Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Birti sláandi myndband af akstri langferðabíls

„Það má vel kalla mig nöldr­ara“

Birti sláandi myndband af akstri langferðabíls
Ótrúeg hegðun öku­manns­ins Þetta hefði getað farið illa. Mynd: Skjáskot/Agla Björnsdóttir

Mikil umræða hefur skap­ast und­an­farna mán­uði um ferða­mennsku víðs vegar á land­inu og hefur aukin umferð og hegðun bíl­stjóra verið hluti af þeirri umræðu. Telja sumir að aukin hætta hafi skap­ast á land­inu vegna fjölda ferða­manna.

Í þessu sam­hengi birti Agla Björns­dóttir mynd­band af lang­ferða­bíl á ferð um Suð­ur­land en óhætt er að segja að öku­maður bíls­ins hafi ekki farið að umferð­ar­lögum eins og sést í mynd­band­inu.

„Í ljósi þess að ég ek oft um Suð­ur­landið, er alin upp í Mýr­dalnum og þekki því vel þessa leið, þá ákvað ég að birta mynd­band sem ég tók á fimmtu­dag­inn á Mark­ar­fljót­saur­unum. Það verða alltof mörg slys á hring­veg­inum og sér í lagi á Suð­ur­landi og því þarf alltaf að hafa var­ann á sér á þess­ari leið,“ skrifar Agla.

„Alþekktu dæmin eru við Selja­lands­foss og afleggjar­ann að Skógum, þar er alltof oft sem bílar aka upp á þjóð­veg­inn í veg fyrir aðra bíla, stundum hafa orðið slys en stundum hefur bíl­stjórum rétt tek­ist að sleppa við árekstur. Dóttir mín og tengda­sonur aka mjög oft á milli Hafnar í Horna­firði og Reykja­víkur og er ég alltaf mjög áhyggju­full og brýni fyrir þeim í hvert sinn að vara sig á þessum stöðum sem ég nefndi hér fyrir ofan,“ heldur hún áfram.

Aðrar rútur fóru ekki yfir línuna

„Þegar ég sé svo ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki aka nær alla Mark­ar­f­ljóstaurana á vinstri helm­ing og færa sig ekki yfir á hægri akrein fyrr en rétt áður en þeir mæta bíl, þá blöskrar mér. Hvað með ef öku­menn­irnir sem koma á móti, fara í “panikk” og fara yfir á rangan veg­ar­helm­ing, sveigja út af osfrv. – þá er ekki að spyrja að leikslokum. Ein­hverjir kunna að spyrja: Var rok – er það þess vegna sem bíll­inn var á öfugum veg­ar­helm­ing?“ spyr Agla og segir að það hafi vissu­lega verið rok en ekki hafi verið hvasst fyrr en komið var fram hjá Selja­lands­fossi.

„Bíllinn var búinn að keyra á miðjum veg­inum lengi áður en hann keyrði alfarið á vinstri akgrein og ég ákvað þá að taka upp þetta mynd­band. Það voru aðrar rútur að keyra þessa sömu leið, bæði litlar og stórar rútur og engin þeirra fór yfir punkta­lín­una til að verj­ast vindi – enda óþarfi,“ tekur hún fram í færsl­unni.

„Það má vel kalla mig nöldr­ara, tuð­ara eða konu sem kunni ekki að keyra og hafi ekki vit á stórum bílum í akstri – en ef hegðun bíl­stjóra hjá ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki skapar hættu fyrir mig og aðra, þá finnst mér rétt að vekja athygli á því. Ef bíl­stjórar treysta sér ekki til að aka ef ein­hver vindur er, þá eiga þeir ekki að taka verk­efnið að sér. Hitt er svo annað mál – að á þess­ari fjöl­förnu leið sem suð­ur­lands­vegur er, þá þarf að tvö­falda akst­urslínur í báðar áttir,“ skrifar hún svo að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil