Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gabríel Douane dæmdur líkamsárásir og rán

Réðst meðal ann­ars á fanga­verði

Gabríel Douane dæmdur líkamsárásir og rán
Gabríel Douane Boama Hefur hlotið marga dóma í gegnum árin.

Karl­maður dæmdur í fang­elsi fyrir rán, hót­anir og ítrek­aðar lík­ams­árásir

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hefur dæmt Gabríel Douane Boama í fang­elsi fyrir fjölda alvar­legra brota, þar á meðal rán, hót­anir, lík­ams­árásir og fíkni­efna­laga­brot. Málið var umfangs­mikið og byggði á þremur aðskildum ákærum sem sam­ein­aðar voru í einu dóms­máli.

Samkvæmt dóm­inum var Gabríel meðal ann­ars sak­felldur fyrir lík­ams­árás í verslun Hagkaups við Skeifuna í júlí árið 2023 þar sem maður hlaut augn­tóft­ar­brot eftir að hafa verið sleg­inn með krepptum hnefa í and­litið.

Eitt brot tengd­ist atviki sem átti sér stað í bif­reið í Reykja­vík í febr­úar 2024. Þar taldi dóm­ur­inn sannað að Gabríel hefði hótað konu með hnífi með þeim hætti að hún ótt­að­ist um líf sitt og heilsu. Vitni lýstu því að hann hefði beint hníf að hálsi hennar eftir að hún bað hann um að fara út úr bif­reið­inni. Dómurinn taldi fram­burð brota­þola trú­verð­ugan þrátt fyrir ákveðið ósam­ræmi í frá­sögnum vitna.

Í sama atviki var Gabríel jafn­framt sak­felldur fyrir rán. Samkvæmt nið­ur­stöðu dóms­ins neyddi hann öku­mann bif­reið­ar­innar til að afhenda sér iPhone 14 far­síma með því að hóta honum með hnífi. Síminn fannst síðar í fórum hans þegar lög­regla hand­tók hann á Akranesi tveimur dögum síðar. Dómurinn hafn­aði skýr­ingu Gabríels um að hann hefði óvart farið með sím­ann og taldi fram­burð hans „ótrú­verð­ugan og í raun fjar­stæðu­kenndur“.

Hann var einnig fundur sekur í ákæru sem laut að ofbeldi gegn fanga­vörðum á Litla-Hrauni sum­arið 2024. Þar réðst hann á þrjá fanga­verði og veitti þeim áverka með hnefa­höggum. Einn þeirra hlaut skurð á höfði og annar heila­hrist­ing.

Einnig var hann sak­felldur fyrir lík­ams­árás gegn sam­fanga á Litla-Hrauni í mars 2025. Brota­þoli hlaut meðal ann­ars tann­brot, augn­tóft­ar­brot og skurð við auga­brún eftir árás­ina. Örygg­is­mynda­vélar úr fang­els­inu sýndu Gabríel fara inn í klefa brota­þol­ans rétt áður en hann kom út blóð­ugur í and­liti.

Dómurinn taldi sannað að Gabríel hefði gerst sekur um öll brotin sem honum voru gefin að sök, að hluta til með játn­ingum hans sjálfs og að hluta til með vitn­is­burðum, mynd­bands­upp­tökum og öðrum rann­sókn­ar­gögnum. Refsing hans var ákveðin með hlið­sjón af fjölda brota og alvar­leika þeirra.

Var hann dæmdur í 12 mán­aða fang­elsi og þarf að greiða fórn­ar­lömbum sínum 1.800.000 króna í miska­bætur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi