Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Telur áhyggjur af kynfræðslu oft byggðar á misskilningi

„Við sjáum þetta frekar sem mik­il­vægt sam­starf“

Telur áhyggjur af kynfræðslu oft byggðar á misskilningi
Steinn Jóhanns­son, svið­stjóri skóla- og frí­stunda­sviðs Var rektor MH í mörg ár. Mynd: Gunnar G. Vigfússon/Reykjavíkurborg

Vika6 er gengin í garð en í þeirri viku er starfs­fólk grunn­skóla, leik­skóla, félags­mið­stöðva og frí­stunda­heim­ila Reykja­víkur hvatt til að setja kyn­heil­brigði í for­grunn og bjóða upp á fjöl­breytta ald­ur­svið­eig­andi kyn­fræðslu.

Mannlíf ræddi við Stein Jóhanns­son, sviðs­stjóra skóla- og frí­stunda­sviðs Reykja­víkur um vik­una.

„Vika6 hefur gengið vel síð­ast­liðin ár og fer hún sífellt stækk­andi þar sem fleiri starfs­staðir innan borg­ar­innar taka þátt í verk­efn­inu en einnig önnur sveit­ar­fé­lög á land­inu,“ sagði Steinn þegar hann var spurður um gengi Viku6 á und­an­förnum árum.

Hluti af íslenskum lögum

Fáar en háværar raddir hafa á síð­ustu árum gagn­rýnt kyn­fræðslu borg­ar­innar og telja ekki rétt að borgin sjái um kyn­fræðslu. Steinn lítur kyn­fræðslu á sam­starfs­verk­efni milli heim­ila og borg­ar­innar.

„Það má vel vera að sumum finn­ist það ekki vera hlut­verk borg­ar­innar að veita kyn­fræðslu en við sjáum þetta frekar sem mik­il­vægt sam­starf á milli skóla, frí­stunda­starfs og heim­ilis þar sem allir þeir aðilar eru mik­il­vægir aðilar í kyn­fræðslu,“ sagði Steinn.

„Með kyn­fræðslu er þó borgin að upp­fylla skyldur sínar en sam­kvæmt íslenskum lögum, mennta­stefnu stjórn­valda, aðal­námskrá grunn­skóla, sam­þykktum þings­á­lykt­unum og alþjóð­legum samn­ingum eru íslensk stjórn­völd skuld­bundin að tryggja fræðslu um kyn­heil­brigði, mann­rétt­indi og kynja­jafn­rétti í skóla­kerf­inu. Áhyggjur fólks um kyn­fræðslu snúa þó oft að mis­skiln­ingi á hvað felst í kyn­fræðslu. Kyn­fræðsla snýst um að efla kyn­heil­brigði ungs fólks á ald­ur­svið­eig­andi hátt, þar sem rýnt er í félags­lega, til­finn­inga­lega, lík­am­lega og and­lega þætti.“

Þema í Viku6 þetta árið er öryggi og ofbeldi og var það valið af ung­lingum borg­ar­innar með raf­rænni kosn­ingu. Steinn segir að Jafn­rétt­is­skóli Reykja­víkur sjái um skipu­lag vik­unnar hér á skóla- og frí­stunda­sviði og útbúi fræðslu­efni sem starfs­fólk geti nýtt í kennslu og starfi með börnum og ung­lingum. Þá segir hann einnig að börn og ung­menni í Reykja­vík hafi ítrekað bent á að þau vilji meiri fræðslu um mörk, sam­þykki og sam­skipti ásamt því hvernig hægt sé að bregð­ast við þegar eitt­hvað veldur óör­yggi.

En hver eru helstu áhrifin sem Vika6 hefur haft á ungt fólk?

„Kyn­fræðsla, líkt og farið er í í Viku6 er ein helsta for­vörnin gegn kyn­ferð­is­legu ofbeldi og bættu kyn­heil­brigði og því er okkar trú að Vika6 vald­efli ungt fólk og hefur góð áhrif á líðan þeirra. Við erum stolt af Viku6 og hvernig mót­tök­urnar hafa verið,“ sagði Steinn að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi