast af klamedíu þegar henni var hópnauðgað níu ára gam­alli. Og það blæddi svona mikið vegna þess að annar eggja­leið­ar­inn sprakk út af sam­grón­ing­unum. „Þess vegna fékk ég innri blæð­ingar.“ Björg seg­ist hafa fengið hell­ing af mexíkósku blóði í sig.

Haft var sam­band við for­eld­rana í Noregi og þeim til­kynnt hvað hafði gerst. „Það var beðið fyrir mér á Íslandi og amma Svava sendi lækni að handan til mín. Ég vakn­aði ein­hvern tím­ann við að ein­hver öskr­aði „es um mila­gro, es un mila­gro“ eða „þetta er krafta­verk, þetta er krafta­verk“ en svo datt ég út aftur.“

Þegar Björg vakn­aði úr kóma sá hún móður sína grát­andi á stól við rúmið. Móðir hennar spurði af hverju hún hafði ekki sagt sér frá nauðg­un­inni en hún hafði lesið í lækna­skýrslu að Björg hafi verið búin að vera smituð af klamidíu í mörg ár.

Leið illa í mörg ár

Björg fór með móður sinni strax heim til Noregs þegar hún hafði jafnað sig á sjúkra­hús­inu. „Ég gat ekki verið þarna lengur.“ Og hún fór til sál­fræð­ings. Hún segir að hann hafi lítið hjálpað en að það hafi ekki verið fyrr en hún fór svo til þerapista tæp­lega fer­tug sem sér hafi farið að líða betur og þá losn­aði hún við ótta og kvíða. „Þá hugs­aði ég með mér hvað mér hefði getað liðið betur í öll þessi ár ef ég hefði fengið slíka með­ferð þegar ég var 18 ára. Þegar ég var yngri not­aði ég alltaf glugga sem spegil til að sjá hvort ein­hver gengi fyrir aftan mig; ég var búin að vera hrædd svo lengi.“

Nauðg­an­irnar brutu hana niður en hún segir að samt sem áður hafi hún hugsað með sér að hún væri mjög sterk. „Ég lærði að maður tapar ef maður lítur á sig sem fórn­ar­lamb. Ég vildi ekki að það yrði sjálfs­mynd mín. Og ég ætl­aði ekki að hugsa „aum­ingja ég, af hverju skeði þetta fyrir mig“. Ég ákvað frekar að hugsa um hvað ég gæti lært af þessu. Fimmta hver kona hefur upp­lifað eitt­hvað svona. Ég veit að skömmin er ekki hjá mér heldur þeim sem nauðg­uðu mér. Þetta er hræði­legt en það þarf að öskra og gráta og fá útrás fyrir þetta og halda svo áfram en ekki láta þetta taka meira frá líf­inu. Það á ekki að láta þá sem nauðga eyði­leggja meira en þeir hafa gert. Og ef maður lítur á sig sem fórn­ar­lamb lætur maður þá eyði­leggja rest­ina af líf­inu. Og ég vil það ekki.“

Heillaðist af grafík

Björg fór í mynd­list­ar­nám í Asker kunstskole á ung­lings­árum. Hún hefur verið í mynd­list­inni síðan en hún lærði í Noregi, á Íslandi, á Spáni og í Frakk­landi.

Björg flutti til Barcelona til að fara í mynd­lista­nám. Hún seg­ist hafa verið svo hrædd út af áföll­unum sem hún hafði orðið fyrir en henni hafði fund­ist hún vera örugg­ari í Noregi og á Íslandi. „Það var kannski erf­ið­ara fyrir mig að fara þangað heldur en fyrir marga aðra. Ég var svo hrædd og man að ég var ísköld og ég svitn­aði þegar ég sat í leigu­bílnum frá flug­vell­inum. En þetta er það besta sem ég hef gert. Þetta opn­aði heim­inn fyrir mér.“

„Ég var ísköld og ég svitn­aði þegar ég sat í leigu­bílnum frá flug­vell­inum“

Þess má geta að fyrsta dag­inn í lista­há­skól­anum á Spáni var hún færð úr fyrsta bekk yfir í þriðja bekk og þegar hún útskrif­að­ist var hún með bestu ein­kunn í skól­anum síðan 1978. Og í Barcelona nam hún mósaíklist, marm­ara­skurð, vinnslu steindra blý­glugga að mið­aldasið og hún lærði að mála freskur.

„Ég er svo þakk­lát fyrir mynd­list­ina af því að ef maður er leiður eða ef manni líður illa þá fær maður í mynd­list­inni útrás fyrir til­finn­ing­arnar og meira að segja til­finn­ingar sem er erfitt að skilja,“ segir Björg sem heill­að­ist af grafík á þessum árum.

Eric Scott: Ást við fyrstu sýn

Í Frakk­landi fékk Björg árið 2002 það verk­efni að búa til steind gler í jóga-hof í Suður-Frakk­landi fyrir eig­in­konu efn­aðs manns og list­unn­anda sem átti meðal ann­ars lista­verk sem Björg hafði séð myndir af í lista­sögu­bókum. Ein myndin var frekar nýleg og á henni var maður að synda í kafi. Hún spurði hver hefði málað mynd­ina. Það var enski list­málar­inn Eric Scott. Henni var sagt að Eric byggi í fjöll­unum á svæð­inu og sagð­ist mað­ur­inn geta hringt í hann svo Björg gæti hitt hann.

Og Björg fór upp í fjöllin. Hún beið eftir lista­mann­inum þegar hún sá mynd­ar­legan mann ganga í átt­ina til sín. Þetta var Eric.

„Mér fannst hann vera flott­asti maður sem ég hafði nokkurn tím­ann séð. Mér fannst hann vera svo ótrú­lega mynd­ar­legur og ég byrj­aði að skjálfa í hnjánum. Ég varð eig­in­lega svo­lítið hrædd af því að hann var svo mynd­ar­legur.“

Eric sett­ist við borðið þar sem Björg sat og eftir um korters spjall spurði hann hvort hún vildi gift­ast sér. Og hún sagði „já“.

Þetta var ást við fyrstu sýn. Hún var 26 ára. Hann 56 ára. Og hún flutti inn til hans.

„Vinir hans sem höfðu þekkt hann alla ævi sögðu að þeir hefðu aldrei séð hann svona. Við vorum svona bæði tvö.“

Parið gekk í hjóna­band um mán­uði síðar í Miami og síðar var haldin fjög­urra daga brúð­kaups­veisla í Suður-Frakk­landi. Hjónin bjuggu saman í Suður-Frakk­landi, nálægt Nice, og ári eftir að þau kynnt­ust fædd­ist sonur þeirra Þór­hallur sem er alltaf kall­aður Tolli.

Eric drakk. Hann var alkó­hólisti. „Maðurinn sem ég elskaði hvarf oft um klukkan tólf eða eitt á dag­inn þegar hann byrj­aði að drekka. Ég fór frá honum nokkrum sinnum af því að hann drakk of mikið og svo lof­aði hann mér að hann myndi hætta og svo kom ég aftur en hann hélt áfram að drekka. Þetta var svo­lítið fram og til baka þar til hann dó. Þetta var erfitt, sér­stak­lega eftir að ég eign­að­ist barn. Eric var fínn maður en það er rosa­lega erfitt að búa með ein­hverjum sem er að drekka. Margir Íslend­ingar vita það.“

Árin með Eric urðu fjögur en hann varð bráð­kvaddur vorið 2005. Þótt ýmis­legt hafi gengið á var sorgin nístandi.

„Ég elskaði hann og ég elska hann ennþá.“

Björg saknar hans.

„Mér þykir ennþá rosa­lega vænt um hann. En hann var þrjá­tíu árum eldri en ég. Ég veit ekki hvað myndi ske núna vegna þess að hann myndi vera átt­ræður. Ég er bara voða­lega þakk­lát að ég hitti hann og alveg ótrú­lega þakk­lát fyrir að við eign­uð­umst Tolla.“

Samkoma til að tala um sorg

Eric lést í maí og fyrsta sunnu­dag­inn í nóv­em­ber sama ár var haldin sam­koman Hjartefred sem er hug­ar­fóstur Bjargar og hefur síðan verið haldin árlega í Noregi. Í dag fer sam­koman fram á tutt­ugu og sex stöðum í land­inu. Fólk safn­ast þá saman til að tala um bæði sorg og dauða og finnur hjálp í sam­kennd­inni.

„Ég er búin að finna út að ef maður hjálpar eða gefur öðrum það sem mann vantar sjálfum þá tekur það sorg­ina í burtu. Ef maður er til dæmis ein­mana þá á maður að hjálpa fólki sem er ein­mana. Og ég hjálp­aði öðru fólki út úr sorg­inni sinni og það hjálp­aði mér í minni sorg. Það er alveg ótrú­legt.“

Hjarta­friðurSam­komurnar eru haldnar víða um Noreg.

Dag­skráin á Hjer­tefred minnir á ævin­týra­heim og koma til dæmis þekktir tón­list­ar­menn fram. Björg seg­ist aðal­lega vilja vera með þekkta tón­list­ar­menn af því að hún vill að gæðin séu mikil. Og verur úr verkum Bjargar virð­ast lifna við. „Það er eins og fólk gangi inn í mál­verkin mín. Fólk klæðir sig til dæmis eins og engla og dansar eða englar sitja við vatn og veiða hjörtu - af því að vatn er lífið. Dag­skráin stendur yfir í einn klukku­tíma og fólk er beðið um að klappa ekki á milli atriða heldur bíða með það þar til í lokin. Þannig skap­ast fal­leg og róleg stund.

Við eigum að lifa á meðan við getum og njóta þess á meðan við getum. Öllum finnst heim­ur­inn þeirra vera svo stór og mik­il­vægur. Ég ætla bara að hafa gaman og ekki búa til vanda­mál. Maður getur bara verið með eina til­finn­ingu í einu. Ef maður er þakk­látur getur maður ekki verið sam­tímis reiður eða dapur. Ég er upp­tekin af því. Á hverju kvöldi og morgni hugsa ég um tíu hluti sem ég er þakk­lát fyrir. Það er oft erfitt þegar maður byrjar en svo verður það auð­veld­ara.“

Björg trúir því að eitt­hvað taki við eftir þetta líf. „Ég held að Eric sé hérna að passa upp á mig. Ég finn oft að hann er hérna að passa upp á mig og Tolla.“

Myndlistin og Ísland

Við tölum meira um mynd­list­ina. Björg er spurð hvers vegna hún vildi á sínum tíma leggja list­ina fyrir sig og gera hana að ævi­starfi.

„Ég get bara ekki lifað án hennar,“ segir Björg sem hefur í mörg ár getað lifað af list­inni. Hún seg­ist hafa selt fyrstu mynd­ina þegar hún var fjórtán ára og haldið fyrstu sýn­ing­una þegar hún var sautján ára.

Það virkar svo mikil gleði í mynd­unum og oft fá setn­ingar að fljóta með. Einhver upp­byggi­leg orð.

„Ég vil að mynd­irnar gefi fólki styrk og að þær minni það á hvert það er þegar það gleymir því og hvað það er sterkt. Svo minni ég það á kraft­inn sem er innra með því. Við gleymum oft hvað við erum frá­bær eða sterk af því að ein­hver annar er búinn að segja eitt­hvað annað við okkur eða gera okkur eitt­hvað.“

Björg bjó á Spáni um ára­bil og ein­beitti sér þar að list sinni. Þegar hún er spurð hver séu helstu áhrifin þaðan nefnir hún meiri liti. „Ég ber virð­ingu fyrir þeirri tækni sem notuð var í gamla daga. Í Barcelona er gömul list og það er erfitt að búa til almenni­lega list með gam­alli tækni eins og í gamla daga. Ég á aldrei eftir að nota tölvur í vinnu minni af því að mér finnst vera gott að vinna með hönd­unum og vinna með gamla tækni.“

Hún er dug­leg og galdrar fram hvert lista­verkið á fætur öðru og segir að ADHD sé eins og ofur­kraftur. „Allir eru að spyrja hvernig ég geti gert svona mikið. Ég hef alltaf hugsað að það sé af því að ég er Íslend­ingur en ég held að það sé af því að ég er Íslend­ingur með ADHD.“

Hún segir að ein­kenni ADHD felist í að sér finn­ist vera erfitt að ein­beita sér. „Ég er búin að læra að ef ég vinn í tutt­ugu mín­útur þá þarf ég að taka pásu og hreyfa mig í tíu mín­útur og svo get ég unnið í tutt­ugu mín­útur í við­bót. Ég er með stelpu sem vinnur fyrir mig sem gerir allt sem mér finnst vera leið­in­legt. Hún er PA - per­sónu­legur aðstoð­ar­maður - og gerir allt mögu­legt.“

Björg býr í ævin­týra­lega fal­legu húsi á hálf­gerðri eyju fyrir utan Osló. Húsið er eins og stórt lista­verk. Enn eitt lista­verkið. Hvítt, stórt timb­ur­hús sem hún er búin að skreyta að framan með mósaíklista­verkum. Og lita­dýrðin inni er ein­stök. Þetta er næstum því eins og að búa uppi í sveit og svo á Björg auk þess lítið hús uppi í fjöllum þar sem henni finnst gott að vera og mála. Og hún tekur undir hvað það er gott að vera í nátt­úr­unni.

Gleði Bjargar

Björg er með mörg járn í eld­inum. Eitt þeirra eru bóka­skrif og mynd­skreyt­ing bóka og margir Íslend­ingar þekkja dag­bæk­urnar hennar, Tíminn minn.

„Ég er búin að skrifa hell­ing af bókum. Ég skrif­aði fyrstu bók­ina þegar ég var 26 ára sem er ljóða­bók. Eftir að Eric dó skrif­aði ég bók með Tolla sem heitir „Pabbi minn býr á himnum““, segir Björg sem hefur skrifað og mynd­skreytt fleiri bækur í þeim til­gangi að inni­hald þeirra hjálpi syrgj­endum. Svo kom í nóv­em­ber út bók í Noregi um Hjer­tefred.

Nýjasta bók Bjargar sem komin er út í íslenskri þýð­ingu heitir GLEÐI BJARGAR.

Bók BjargarBókin Gleði Bjargar er komin út á íslensku eftir að hafa vermt efsta sætið á met­sölu­listum í Noregi á tíma­bili.

„Ég er upp­tekin af því að öllum líður stundum illa. Ég er búin að upp­lifa vonda hluti og við erum öll búin að upp­lifa vonda hluti. Ég er búin að búa til þessa bók, GLEÐI BJARGAR, af því að ég veit að það er erfitt að vera mann­eskja. Og hún er búin að hjálpa þannig að fólki líður betur og verður ánægð­ara en ella þótt að eitt­hvað slæmt ger­ist. Það eiga alltaf eftir að ger­ast vondir hlutir á meðan við lifum.“

Nýja bókin er eins og lista­verk. Mikill texti og svo eru það mynd­irnar.

„Mér finnst þetta vera flottasta bókin sem ég hef skrifað og ég er voða­lega ánægð með að hún skuli vera gefin út á Íslandi. Allt sem ég er búin að læra um hvernig maður getur verið ham­ingju­samur er ég búin að skrifa um í þess­ari bók. Hún kom út í Noregi í fyrra og hef ég talað við fólk sem segir að hún sé á nátt­borði þess. Hún er búin að hjálpa því svo mikið.“

Hvað gefur það Björgu að hjálpa öðrum? „Ég verð svo lukku­leg. Ég verð svo ánægð vegna þess að ef ég get gert líf ann­arra betra þá líður mér svo vel.“ Og það hjálpar henni í hennar eigin sorg sem hún hefur upp­lifað vegna áfalla og maka­missis.

Í nýju bók­inni segir meðal ann­ars í lok hennar: „Ég vona að þessi bók hjálpi þér að líta upp svo að gleðin fái meira pláss í lífi þínu. Ef þú ein­beitir þér að við­fangs­efn­unum í þessum köflum muntu sjá að lífs­við­horf þitt verður enn bjart­ara. Ég óska þess að þú sjáir heim­inn í jákvæðu ljósi. Hugsaðu um hve lánsöm þú ert að hafa fengið lífið að gjöf einmitt núna! Stjórn­aðu tím­anum sem þú hefur fengið á jörð­inni. Vertu skip­stjóri í eigin lífi!“

Gleðin sem áfanga­staðurAtvikið sem gaf mest var þegar ung­lings­stúlka sem hlust­aði á boð­skap­inn um að velja gleð­ina hvarf frá sjálfs­vígi.

Destinasion glede

Dest­inasion glede er eitt af verk­efnum Bjargar og má finna um það á heima­síðu hennar, https://bjorgthorhallsdottir.com, og er verk­efnið hugsað til að þátt­tak­endur geti upp­lifað meiri gleði. Björg og ýmsir þekktir sér­fræð­ingar leiða þátt­tak­endur í gegnum innra ferða­lag í átt að gleði og var sett saman nám­skeið með efni til að þátt­tak­endur myndu finna raun­veru­legar breyt­ingar. Þeir geta tekið þetta á eigin hraða og ein­beitt sér að þeim sviðum sem þeir þurfa helst að breyta. Um er að ræða upp­tökur sem hægt er að finna á heima­síð­unni og er hver upp­taka um fimm mín­útur að lengd.

„Ég veit ekki hve margar konur hafa komið til mín og sagt að þær hafi íhugað sjálfs­morð og þetta var það síð­asta sem þær gerðu og núna lifa þær lífi sem þær elska. Ég hef fengið margar konur til að fara úr ofbeld­is­sam­böndum. Svo eru margar sem hafa ætlað að skilja en núna líður þeim vel með mann­inum af því að þær finna frið innra með sér. Eða þá að þær skildu en tóku aftur saman við mann­inn og líður núna vel. Á sama tíma líður þeim almennt betur.“

Sumar konur hafa sent Björgu gjafir sem þakk­læt­is­vott. „Ég fæ prjón­aða sokka og peysur og allt mögu­legt í pósti og krakkar hafa sent mér póst­kort heim og þakkað mér fyrir að þeir fengu mömmur sínar til baka.“

Björg hefur um ára­bil verið með fyr­ir­lestra víða í Noregi og það sem hún segir að hafi gefið sér mest sé að halda fyr­ir­lestra í Norður-Noregi fyrir aðstand­endur fólks í neyslu hvort sem það eru börn eða for­eldrar. Hún segir að hún sjái þá að hún sé virki­lega að hjálpa. Hún tekur eitt dæmi og seg­ist eiga erfitt með að tala um þetta án þess að fara að gráta. Hún hitti ung­lings­stúlku sem vann í verslun og tóku þær tal saman.

„Hún sagð­ist hafa verið búin að ákveða að fremja sjálfs­morð þar sem bræður hennar væru alkó­hólistar og væru búnir að mis­nota hana lengi og hún hafi verið búin að gef­ast upp. Hún sagði að eftir að hún hafði hlustað á mig hafi hún ákveðið að velja lífið og gleð­ina. Ég á eitt líf og ef ég get gert eitt líf betra þá er ég búin að gera nóg í mínu lífi. En það er ótrú­legt að geta breytt svona mörgum lífum. Og það er ekk­ert sem kemur í stað­inn fyrir gleði. Ef ég get breytt heim­inum pinku­lítið í að verða betri og ég hjálpa ein­hverjum til að verða betri þá hjálpa þeir öðrum og svo fram­vegis. Og hægt og rólega verður þessi heimur betri.“

Á meðal verk­efna Bjargar er einnig fram­leiðsla á freyði­víni sem hún kallar Ham­ingju­búbblur og er það hennar eigin upp­skrift. Um er að ræða líf­rænt freyði­vín sem er orðið það vin­sælasta í Noregi og kall­ast þar Lykke­bobler. Þrúg­urnar eru fram­leiddar í Castillo Perelada sem er rétt fyrir utan Barcelona. Og Björg hann­aði svo flösku­mið­ana sem eru eins og lista­verk.

„Það voru fáir sem trúðu á mig þegar ég byrj­aði með freyði­vínið en núna er ég svo stolt af því að þetta er mest selda freyði­vínið í Noregi. Ég sel um 400.000 lítra á ári þannig að þú getur ímyndað þér hvað það verða margir fullir út af mér,“ segir Björg og hlær. „En það er líka af því að vínið er ódýrt miðað við gæði.“

Fyrir utan fal­lega hvít­mál­aða húsið sem skreytt er að framan með mósaíklista­verkum á Björg auk þess húsið uppi í fjöllum eins og þegar hefur komið fram. „Ég elska að vera þar. Ég keypti það til að hafa stað til að mála og hafa kyrrð. Þar sem ég er með ADHD er gott að vera þar sem er kyrrð og ég er búin að vera þar mikið.“ Þess má geta að Björg er búin að stofna fyr­ir­tæki sem býður upp á ferðir og dvöl í gömlum bónda­bæjum í Noregi. Og þar getur fólk kynnst lífs­háttum norskra bænda í gegnum tíð­ina.

Passa upp á hvert annað

Þegar Björg er spurð um fram­tíð­ar­draumana seg­ist hún vera að lifa draum­inn. „Það stærsta er að sonur minn verði ham­ingju­samur og hann er voða­lega ham­ingju­samur og ánægður með lífið,“ segir hún en Tolli er að læra frum­kvöðla­fræði í London og er núna í skipti­námi í Ástralíu. „Hann er ótrú­lega fínn og góður strákur og passar voða­lega vel upp á vin­ina sína. Svo er hann rosa­lega mynd­ar­legur.“

„Maður skapar sitt eigið líf og sína eigin gleði“

Hvað hefur Björg lært af þeim áföllum sem hún hefur sjálf gengið í gegnum sem og því að hjálpa öðrum?

„Ég hef lært að maður skapar sitt eigið líf og sína eigin gleði, að maður getur ekki kennt öðrum um ef manni líður ekki vel og að allir fara í gegnum erf­iða hluti. Ég er búin að ganga í gegnum hell­ing en fólk veit af því af því að ég segi frá því. Það eru rosa­lega margir búnir að ganga í gegnum miklu verri hluti en ég. Þess vegna hugsa ég að það er mikið atriði að passa upp á sjálfan sig, vinna úr gömlum sárum og ákveða að búa sér til ham­ingju­samt líf af því að af hverju ættum við að vera í þessu lífi ef það er bara erfitt og ekki gaman? Það sem gefur mér mesta gleði er að gleðja aðra og hjálpa fólki.

Heim­ur­inn er dimmur núna og við þurfum að senda út extra mikið ljós og ást og aldrei hætta að trúa á það góða í fólki. Það er til gott fólk alls staðar og það er miklu meira af góðu fólki en vondu fólki. Og það þarf að passa upp á hvert annað. Við þurfum það meira en nokkurn tím­ann.

Það eina sem ég vil gera síð­ustu þrjá­tíu árin sem ég lifi er að gera heim­inn aðeins betri og ég er alveg á fullu. Ég ætla að gera allt sem ég get þessi ár.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu