Karlmaður var eltur uppi og yfirbugaður af vegfarendum eftir að hann er grunaður um að hafa stolið Teslu, ekið henni inn á gangstétt í Pacific Beach í San Diego og ekið þar á 25 ára gamla konu.
Atvikið náðist að hluta til á myndband sem tekið var með gleraugum eins vegfarandans. Þar sést ökumaðurinn yfirgefa bifreiðina og taka á rás. Maðurinn sem tók myndbandið hljóp á eftir honum ásamt fleiri vegfarendum.
Hópurinn náði manninum á bílastæði, yfirbugaði hann og hélt honum niðri þar til lögregla kom á vettvang.
Samkvæmt NBC 7 San Diego hafði lögreglu borist tilkynning um að Teslunni hefði verið stolið og að eigandi hennar fylgdist með staðsetningu bifreiðarinnar. Lögregla veitti bílnum eftirför en ökumaðurinn ók inn á gangstétt í Pacific Beach.
Þar varð 25 ára kona fyrir bifreiðinni. Hún var flutt á sjúkrahús með alvarlega áverka. Hún hlaut meðal annars brot á tveimur rifbeinum og tveimur hryggjarliðum auk skurðs á kvið sem þurfti að sauma.
Áreksturinn sjálfur sést ekki á myndbandinu.
Lögreglan í San Diego hefur borið kennsl á hinn grunaða sem hinn 39 ára Juan Antonio Gonzaba. Hann er jafnframt grunaður um að hafa ekið undir áhrifum.






















Athugasemdir