Elísabet Gunnarsdóttir hefur verið látin hætta störfum sem þjálfari belgíska kvennalandsliðsins í knattspyrnu. Belgíska knattspyrnusambandið greindi frá ákvörðuninni á heimasíðu sinni.
Elísabet tók við belgíska landsliðinu í janúar á síðasta ári og skrifaði þá undir tveggja og hálfs árs samning sem átti að gilda fram yfir heimsmeistaramótið í Brasilíu árið 2027.
Belgía tapaði fyrir Póllandi í undanúrslitum umspils um sæti á heimsmeistaramótinu og missti þar með af lokakeppninni.
Belgíska liðið lék 23 leiki undir stjórn Elísabetar og vann ellefu þeirra.





















Athugasemdir