Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Svaf á götu í miðbænum

Svaf á götu í miðbænum
Miðbær Reykja­víkur Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sinnti fjöl­breyttum verk­efnum í gær­kvöldi og í nótt, þar á meðal umferð­ar­laga­brotum, útköllum vegna ölv­aðra ein­stak­linga og rann­sókn á meintum inn­brot­stil­burði.

Tveir öku­menn voru hand­teknir grun­aðir um akstur undir áhrifum fíkni­efna. Þá voru fjórir öku­menn kærðir fyrir of hraðan akstur og tveir fyrir að aka án gildra öku­rétt­inda. Einn ein­stak­lingur var jafn­framt kærður fyrir að fylgja ekki fyr­ir­mælum lög­reglu við vinnslu máls.

Lögreglu barst til­kynn­ing um umferð­ar­slys þar sem öku­maður hafði yfir­gefið bif­reið sína og farið af vett­vangi. Haft var upp á mann­inum og virt­ist hann vera mjög ölv­aður. Hann neit­aði að blása í áfeng­is­mæli, var hand­tek­inn og vistaður í fanga­klefa í þágu rann­sóknar máls­ins. Þá var einnig til­kynnt um árekstur þar sem öku­mönnum voru afhent tjóna­eyðu­blöð.

Nokkur útköll tengd­ust ölv­uðum ein­stak­lingum. Ofurölv­aður ein­stak­lingur í mið­borg Reykja­víkur var ekinn heim af lög­reglu. Þá var annar maður, sem fannst sof­andi á götu í mið­bænum, vak­inn af lög­reglu og gekk hann á brott af vett­vangi.

Einnig var til­kynnt um mann sem sýndi starfs­fólki spila­vítis óvið­eig­andi hegðun. Honum var vísað af staðnum.

Lögreglu barst til­kynn­ing um þjófnað á far­tölvu í mið­borg­inni og einnig um grun­sam­legar manna­ferðir í Vest­ur­bænum. Þegar lög­regla kom á vett­vang voru við­kom­andi aðilar farnir.

Þá var til­kynnt um meint yfir­stand­andi inn­brot þar sem fólk átti að vera að reyna að kom­ast inn í íbúð til­kynn­anda. Lögregla mætti á vett­vang og hafði afskipti af aðilum sem þar voru. Við aðgerð­irnar dró lög­reglu­maður fram raf­varn­ar­vopn og beindi því að einum ein­stak­lingi, en ekki kom til beit­ingar þess. Við nán­ari athugun reynd­ist ekki um inn­brot að ræða. Til­kynn­andi máls­ins reynd­ist hins vegar eft­ir­lýstur og var hann færður á lög­reglu­stöð til skýrslu­töku að lok­inni úrlausn máls­ins á vett­vangi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi