Þróttur varð í dag bikarmeistari kvenna í knattspyrnu í fyrsta sinn eftir 2:1 sigur á Grindavík/Njarðvík í úrslitaleik á Laugardalsvelli.
Þróttarar byrjuðu leikinn af miklum krafti en þrátt fyrir góð færi tókst hvorugu liðinu að skora fyrir hlé. Grindavík/Njarðvík tók síðan forystuna á 70. mínútu þegar Ása Björg Einarsdóttir skoraði eftir fyrirgjöf Sophiu Romine.
Forysta Suðurnesjakvenna entist þó aðeins í sex mínútur. Þróttur fékk vítaspyrnu á 76. mínútu og Sæunn Björnsdóttir jafnaði metin af öryggi.
Sigurmarkið kom á 82. mínútu eftir glæsilegt samspil Þróttara. Unnur Dóra Bergsdóttir skoraði eftir þríhyrningsspil við Björgu Gunnlaugsdóttur og tryggði Þrótti 2:1 sigur.
Þróttarakonur fögnuðu því sögulegum bikarmeistaratitli að leikslokum.













Athugasemdir