InnlentHeilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallar ost vegna E. coli21. febrúar 2025 Aðföng, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Morbier Tradition Émotion ost. Osturinn hefur mögulega smitast af bakteríunni Escherichia coli af tegundinni STEC. Neytendur sem keypt hafa umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig geta þeir skilað henni í versluninni þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu....
InnlentÍslenskir leikarar skammaðir fyrir að nota fatnað lögreglu á Tinder21. febrúar 2025 Fólk notar ýmsar leiðir til að vekja athygli á sér á Tinder en ekki er í boði að nota einkennisfatnað lögreglunar til þess samkvæmt lögreglumanninum Guðmundi Fylkissyni. „Af gefnu tilefni þá er ekki heimilt að nota einkennisfatnað lögreglu til svona einkanota,“ skrifar Guðmundur í Facebook-hóp þar sem fólk sem vill taka þátt í kvikmyndagerð sem aukaleikarar kemur saman og sækist...
HeimurSegja herinn hafa drepið ísraelsku fjölskylduna á Gaza – Líkamsleifarnar sagðar hafa blandast saman21. febrúar 2025 Í yfirlýsingu frá fjölmiðlaskrifstofu yfirvalda á Gaza er lítið gert úr hótunum ísraelskra embættismanna vegna fullyrðinga um að rangt lík hafi verið skilað til Ísraels á fimmtudag. Yfirvöld segja að líkamsleifar kvenkyns gísls hafi fundist í bland við leifar annars fólks undir rústum byggingar, sem varð fyrir látlausum loftárásum Ísraelshers á Gaza. Segja yfirvöld að þetta sé bara vitnisburður um...
InnlentUndirskriftarsöfnun gegn þátttöku Íslands í Eurovision hafin – Allir flytjendur vilja keppa úti21. febrúar 2025 Undirskriftarsöfnun er hafin þar sem þess er að krafist að RÚV dragi Ísland úr Eurovision verði Ísrael ekki meinuð þátttaka í Eurovision í ár. Allir keppendur í Söngvakeppninni hafa samþykkt að taka þátt úti í Sviss, vinni þeir. Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir stendur fyrir undirskriftarsöfnun þar sem þess er krafist að RÚV dragi Ísland úr Eurovision í ár, verði Ísrael ekki...
MenningSafna undirskriftum gegn þátttöku í Eurovision21. febrúar 2025 Allir keppendur í Söngvakeppninni hafa samþykkt að taka þátt.
MenningDJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugnanlegar líkkistur sendar heim til sín: „RIP Drake“21. febrúar 2025 DJ Khaled er orðinn nýjast stjarnan til að fá afhenta óhugnanlega líkkistu heim til sín í Flórída. Áður hafði Tekashi 6ix9ine fengið slíka sendingu á höfðingjasetur sitt nokkrum dögum fyrr. Hin óhuggulega líkkista var send að heimili Khaleds í Miami síðastliðinn laugardag, af tveimur manneskjum sem keyrðu trukki til öryggisvarðar, og sögðust vera frá sendingarfyrirtæki, samkvæmt lögregluskýrslu. Eftir að þeim...
InnlentDraga áfastir tappar úr þér lífsviljann?21. febrúar 2025 Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hélt í gær eina eftirminnilegustu ræðu Alþingis í nokkur ár þegar hann ræddi lengi um áfasta tappa á plastflöskum. Jóni finnst þeir skelfilegir. „Þetta varðar lýðheilsu, það augnablik eða sú mínúta sem það tekur að skrúfa tappann á það minnkar svona lífsvilja manns allaveganna um stund. Því þetta er algjörlega óþolandi hegðun á tappanum,“ sagði...
InnlentVerkfall skollið á í framhaldsskólum – Sveitarfélögin neita tillögu21. febrúar 2025 Verkfall er hafið í Menntaskólanum á Akureyri, Verkmenntaskólanum á Akureyri, Borgarholtsskóla, Verkmenntaskóla Austurlands og Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Þá er einnig hafið verkfall í tónlistarskólanum á Akureyri. Það virðist þó vera ljós í myrkrinu í deilu kennara við sveitarfélögin og ríkið en í gærkvöldi samþykktu kennarar tillögu sem Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari lagði fram.. Ríkið og sveitarfélögin báðu um frest til að fara...
InnlentEnginn vorkennir Dóra DNA: „Nú þarf ég að byrja upp á nýtt“21. febrúar 2025 Rithöfundurinn og grínistinn Dóri DNA er að flytja en hann setti húsið sitt í Skerjafirði nýverið á sölu. Miðað við nýjasta pistil hans á samfélagsmiðlum virðist hann hafa selt það fljótt og örugglega en hann er ekki glaður með að þurfa flytja. „Ég stend í flutningum núna. Sem er eitthvað það erfiðasta sem hægt er að gera eftir þrítugt. Og...
InnlentEgill hefur litla trú á nýja meirihlutanum: „Borgarstjórnin er ekki sérlega vel mönnuð“21. febrúar 2025 Egill Helgason hefur litla trú á nýjum borgarstjórnarmeirihlutanum sem kynnt verður í dag. Fjölmiðlamaðurinn víðlesni, Egill Helgason skrifaði Facebook-færslu í gærkvöldi þar sem hann óskar nýjum meirihluta í borginni velfarnaðar en segist um leið ekki hafa mikla trú á henni. Segir hann að borgarstjórnin sé einfaldlega ekki vel mönnum og að hæfileikafólk laðist ekki að setu í borginni. Spáir hann...
MenningFriðrik Dór hugsar um lygar21. febrúar 2025 Fátt er skemmtilegra en íslensk tónlist og það er vegna þess að Íslendingar eru ótrúlega hæfileikaríkir á þessu sviði. Eina sem er betra en íslensk tónlist er ný íslensk tónlist og hefur Mannlíf valið fimm nýleg íslensk lög sem allir þurfa að hlusta á um helgina. We Made God – Endless Friðrik Dór og Bubbi – Til hvers þá að...
InnlentLögbrjótar í bílum í aðalhlutverki21. febrúar 2025 Það var lítið annað að gera hjá lögreglunni í nótt annað en eitthvað tengt bílstjórum og greint er frá því í dagbók hennar. Ökumaður var stöðvaður og sektaður fyrir að aka gegn rauðu ljósi. Þá var annar bílstjóri stöðvaður og þá kom í ljós að búið var að svipta hann ökuréttindum. Í Múlahverfinu var einn ökumaður sendur í blóðsýnatöku vegna...
SlúðurSamsæriskenning Stefáns Einars21. febrúar 2025 Það er margt hægt að segja um Stefán Einar Stefánsson, fjölmiðlamann Morgunblaðsins, en hann hefur fengið mikla athygli á undanförnum mánuðum fyrir þáttinn Spursmál sem er sýndur á vefsíðu Morgunblaðsins. Sitt sýnist hverjum um gæði þáttarins en greinilegt er að hann hefur vakið lukku hjá mörgum hægri mönnum á landinu. Ábyrgð Stefáns er mikil enda er trúverðugleiki fjölmiðlamanna gífurlega mikilvægur,...
MenningMyrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans21. febrúar 2025 Tónlistarmaðurinn Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína á morgun en nafn hennar er Rykfall. Rykfall, þriðja breiðskífa Myrkva, er afrakstur margra ára vinnu. Hún er sjálfstæðasta verk listamannsins til þessa en nánast hvert smáatriði plötunnar er spilað eða útsett af honum. Samkvæmt fréttatilkynningu var markmiðið að skapa eitthvað sem gæti staðist tímans tönn. Platan fjallar um að leggja allt undir...
MannlífiðÁtta ára piltur bjargaði lífi unglingspilts sem varð undir möl: ,,Ég varð auðvitað hræddur“20. febrúar 2025 Átta ára drengur frá Húsavík fór út að hjóla einn eftirmiðdag en datt ekki í hug að áður en um langt væri liðið, væri hann orðinn hetja sem bjargaði lífi unglingspilts. Í októberbyrjun 1975 var hinn 16 ára Pétur Ármann Jónsson að klára vinnu sína við malarnám við Húsavík. Var hann að moka möl úr sílói eftir að færiband sem...
HeimurFramhjáhald kom upp um mútuþægni eiginmanns20. febrúar 2025 Forsaga málsins er sú að konan og maðurinn giftu sig árið 2004 en hann starfar sem lögreglumaður. Þau bjuggu þó ekki saman en konan býr í Surat Thani í Tælandi meðan eiginmaður hennar og þrjú börn býr í Chumphon. Þrátt fyrir fjarlægðina á milli þeirra komast konan á snoðir um ítrekað framhjáhald mannsins en fyrirgaf manninum ávallt af því hún...