Fangi á Litla-Hrauni, sem hefur lögheimili í Kópavogi, hefur verið ákærður fyrir fíkniefnalagabrot.
Samkvæmt ákærunni á hann að hafa, í niðurfalli sturtu í klefa í fangelsinu Litla-Hrauni á Eyrarbakka, haft í vörslum sínum 8,75 grömm af ketamíni. Fangaverðir fundu efnið við leit og afhentu lögreglu.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Suðurlands þann 28. maí.












Athugasemdir