Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dimma týnd á ný eftir átök við annan hrafn

„Vonum það besta fyrir Dimmu kló.“

Dimma týnd á ný eftir átök við annan hrafn
Jóhann Helgi og Dimma Dimma með stjúppabba sínum Mynd: Víkingur

Hrafninn Dimma, sem hefur notið mik­illa vin­sælda á sam­fé­lags­miðlum und­an­farin ár, hefur verið horfin í nærri viku eftir að annar hrafn réðst að henni og hrakti hana af svæði sínu í Heiðmörk. Þetta kemur fram í nýrri Facebook-færslu Jóhann Helgi Hlöðvers­son.

Að sögn Jóhanns varð árásin fyrir um viku síðan þegar yfir­gangs­samur hrafn réðst ítrekað að Dimmu og rak hana burt.

„Ókunnugi hrafn­inn fór svo að gera sig heima­kom­inn og tók upp á því að sitja uppi á þaki íbúð­ar­húss­ins eins og þetta væri óðal hans,“ skrifar Jóhann.

Dimma er sex ára gömul og hefur alist upp í Heiðmörk. Fyrstu árin dvaldi hún í búri við heim­ili fjöl­skyld­unnar, en fékk dag­lega að fljúga frjáls. Á nótt­unni sneri hún aftur í búrið.

Jóhann og eig­in­kona hans, Margrét, fluttu til Hvera­gerðis síð­asta haust og ákváðu þá að gefa Dimmu fullt frelsi í skóg­inum þar sem hún hafði alist upp.

Hann segir að bæði hann og stjúp­faðir hans, Reynir, hafi heim­sótt Dimmu reglu­lega með mat­ar­gjafir.

„Dimma var alsæl með þetta fyr­ir­komu­lag og glöð að sjá pabba sinn þegar hann birt­ist í sínum reglu­legu heim­sóknum,“ skrifar hann.

Hefur áður týnst

Þetta er í þriðja sinn á sex árum sem Dimma hverfur af sínu svæði. Fyrr í þessum mán­uði fannst hún í garði hjá fólki í Graf­ar­vogur þar sem henni var gefið bæði vatn og matur.

Jóhann bendir á að hrafnar séu mjög svæð­is­bundnir fuglar og verji óðul sín af mik­illi hörku, sér­stak­lega á varp­tíma.

Hann segir jafn­framt að hrafnar séu afar greindir og geti ferð­ast langar leiðir ef þeir missa fót­festu á sínu gamla svæði.

Jóhann Helgi skrifar: „Hrafnar eru mjög svæð­is­bundnir fuglar og verja óðul sín af mik­illi hörku, sér­stak­lega á varp­tíma. Það er því alls ekki úti­lokað að Dimma hafi verið hrakin langt frá sínu svæði af sterk­ari eða árás­ar­gjarn­ari fugli. Hrafnar eru jafn­framt greindir og minnugir fuglar sem geta ferð­ast langar vega­lengdir og stundum haldið sig tíma­bundið á nýjum svæðum ef þeir missa fót­festu á sínu gamla. Það gæti því skýrt af hverju hún hefur ekki enn snúið aftur.“

Nú skoðar Jóhann mögu­leik­ann á að láta GPS-merkja Dimmu til að auð­veld­ara verði að fylgj­ast með henni í fram­tíð­inni.

Dimma hefur eign­ast stóran hóp aðdá­enda á Íslandi og hafa mynd­bönd af henni oft fengið yfir 100 þús­und áhorf á sam­fé­lags­miðlum, að sögn Jóhanns Helga.

Jóhann biðlar til fólks að hafa augun opin eftir Dimmu.

„Ef ein­hverjir sjá Dimmu­legan hrafn í návígi þá má hinn sami gjarnan lauma að honum bita og jafn­vel vatni og láta mig vita,“ skrifar hann.

Að lokum segir hann að þrátt fyrir allt sé Dimma hluti af nátt­úr­unni.

„Auðvitað er Dimma bara fugl og partur af nátt­úr­unni og allt hefur sinn gang. Munum að Guð launi fyrir hrafn­inn og vonum það besta fyrir Dimmu kló.“

Með færsl­unni birti Jóhann Helgi mynd­skeið af þeim hrafni sem tal­inn er hafa hrakið Dimmu á brott.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil