Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Selja snoturt einbýli með stórum garði

Húsið var reist árið 1960

Selja snoturt einbýli með stórum garði
Tungu­vegur 21

Fallegt tveggja hæða ein­býl­is­hús við Tunguveg 21 í Reykja­vík hefur verið sett á sölu. Um er að ræða 173,9 fer­metra eign, þar af 36 fer­metra bíl­skúr, sem reist var árið 1960. Ásett verð er 139,9 millj­ónir króna.

Húsið stendur á vin­sælum og skjól­góðum stað í hverfi 108 Reykja­vík og hefur fengið gott við­hald í gegnum árin. Eignin er skráð fimm til sex her­bergja, en á efri hæð eru í dag þrjú svefn­her­bergi eftir að tvö her­bergi voru sam­einuð í eitt stærra.

Á neðri hæð tekur á móti gestum and­dyri með skápum og flísa­lögðu gólfi. Þaðan er gengið inn í hol sem tengir saman stofu og sjón­varps­stofu með par­k­eti á gólfum. Eldhúsið er snyrti­legt með hvítri inn­rétt­ingu og korki á gólfi. Úr eld­húsi er inn­an­gengt í þvotta­hús með útgengi út í garð. Bað­her­bergi á neðri hæð er búið sturtu­klefa, inn­rétt­ingu, sal­erni og hand­klæða­ofni.

Eitt af helstu aðdráttaröflum eign­ar­innar er stór og skjól­góður bak­garður. Þar standa tveir geymslu­kofar sem fylgja með kaup­unum, annar 3x3 metrar að stærð og hinn 2x2,9 metrar.

Talsvert hefur verið lagt í end­ur­bætur á und­an­förnum árum. Skipt var um frá­rennsl­islagnir út í götu, gluggar á báðum hæðum voru end­ur­nýj­aðir árið 2021 og sama ár var skipt um járn á þaki og þak­rennur. Þá var húsið málað að utan árið 2024.

Eignin er stað­sett mið­svæðis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu með góðum teng­ingum við helstu stofn­brautir auk göngu- og hjóla­leiða. Stutt er í skóla og aðra þjón­ustu, sem gerir húsið að áhuga­verðum kosti fyrir fjöl­skyldur sem leita að rúm­góðu heim­ili á eft­ir­sóttum stað í Reykja­vík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu