Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gekk í skrokk á barnsmóður sinni og ók ítrekað fullur

Vín­anda­magn í blóði hans mæld­ist í flestum til­vikum mjög hátt

Gekk í skrokk á barnsmóður sinni og ók ítrekað fullur
Hval­fjarð­ar­göng Ók meðal ann­ars fullur í göng­unum. Mynd: Víkingur

Hér­aðs­dómur Vest­ur­lands hefur dæmt ónafn­greindan karl­mann til sjö mán­aða óskil­orðs­bund­innar fang­els­is­vistar fyrir röð alvar­legra umferð­ar­laga­brota og lík­ams­árás gegn fyrr­ver­andi sam­býl­is­konu sinni og barns­móður. Jafn­framt var hann sviptur öku­rétti ævi­langt frá 27. nóv­em­ber 2025.

Málið var rekið á grund­velli fjög­urra ákæra sem sam­ein­aðar voru til með­ferðar fyrir dómi. Karl­mað­ur­inn ját­aði ský­laust öll brotin við þing­fest­ingu máls­ins og var það því tekið til dóms án frek­ari sönn­un­ar­færslu.

Samkvæmt dómnum framdi mað­ur­inn alls tíu umferð­ar­laga­brot á árunum 2024 til 2026. Þar af var hann sjö sinnum stað­inn að akstri undir áhrifum áfengis. Vín­anda­magn í blóði hans mæld­ist í flestum til­vikum mjög hátt, allt frá 1,56 pró­millum upp í 2,58 pró­mill. Í einu til­vikanna ók hann jafn­framt sviptur öku­rétti.

Auk ölv­un­arakstrar var hann sak­felldur fyrir ítrekuð hraðakst­urs­brot. Meðal ann­ars ók hann á 143 km hraða þar sem hámarks­hraði var 90 km á klukku­stund og einnig á 111 km hraða á svæði þar sem sami hámarks­hraði gilti.

Þá var mað­ur­inn sak­felldur fyrir lík­ams­árás gegn fyrr­ver­andi sam­býl­is­konu sinni og barns­móður. Samkvæmt ákæru tók hann harka­lega í kon­una, sló hana í höfuð og and­lit, kýldi hana í búk, greip fast um hand­leggi, úln­liði og ökkla og dró hana fram úr rúmi. Við árás­ina hlaut hún meðal ann­ars mar, skrámur, bólgur og eymsli á lík­ama.

Við ákvörðun refs­ingar leit dóm­ur­inn til þess að mað­ur­inn hefði áður hlotið ítrek­aðar refs­ingar fyrir sam­bæri­leg umferð­ar­laga­brot, meðal ann­ars ölv­un­arakstur og akstur sviptur öku­rétti. Dómurinn taldi því um að ræða ítrekun sem kall­aði á þyngri refs­ingu.

Til máls­bóta var litið til þess að hann ját­aði brotin ský­laust, hefði leitað sér aðstoðar, væri í sál­fræði­með­ferð og hefði verið edrú um nokk­urt skeið. Þrátt fyrir það taldi dóm­ur­inn brotin svo alvar­leg og saka­feril hans slíkan að ekki væru efni til að skil­orðs­binda fang­els­is­refs­ing­una.

Maðurinn var jafn­framt dæmdur til að greiða tæp­lega 1,4 millj­ónir króna í sak­ar­kostnað, þar af 494.760 krónur í málsvarn­ar­laun verj­anda síns og 900.392 krónur í annan kostnað vegna rann­sóknar máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi