Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

Þvílíkur lúxus í boði

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll
Laugaból

Jörðin Laugaból í Mosdal við Arn­ar­fjörð í Ísa­fjarð­arbæ hefur verið sett á sölu. Ásett verð er 275 millj­ónir króna en um er að ræða umfangs­mikla jörð með miklum húsa­kosti, jarð­hita og ýmsum hlunn­indum.

Laugaból er skráð 421,7 hekt­arar að stærð en Hok­ins­dalur, sem fylgir eign­inni, er 1.373,3 hekt­arar. Jörðin liggur að sjó og er skammt frá Dynjanda. Meðal hlunn­inda eru berja­land, fjalla­grös og gæsa­veiði auk þess sem stutt er í rjúpna­veiði. Þá er mikið af sel við strönd­ina.

Jörðin var byggð upp að stórum hluta eftir alda­mótin og eru nær allar bygg­ingar frá þeim tíma. Íbúð­ar­húsið er um 270 fer­metrar og stendur á þremur hæðum. Þar eru meðal ann­ars sjö svefn­her­bergi, nokkrar stofur og sér­stök íbúð á jarð­hæð.

Hest­húsið er rúm­lega 714 fer­metrar og þar er aðstaða fyrir um 40 hross. Auk þess eru á jörð­inni hlaða, véla­skemma, 316 fer­metra reið­höll og lítið fjár­hús. Á sínum tíma voru allt að 150 hestar í ræktun á Lauga­bóli og þar var byggður stór skeið­völlur.

Ein helsta sér­staða Lauga­bóls er jarð­hit­inn. Heitt vatn, um 50 gráður, kemur úr bor­holu og er meðal ann­ars nýtt til hús­hit­unar. Við íbúð­ar­húsið er 7,5 sinnum 20 metra steypt sund­laug sem hituð er með jarð­hit­anum.

Þá hefur gam­alli bygg­ingu við sjó verið breytt í sauna­klefa með stórum gluggum og útsýni yfir hafið. Und­an­farin ár hefur jörðin meðal ann­ars verið nýtt undir ferða­þjón­ustu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu