Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Mynd: NTB / Alamy

Dorrit svarar fyrir Epstein-skjölin

Fyrr­ver­andi for­seta­frú Íslands kemur fyrir í Epstein-skjöl­unum í sam­hengi sem hefur verið ill­skilj­an­legt. Hún útskýrir sam­bandið við fólkið í innsta hring Epsteins og hvers vegna hún lýsir honum öðru­vísi í dag en áður.

Dorrit Moussaieff, fyrr­ver­andi for­seta­frú Íslands frá árunum 2003 til 2016, kemur fyrir í Epstein-skjöl­unum svoköll­uðu og síma­númer hennar var í tengiliða­skrá við­skipta­jöf­urs­ins og kyn­ferð­is­brota­manns­ins Jeffreys Epstein, ásamt hund­ruðum ann­arra. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrr­ver­andi for­seti Íslands til 20 ára, kemur líka fyrir í skjöl­unum, en aðeins í því sam­hengi að vera eig­in­maður hennar. Þetta varð ljóst eftir að banda­ríska dóms­mála­ráðu­neytið birti gögn Alrík­is­lög­regl­unnar (FBI), sem feng­ust úr rann­sókn máls­ins og tölvu­kerfi Epsteins.

Dorrit sam­þykkti að svara skrif­legum spurn­ingum Mannlífs um birt­ing­ar­mynd sína í Epstein-skjöl­unum, gegn þeirri kröfu að öll svörin yrðu birt, sem er gert hér.

For­seta­frúin þáver­andi segir þar að hún og Ólafur hafi snúið við á punkt­inum þegar Jeffrey Epstein var and­spænis þeim á heim­ili vinar hennar í Banda­ríkj­unum. Áður hafði Ólafur sagt að hann hefði aldrei hitt Epstein og Dorrit að ekk­ert óeðli­legt hefði verið í hegðun Epstein. „Það var ekk­ert furðu­legt við hann,“ sagði hún árið 2019, en nú seg­ist hún hafa forð­ast hann alfarið vegna þess að hún hefði haft slæma til­finn­ingu fyrir honum. Hún hafi þróað með sér inn­sæi um hvort fólk sé trausts­ins vert.

Þegar hún hafi hitt hann síð­ast, ásamt Ólafi Ragnari Gríms­syni, hafi þau gengið út. „Við hitt­umst við sama tæki­færi fyrir 25 árum. Ég krafð­ist þess að við yfir­gæfum bæði her­bergið þegar í stað.“

„Ég krafð­ist þess að við yfir­gæfum bæði her­bergið þegar í stað“

Við innsta hring Epsteins

Epstein-skjölin virð­ast hins vegar stað­setja hana félags­lega nálægt innsta hring, en Dorrit hefur lengi lifað og hrærst í félags­lífi bresku yfir­stétt­ar­innar. Það hefur líka komið fram opin­ber­lega að Dorrit sótti 51 árs afmæli sam­verka­konu Epsteins, Ghislaine Maxwell, sem nú situr í fang­elsi. Þar var hún meðal ann­arra ásamt Andrési prins, sem nú hefur verið úthýst úr bresku kon­ungs­fjöl­skyld­unni.

Í spurn­ing­unum eru leitað svara við raun­veru­legum tengslum Dorritar við Jeffrey Epstein og Ghislaine Maxwell og merk­ingu tveggja tölvu­pósta til Epsteins sem fjalla um Dorrit. Í öðrum póst­anna segir rit­höf­und­ur­inn og nýald­ar­spek­ing­ur­inn Deepak Chopra í skila­boðum til Epsteins frá því að Dorrit og „íslenski eig­in­maður hennar“ séu stödd í The St. Regis Aspen Resort lúx­us­hót­el­inu í skíða­bænum fræga Aspen í Colorado í Banda­ríkj­unum, þar sem Chopra stýrði hug­leiðslu. Þetta var 2016, skömmu eftir að Ólafur Ragnar vék úr for­seta­stóli.

Hinn póst­ur­inn er sendur á milli tveggja úr innsta hring Epsteins með til­vísun í Dorrit á meðan hún var for­seta­frú 2011. Send­and­inn er Ghislaine Maxwell og við­tak­and­inn Leon, sem allt bendir til að sé auð­mað­ur­inn Leon Black, en hann greiddi Epstein sam­tals 158 millj­ónir Banda­ríkja­dala árin 2012 til 2017 og var langstærsta upp­spretta fjár­magns fyrir Epstein á þeim tíma.

„Hæ Leon. Ghislaine hér. Ég sat með Dorrit sem sagði mér að ég ætti að senda þér tölvu­póst strax!“ segir Ghislaine. Póstinn áframsendi hún síðar á Epstein honum til upp­lýs­ingar. Til­gangur pósts­ins var að bjóða fram þjón­ustu Maxwell við að velja fólk í stjórnir fyr­ir­tækja. Epstein fer síðan árið eftir að fá háar greiðslur frá Black, allt að 40 millj­ónum dala á ári, fyrir ráð­gjöf. Stig­vax­andi spenna er síðan í sam­skiptum hans við Leon Black. Af óljósum ástæðum leggur síðan Leon Black hund­ruð þús­unda dala, eða tug­millj­ónir króna, inn á minnst þrjár konur sem voru tengdar Epstein, sam­kvæmt grein­ingu New York Times. Sjálfur hafði Black verið sak­aður um nauðgun af minnst tveimur konum í húsi Epsteins á Man­hattan í New York.

„Hæ Leon. Ghislaine hér. Ég sat með Dorrit sem sagði mér að ég ætti að senda þér tölvu­póst strax!“

Ekkert kemur fram sem bendir til aðkomu eða tengslum Dorritar að neinum við­skiptum eða brotum. Sjálf segir hún Leon Black hafa verið „fjöl­skyldu­vin“ sem hún þekkti í ára­tugi.

En fyrir Epstein hafi hún haft slæma til­finn­ingu og forð­ast hann, þrátt fyrir að hún hafi lýst því yfir fyrir sjö árum að ekk­ert hefði verið óeðli­legt í hegðun Epsteins, þegar nafn hennar birt­ist fyrst í síma­skrá Epsteins. „Það var ekk­ert furðu­legt við hann,“ svar­aði hún blaða­manni DV.

Vinkona Dorritar, Ghislaine Maxwell, sem hélt tvisvar ræðu í sam­tökum Ólafs Ragnars Gríms­sonar, Arctic Circle, var hand­tekin 2020 og dæmd ári síðar í 20 ára fang­elsi, meðal ann­ars fyrir man­sal á börnum í sam­starfi við Epstein. „Ég var afar hissa og í áfalli,“ segir Dorrit.

Spurn­ingar Mannlífs til Dorritar eru skáletraðar.

Sæl Dorrit,

hér eru spurn­ingar til þín vegna opin­berrar umfjöll­unar í Banda­ríkj­unum, Evrópu og á Íslandi, út frá því að þú varst for­seta­frú Íslands.

Í tölvu­pósti frá Deepak Chopra [rit­höf­undar og nýald­ar­gúrús] til Jeffreys Epstein 24. sept­em­ber 2016 vísar Chopra greini­lega til þín sem „Dorrit“ á „first-name basis“. Það gefur til kynna að Epstein hafi þekkt vel til þín.

Dorrit: „Ég hef þekkt herra Chopra í ára­tugi. Við not­uðum fornöfn. Ég bjó í sömu íbúða­blokk og Jeffrey Epstein í London. Við not­uðum bara fornöfn. Þetta er lítil bygg­ing. Með fimm leigj­endum, held ég.“

Á ljós­mynd frá 23. sept­em­ber 2012 séstu ræða við Ghislaine Maxwell ásamt Mette-Marit, krón­prinessu Noregs. Varstu með­vituð um sam­skipti og sam­band Mette-Marit við Jeffrey Epstein? Hittirðu þau ein­hvern tím­ann saman?

Dorrit: „Nei, ég var ekki með­vituð um sam­skipti eða sam­band krón­prinsessunnar við Jeffrey Epstein. Hef aldrei hitt þau saman.“

Fram hefur komið að Jeffrey Epstein hafi haft síma­númer þitt á tengilið­a­lista. Áttirðu mörg sím­töl við Epstein?

Dorrit: „Einu sam­tölin sem ég hef átt við Jeffrey Epstein voru varð­andi lyftu í bygg­ing­unni okkar sem virk­aði ekki, þar sem hann var svo vin­gjarn­legur að bera upp far­ang­ur­inn fyrir mig.“

Hvenær tal­að­irðu síð­ast við hann?

Dorrit: „Síðasta skiptið sem ég tal­aði við Epstein var fyrir 25 árum.“

Um hvað töl­uðuð þið þá?

Dorrit: „Halló og bless! Ég gekk út á stund­inni sem hann gekk inn.“

Hvenær hitt­irðu Epstein síð­ast?

Dorrit: „Fyrir 25 árum.“

Hvað rædduð þið helst?

Dorrit: „Halló og bless.“

Ræddir þú ein­hvern tím­ann mál­efni íslenska rík­is­ins við Epstein?

Dorrit:„Nei, ég reyndi af fremsta megni að forð­ast að eiga sam­töl við hann.“

Hittir þú ein­hvern tím­ann Epstein með Ólafi Ragnari Gríms­syni?

Dorrit: „Já, við hitt­umst við sama tæki­færi fyrir 25 árum. Ég krafð­ist þess að við yfir­gæfum bæði her­bergið þegar í stað.“

„Hann var svo vin­gjarn­legur að bera upp far­ang­ur­inn fyrir mig.“

Hvenær hitt­irðu Ghislaine Maxwell síð­ast?

Dorrit: „Fyrir nokkrum árum á Íslandi á Arctic Circle.“

Í áfram­sendum tölvu­pósti frá Ghislaine Maxwell til við­skipta­fé­laga Jeffreys Epstein, Leons Black, sem Maxwell áframsendi til Jeffreys Epstein 22. sept­em­ber 2011, kemur fram að þú hafir á fundi með Maxwell lagt til við hana að hún biði þjón­ustu sína - við að finna stjórn­ar­menn í félög - til Blacks. Kannastu við þetta?

Dorrit: „Nei, mjög skrítið.“

Veitt­irðu Maxwell og/eða Epstein reglu­lega ráð­gjöf eða tengdir þau við til­tekna aðila?

Dorrit: „NEI.“

Hefur þú komið á eyju Epsteins, Little Saint James í Karí­ba­hafi?

Dorrit: „Nei, ég hef haldið mig eins fjarri og mögu­legt er.“

Mannlíf sendi Dorrit frek­ari spurn­ingar í eft­ir­fylgni. Í sím­tali blaða­manns við Dorrit vegna þeirra lýsir hún undrun sinni á því að Epstein-skjölin séu til umfjöll­unar, þar sem lít­ill áhugi sé fyrir þeim.

„Segðu mér, er þetta alvöru vinnan þín, að vera blaða­maður? Það er það ekki, er það?“ spyr hún. Síðar slær hún á létt­ari strengi og ræðir við fólk í kringum sig um hver hafi áhuga á Epstein-skjöl­unum.

Hún sendir síðar skrif­leg svör.

Manstu eða getur þú upp­lýst hvers vegna Epstein var með síma­númer skráð við þitt nafn í tengiliða­skrá?

„Þetta er spurn­ing sem aðeins hann vissi [svar við]. Jeffrey var nágranni minn fyrir 40 árum, það er afar lík­legt að ég hafi gefið honum það. Ég sé enga ástæðu fyrir því að ég hefði ekki átt að gera það. Það var líka skráð í síma­skránni.“

Í sím­tali við blaða­mann segir Dorrit enn frekar: „Ég er að tala um fyrir 40 árum. Ég hef ekki búið á þeirri eign í 38 ár.“

Þekkir þú og hefur hitt Leon Black?

Dorrit: „Já, ég þekki Black-fjöl­skyld­una. Ég hef þekkt þau í marga ára­tugi. Þau eru vinir mínir.“

Útilokar þú að hafa setið með Ghislaine Maxwell og rætt um Leon Black, sem kemur fram í tölvu­pósti frá Maxwell til Leons Black og Jeffreys Epstein?

Dorrit: „Ég get ekki úti­lokað það 100%, en ég sé nákvæm­lega enga ástæðu fyrir því að ég hefði átt að nefna hann, sér­stak­lega í þessu sam­hengi. Herra Black er mik­ill lista­safn­ari. Ég gæti hafa minnst á list hans, en örugg­lega ekki við­skipti hans. Og ég skil satt best að segja ekki hvers vegna ég hefði nefnt þetta við Ghislaine. Fyr­ir­tæki hans er skráð á markað. Síðasta mann­eskjan sem þyrfti að gefa þeim ráð er Ghislaine eða ég.“

Hvers vegna létuð þið Ólafur Ragnar ykkur hverfa þegar þið voruð á sama stað og Jeffrey Epstein? Og hvers vegna forð­að­ist þú að ræða við hann? Hafðir þú heyrt af eða orðið vitni að athæfi hans? Ef svo, hvað hafðir þú upp­lifað?

Dorrit: „Frá unga aldri vann ég í búð föður míns í Jer­úsalem. Ég byrj­aði að vinna þar 10 ára gömul. Þetta var löngu fyrir tíma kredit­korta. Alls konar fólk kom inn. Samn­ingar voru gerðir með handa­bandi. Maður þró­aði með sér inn­sæi, til­finn­ingu fyrir því hvers konar per­sónu maður var að eiga við, hvort þeir eru trausts­ins verðir.

Þetta hefur verið inn­rætt í mig og fjöl­skyldu mína í kyn­slóðir. Þetta er næstum orðið hluti af genum okkar.

Faðir minn, sem var ólæs, hafði frá­bært inn­sæi, hann hvatti mig til að þróa það. Það er eins og loft­net sem varar mann við. Svolítið eins og til­finn­ingin sem Samson [íslenskur fjár­hundur Ólafs og Dorritar] fær þegar hann hittir ein­hvern sem honum líkar ekki við.

Mér lík­aði ein­fald­lega aldrei við Jeffrey. Og vildi ekki vera í félags­skap hans. Auðvitað gat ég ekki forð­ast að rekast á hann á leið inn og út úr bygg­ing­unni okkar.“

Þú þekktir Ghislaine Maxwell. Vissir þú að hún væri í sam­bandi og sam­starfi við Jeffrey Epstein og reynd­irðu að vara hana við því? Rædduð þið nokkurn tím­ann athæfi Epsteins eða dóm­inn yfir honum fyrir kyn­ferð­is­brot sem féll 2008?

„Mér lík­aði ein­fald­lega aldrei við Jeffrey. Og vildi ekki vera í félags­skap hans.“

Dorrit: „Ég vissi, eins og allir aðrir sem bjuggu í Bret­landi, að Ghislaine var í sam­bandi með Jeffrey. Hvers konar sam­band það var hafði ég ekki hug­mynd um.

Faðir hennar var áber­andi dag­blaða­eig­andi, svo hún var alltaf með slúðrið á hreinu. Ég held ég hafi aldrei séð þau saman. Ég átti ekki þannig vin­skap við hana.“

Í sím­tali við blaða­mann seg­ist Dorrit enn frekar „alls ekki“ hafa varað Maxwell við Epstein, þar sem hún „átti ekki þannig sam­band við hana“.

Kom þér á óvart að Maxwell, sem þú þekktir, hefði verið dæmd fyrir man­sal og sam­særi um að útvega Epstein stúlkur, allt niður í 14 ára aldur?

Dorrit: „Já, ég var afar hissa og í áfalli. Ég skil það enn ekki.“

Í Epstein-skjöl­unum er ekk­ert sem bendir til þess að Dorrit eða Ólafur hafi brotið af sér með neinum hætti.

„Ég var afar hissa og í áfalli“

Ekki er ljóst hvers vegna Deepak Chopra sá ástæðu til að upp­lýsa Jeffrey Epstein um að Dorrit væri í Aspen. Epstein hafði anga víða og lýsir í öðrum hlutum skjal­anna áhuga á Íslenskri erfða­grein­ingu, þegar hann reyndi að stofna til sam­bæri­legrar erfða­grein­ingar á Jóm­frú­areyj­unum.

Ekki er heldur ljóst hvers vegna Dorrit lýsti Epstein þannig árið 2019, að það væri „ekk­ert furðu­legt við hann“, en forð­að­ist hann samt mark­visst og vék úr við­ur­vist hans taf­ar­laust.

Mannlíf spurði Dorrit að því hvers vegna lýs­ingar hennar á Epstein hafi breyst frá árinu 2019.

Hvers vegna sagðir þú við DV árið 2019 að ekk­ert hefði verið furðu­legt við Epstein, en núna seg­istu hafa forð­ast hann vegna þess hvernig hann kom fyrir?

„Það var ekk­ert skrítið við hann. Mér lík­aði bara ekki við hann, svo­lítið slepju­legur,“ svarar Dorrit.

Þá er ekki fylli­lega ljóst hvers vegna Ólafur Ragnar sagði í við­tali við Frétta­blaðið árið 2019 að hann hefði aldrei hitt Epstein, en Dorrit lýsir því að hún hafi kraf­ist þess að yfir­gefa her­bergið þegar í stað.

„Epstein hef ég aldrei hitt,“ sagði Ólafur Ragnar í fyrr­greindu við­tali við Frétta­blaðið. Þá sagð­ist hann lítið þekkja Ghislaine Maxwell.

„Hún tal­aði á Arctic Circle um hafið. Að öðru leyti hef ég engin tengsl við hana og hef ekki hitt hana nema í þessu sam­kvæmi í New York og þegar hún tal­aði á Arctic Circle."

Einn af með­stofn­endum Ólafs Ragnars í Arctic Circle, Scott Borger­son, varð síðan eig­in­maður Maxwell árið 2016.

Elítan hreinsar sig af Epstein

Dorrit, sem var for­seta­frú Íslands í 13 ár, er ein fjöl­margra í elítu Vest­ur­landa sem hafa svarað fyrir hvers kyns teng­ingu, sam­skipti og sam­band við Epstein eftir að gögn fóru í birt­ingu.

Margir þeirra, til að mynda Elon Musk, rík­asti maður heims, eig­andi X og for­stjóri Tesla, hafa gert lítið úr tengslum sínum og sagst hafa hafnað boði um að koma á eyju Epsteins, áður en nýj­ustu gögnin stöng­uð­ust á við stað­hæf­ingar hans, þar sem hann hafði sjálfur beðið um að koma, en ekki farið á end­anum. Sama gildir um við­skipta­ráð­herra Banda­ríkj­anna, Howard Lutnick, sem hafði áður sagt að hann hefði ákveðið árið 2005 að hann myndi „aldrei vera inni í sama her­bergi og þessi ógeðs­lega mann­eskja“. Nýju gögnin sýna að hann skipu­lagði sím­töl við Epstein og reyndi að hitta hann í drykki árið 2011. Árið eftir plan­aði hann og eig­in­kona hans að fara með börnin sín í heim­sókn á eyju Epsteins. Á aðfanga­dag sama ár var Lutnick boðið í hádeg­is­verð hjá Epstein og aðstoð­ar­maður hans sendi Lutnick skila­boð: „Það var gaman að hitta þig.“

Í Noregi virð­ast vera meiri afleið­ingar af sam­skiptum elít­unnar við Epstein. Oft byggir það á opin­berum trún­að­ar­störfum við­kom­andi. Thor­björn Jagland, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Noregs, var fram­kvæmda­stjóri Evr­ópu­ráðs­ins þegar hann átti í sam­bandi við Epstein. Nú er rann­sakað hvort hann hafi þegið greiða frá Epstein.

Banda­ríska alrík­is­lög­reglan telur að þolendur Epsteins séu um þús­und tals­ins, en aðeins Ghislaine Maxwell var ákærð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi