Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Foreldrar og sérfræðingar keppast við að leiðrétta Pawel

„Mér finnst þetta ótrú­lega óábyrgt“

Foreldrar og sérfræðingar keppast við að leiðrétta Pawel
Pawel Bartoszek þing­maður Var kos­inn á Alþingi í fyrsta skipti árið 2024. Mynd: Víkingur

Pawel Bartoszek, þing­maður Við­reisnar, skellti heldur betur í umdeilda færslu á Facebook fyrr í dag.

„Fréttir úr síma­lausri ung­linga­deild: Krakk­arnir nota nú hverja lausa stund til að fara af skóla­lóð, heim, eða í ein­hverja aðra bygg­ingu nálægt bara til að kom­ast á netið. Gang­arnir og félags­mið­stöðvar standa tómar. Glæsileg nið­ur­staða og að öllu leyti ófyr­ir­sjá­an­leg,“ skrif­aði þing­mað­ur­inn en mikil ánægja hefur mælst meðal kenn­ara, nem­enda og for­eldra með tak­mörkun á símum í skólum. Þá hefur rík­is­stjórnin verið að íhuga að banna síma í skólum en eins og staðan er í dag taka ráða skól­arnir slíku sjálfir.

Þingmaður, fréttamaður og borgarfulltrúi ósammála

Það er ekki að sjá margir séu sam­mála þing­mann­inum, ekki sinu sinni sem rita athuga­semdir við færsl­una hans á Facebook.

„Veit ekki hvaða skóla þú átt við. Efast um að þetta sé raunin þvert á skóla sem eru með síma­frí. Það þarf auð­vitað að tryggja að annað afþrey­ing­ar­efni sé til staðar t.a.m. spil, borð­tenn­is­borð o.s.frv. sem getur komið í stað­inn fyrir snjall­sím­ann. Það verður þó kannski að telj­ast jákvæð­ara að ung­lingar fari í göngutúr til að vera í sím­anum í stað þess að fara beint úr tíma í sím­ann en það er líka til marks um hversu ávana­bind­andi þessi tæki (öppin í þeim) eru - sem er stórt við­fangs­efni þegar kemur að and­legri heilsu og félags­færni barna,“ skrifar Magnea Gná Jóhanns­dóttir borg­ar­full­trúi en áður en hún varð borg­ar­full­trúi starf­aði hún í félags­mið­stöð.

„Í þeirri ung­linga­deild sem ég þekki til iða gang­arnir af lífi í frí­mín­útum og hafa gert frá því að tekið var fyrir síma­notkun í fyrra,“ skrifar frétta­mað­ur­inn Berg­steinn Sig­urðs­son um málið og tekur Ása Berglind Hjálm­ars­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, undir með frétta­mann­inum.

Pétur Maack, for­maður Sál­fræð­inga­fé­lags­ins, segir einnig þetta ekki hans upp­lifun úr skóla hans barna.

„Ég tók upp síma­bann hjá þeim ung­lingum sem eru í íþrótta­starfi hjá mér. Nið­ur­staðan er sú að sam­skipti ung­ling­anna hafa batnað, þeir hreykja sér af (og met­ast um hver hefur náð betri árangri) litlum skjá­tíma og segj­ast líða mun betur fyrir vikið,“ skrif­aði Þórarinn Hjart­ar­son hlað­varps­þátta­stjórn­andi.

Forstöðumaður mjög ósáttur

Það er þó Hlynur Ein­ars­son, for­stöðu­maður Hundrað&ell­efu, sem er ósátt­astur af öllum í athuga­semda­kerf­inu en hann hefur starfað í félags­mið­stöðvum árum saman.

„Sem for­stöðu­maður í félags­mið­stöð hjá Reykja­vík­ur­borg þá langar mig að biðja þig um að gera betur en þetta Pawel. Hvaðan hefur þú þessa frétt? Hvaða félags­mið­stöðvar standa tómar, alla­vega ekki sú sem ég stýri. Ég er ekki að tala með eða á móti þess­ari stefnu um síma­lausa skóla, en mér finnst þetta ótrú­lega óábyrgt og vit­laus fram­setn­ing hjá þér. Það væri líka mjög und­ar­legt ef félags­mið­stöðv­arnar væru tómar þar sem þar er ekki síma­bann, ekki svo ég viti til,“ skrif­aði Hlynur um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi