Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Telur Miðflokkinn ekki trúa á eigin stefnu

„Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn sem var lands­byggð­ar­flokkur missti áhug­ann á lands­byggð­inni“

Telur Miðflokkinn ekki trúa á eigin stefnu
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Er for­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Víkingur

Þór­hallur Gunn­ars­son, fjöl­miðla­maður og ráð­gafi, hefur ekki mikla trú á íslenskum stjórn­mála­flokkum þess stund­ina ef marka má færslu sem hann setti á sam­fé­lags­miðla í gær.

Þar tekur hann alla þing­flokka Íslands á beinið.

„Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur fjar­lægst eigin hug­mynda­fræði,“ skrifar Þór­hallur. „Viðreisn ætl­aði að fylla í gatið en vita varla hvort þau eru til hægri eða vinstri,“ heldur hann áfram. Svo segir hann að Sam­fylk­ingin hafi aldrei verið hægri sinn­aðri en einmitt í dag og segir flokk­inn hafa áður verið til vinstri.

„Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn sem var lands­byggð­ar­flokkur missti áhug­ann á lands­byggð­inni og langar helst að vera stór í Reykja­vík. Flokkur fólks­ins er fyrst og fremst flokkur fólks­ins í flokknum. Mið­flokk­ur­inn er að reyna að vera eitt­hvað sem hann sjálfur hefur ekki trú á,“ skrifar hann að lokum.

Þingmaður leggur tjáir sig

Guð­mundur Andri Thorsson, fyrr­ver­andi þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, blandar sér í umræð­una og kastar fram athuga­semd við færslu Þórhalls.

„Einu sinni voru til Frjáls­lyndir og vinstri menn. Eig­in­lega er Viðreisn Frjáls­lyndir og hægri menn, og hefur reynt, með góðum árangri, að höfða til svo­kall­aðra hægrikrata. Vg reyndi að taka stöðu Samfó á hinu breiða mið­vinstri­svæði og ratar ekki alveg til baka á sinn gamla vinstri stað; þar sem nú heyr­ist ekki manns­ins mál fyrir sós­í­alistum að garga hver á annan. Mið­flokk­ur­inn er flokkur sem segir ekki einu sinni satt í nafn­inu sínu, auk­in­heldur um annað; byrj­aði sem hægri­armur Fram­sóknar, búra­legt íhald en hefur verið yfir­tek­inn af ungum trump­istum og slétt­greiddum læri­sveinum amer­ískra nýras­ista. Samfó, minn flokkur, er kom­inn i gamla virkjanagír­inn, og er ekki alveg ósvipuð flokknum eins og hann var upp úr alda­mótum,“ skrifar þing­mað­ur­inn fyrr­ver­andi.

Þór­hallur svarar og seg­ist vera sam­mála að mestu leyti en segir þessi skil­grein­ing sé svo­lítið flókin fyrir venju­legt fólk sem skilur ekki allar þessar flækjur og líkir stjórn­málum við stuðn­ingi við íþrótta­fé­lög.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi