Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Stórfelldir fíkniefnainnflytjendur handteknir á Laugavegi

Dómurinn taldi brotið alvar­legt, meðal ann­ars vegna hins umtals­verða magns

Stórfelldir fíkniefnainnflytjendur handteknir á Laugavegi
Fólk á Lauga­vegi Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Stjórnarráðið/Hari

Tveir karl­menn hafa verið dæmdir í fimm mán­aða fang­elsi hvor fyrir stór­fellt fíkni­efna­laga­brot eftir að hafa flutt sam­tals 11.160 milli­lítra af kanna­bis­vökva til Íslands. Efnin voru falin í far­ang­urstöskum mann­anna og ætluð til sölu­dreif­ingar hér á landi.

Dómur féll í Hér­aðs­dómi Reykja­ness 30. sept­em­ber. Menn­irnir, Christopher Warner Vezzetti og Hakeem Khaled Mashal, komu til Kefla­vík­ur­flug­vallar með flugi frá Seattle í Banda­ríkj­unum 19. ágúst síð­ast­lið­inn.

Samkvæmt ákæru var kanna­bis­vök­vinn 81 pró­sents að styrk­leika. Í tösku hvors manns fund­ust 5.580 milli­lítrar. Lögregla og toll­gæsla fundu og lögðu hald á efnin þegar tösk­urnar komu til Kefla­vík­ur­flug­vallar.

Í kjöl­farið voru fíkni­efnin tekin úr tösk­unum en þær síðan afhentar undir eft­ir­liti lög­reglu að Lauga­vegi í Reykja­vík. Þar voru menn­irnir hand­teknir þegar þeir tóku við tösk­unum.

Báðir ját­uðu brot sín ský­laust fyrir dómi og sam­þykktu upp­töku fíkni­efn­anna. Fram kemur í dómnum að hvor­ugur þeirra hafi áður orðið upp­vís að refsi­verðri hátt­semi svo kunn­ugt sé.

Dómurinn taldi jafn­framt að ekki væri sýnt fram á að menn­irnir hefðu átt fíkni­efnin eða tekið þátt í skipu­lagn­ingu kaupanna og inn­flutn­ings­ins. Þeir hefðu sam­þykkt að flytja efnin til lands­ins gegn greiðslu og gegnt hlut­verki burð­ar­dýra.

Dómurinn taldi þó brotið alvar­legt, meðal ann­ars vegna hins umtals­verða magns og þess að efnin voru ætluð til sölu. Hvor þeirra var dæmdur í fimm mán­aða óskil­orðs­bundið fang­elsi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi