Kona og móðir hennar slösuðust eftir að hafa orðið innlyksa í 59 bíla árekstri á þjóðvegi 99 snemma á laugardagsmorgni á leið sinni frá Oxnard til Central Valley í Kalifornínu í Bandaríkjunum
Yamel Angel sagði að hún og móðir hennar hefðu verið á norðurleið þegar þær lentu skyndilega mitt í árekstrinum en mikil þoka var á svæðinu.
„Ég var berfætt. Ég hljóp bara út. Við hlupum eins hratt og við gátum út á grasið og horfðum bara á allt gerast,“ sagði Angel við ABC fréttastofuna.
Í kjölfarið varð annar árekstur hinum megin á þjóðveginum.
„Við sáum bara bíl eftir bíl skella saman alls staðar,“ sagði Angel.
Angel og móðir hennar voru fluttar á sjúkrahús. Angel hlaut höfuð- og mjaðmameiðsli, en móðir hennar hlaut bakmeiðsli.
„Það var fólk sem reyndi að hjálpa, reyndi að hjálpa hinum slösuðu. Þetta var virkilega slæmt. Hjartað í mér sló rosalega hratt. Allt flaug í gegnum hugann á mér og hugurinn tæmdist,“ sagði Angel.
Ekki hefur verið gefið út hversu margir slösuðust í árekstrinum.


Komment