Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Týnd þýsk fyrirsæta í Epstein-skjölunum

Hefur verið saknað í tæp­lega ell­efu ár

Týnd þýsk fyrirsæta í Epstein-skjölunum
Epstein og Trump Mynd: Davidoff Studios Photography / Getty Images

Þýsk fyr­ir­sæta sem hefur verið saknað í tæp­lega ell­efu ár er nefnd í skjölum sem tengj­ast auð­kýf­ingnum og kyn­ferð­is­brota­mann­inum Jeffrey Epstein. Þetta kemur fram í umfjöllun þýska viku­rits­ins Der Spiegel og sjón­varps­stöðv­ar­innar ZDF.

Konan, sem aðeins er nefnd Michele í umfjöll­un­inni, hvarf spor­laust árið 2015 þegar hún var 22 ára gömul. Hún yfir­gaf heim­ili fjöl­skyldu sinnar í sept­em­ber það ár og hefur ekk­ert spurst til hennar síðan.

Samkvæmt frétt Der Spiegel hafði Michele um langt skeið verið í sam­bandi við fyr­ir­sætu­miðl­ar­ann Daniel Siad, sem sagður er hafa átt tengsl við Epstein. Hún hafi dvalið í Dúbaí og víðar erlendis áður en hún hvarf.

Siad er nú til rann­sóknar í Frakk­landi þar sem hann er sak­aður um að hafa aðstoðað Epstein við man­sal og mis­notkun kvenna. Hann hefur neitað öllum ásök­unum.

Í umfjöllun Der Spiegel kemur fram að nafn Siad komi ítrekað fyrir í skjölum sem tengj­ast Epstein. Þar hafi hann meðal ann­ars sent Epstein ljós­myndir af konum ásamt upp­lýs­ingum um lík­ams­vexti þeirra og hrósað útliti þeirra.

Meðal þeirra mynda sem Siad sendi Epstein voru myndir af Michele. Í einum tölvu­pósti á hann að hafa skrifað um hana að Epstein myndi „elska hana“. Hins vegar segir í umfjöll­un­inni að engar sann­anir liggi fyrir um að þau hafi nokkurn tím­ann hist.

Tveir fyrr­ver­andi aðstoð­ar­menn Epsteins, sem Der Spiegel hafði sam­band við, sögð­ust aldrei hafa séð Michele. Til­raunir fjöl­miðl­anna til að ná tali af Siad og lög­manni hans báru ekki árangur.

Móðir Michele segir að nýjar upp­lýs­ingar hafi aukið áhyggjur fjöl­skyld­unnar um afdrif dóttur hennar. Hún ótt­ast að Michele sé ekki lengur á lífi og telur mögu­legt að eitt­hvað hafi komið fyrir hana.

Jeffrey Epstein lést í fang­elsi árið 2019 þar sem hann beið rétt­ar­halda vegna ákæra um man­sal og kyn­ferð­is­lega mis­notkun ólög­ráða stúlkna. Málið vakti mikla athygli um allan heim og tengd­ist fjölda áhrifa­mik­illa ein­stak­linga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta