Reynir Bergmann Reynisson, athafnamaður og snappari, og Sólveig Ýr Sigurjónsdóttir Saithong, naglafræðingur og hárgreiðslukona, gerðu með sér kaupmála þegar þau giftu sig í apríl.
Greint er frá þessu í Lögbirtingablaðinu.
Reynir hefur lengi verið vinsæll á samfélagsmiðlum og átti einnig veitingastaðinn Vefjuna með Sólveigu. Vefjan var nokkuð vinsæll staður en árið 2021 sniðgekk stór hópur fólks Vefjuna eftir niðrandi ummæli Reynis um vændiskonur í tengslum við mál Sölva Tryggvasonar. Vefjan var svo seld árið 2023.
Þau hafa verið saman síðan árið 2010, trúlofuðu sig í byrjun árs 2019 og eiga þrjár dætur saman.






















Athugasemdir