MinningInga greinir frá andláti föður síns í tilfinningaþrungnu myndbandi15. maí 2026 „Elsku pabbi, guð varðveiti þig og blessi, takk fyrir allt og allt.“
MinningSigfríð Ingólfsdóttir er fallin frá15. maí 2026 Sigfríð Ingólfsdóttir, fyrrverandi fiskverkakona á Akureyri, er látin 73 ára að aldri. Hún varð bráðkvödd á heimili sínu síðustu helgi. Akureyri.net greindi frá andláti hennar. Sigfríð fæddist á Akureyri 7. júní 1952 og var landsþekkt fyrir einstakan stuðning sinn við enska knattspyrnufélagið Arsenal og var heimili hennar gjarnan kallað Arsenal-húsið. Hún var einnig mikill stuðningsmaður KA. Foreldrar hennar voru Unnur...
MinningEyvindur Erlendsson er fallinn frá13. maí 2026 Leikstjórinn Eyvindur Erlendsson er látinn, 89 ára að aldri. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði 6. maí síðastliðinn. Morgunblaðið greinir frá andláti hans. Eyvindur fæddist í Grindavík 14. febrúar 1937 og ólst upp í Dalsmynni í Biskupstungum. Hann lauk sveinsprófi í húsgagnasmíði frá Iðnskólanum á Selfossi árið 1959, nam við Myndlistarskólann í Reykjavík og útskrifaðist síðar með BA-próf í...
MinningSigfús Pétursson er látinn6. maí 2026 Tenórsöngvarinn Sigfús Pétursson frá Álftagerði lést á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki 3. maí, nýorðinn 83 ára. Feykir greindi frá andláti hans. Hann fæddist 23. apríl 1943 og var sonur hjónanna Péturs Sigfússonar og Sigrúnar Ólafsdóttur. Sigfús stundaði búskap í Álftagerði stóran hluta ævinnar en bjó síðustu árin í Varmahlíð. Hann gekk ungur í karlakórinn Heimi og var um áratuga skeið meðal...
MinningSigrún Guðjónsdóttir er fallin frá5. maí 2026 Myndlistarkonan Sigrún Guðjónsdóttir, jafnan kölluð Rúna, er látin. RÚV greinir frá andláti hennar. Hún var meðal ástsælustu myndlistarmanna þjóðarinnar og lét eftir sig djúp spor í íslenskri myndlist, hönnun og kennslu. Rúna fæddist í Hafnarfirði 15. nóvember 1926, dóttir Guðjóns Guðjónssonar skólastjóra og Ragnheiðar Jónsdóttur rithöfundar. Hún nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og lauk kennaraprófi aðeins átján ára gömul....
MinningSigmar Ó. Maríusson er fallinn frá4. maí 2026 Sigmar Ó. Maríusson gullsmiður er látinn, 91 árs að aldri. Aðstandendur hans greina frá andláti hans. Sigmar fæddist 8. mars árið 1935 í Hammi í Þistilfirði. Foreldrar hans voru Maríus Jósafatsson og Sigrún Aðalsteinsdóttir. Þegar Sigmar var 21 árs gamall missti hann báða fætur sína í bílslysi. Hann lá á sjúkrahúsi í tæpt ár áður en hann fékk gervifætur á...
MinningInga Dögg Kristinsdóttir er fallin frá3. maí 2026 Inga Dögg Kristinsdóttir er fallin frá en eiginmaður hennar, Vésteinn Valgarðsson, greindi frá andláti hennar í færslu á Facebook. Inga lést í slysi á Skorradalsvatni á Vesturlandi í síðustu viku. Hún var 44 ára gömul og lætur eftir sig eiginmann og tvo unga syni.
MinningTristan Magni Hauksson er látinn30. apríl 2026 Tristan Magni Hauksson er nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki nálægt Óðinsvé í Danmörku síðastliðinn sunnudag. Hann var 24 ára gamall og frá Selfossi. Tilkynning um slysið barst rétt fyrir hádegi að dönskum tíma. Lögreglan í Danmörku rannsakar enn tildrög slyssins.
MinningBryndís Björg Guðmundsdóttir er látin29. apríl 2026 Bryndís Björg Guðmundsdóttir, fyrrverandi skólastjóri Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ, lést á líknardeild í Kópavogi þann 25. apríl, 62 ára gömul. Mbl.is sagði frá andlátinu. Hún fæddist í Keflavík 1. júní árið 1963 og voru foreldrar hennar Guðmundur Ármann Ingólfsson og Guðrún Guðmundsdóttir. Bryndís lauk stúdentsprófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík árið 1982. Síðar útskrifaðist hún með B.Ed.-gráðu frá grunnskóladeild Háskóla Íslands árið...
MinningEdda minnist Björgvins Halldórssonar28. apríl 2026 „Hann var kletturinn okkar fjölskyldunnar þegar Gísli dó“
MinningSorg í Danmörku eftir andlát Íslendings27. apríl 2026 Mikil sorg ríkir eftir að 24 ára íslenskur nemandi lést í hörmulegu fallhlífarslysi í Danmörku á sunnudagsmorgun. Hann var nemandi við Nordfyns Højskole nálægt Bogense, þar sem hann hafði stundað nám ásamt samnemendum sínum. Skólinn staðfesti andlátið í tilkynningu og lýsti djúpri samúð með fjölskyldu og vinum hans. Samkvæmt upplýsingum var hann þátttakandi í fallhlífarstökksnámskeiði hjá Odense Faldskærmscenter, sem skólinn...
MinningÞóra í Bakkakoti er látin25. apríl 2026 Þóra Elísabet Bernódusdóttir, sem var áður húsfreyja á fósturheimilinu Bakkakoti, er látin. Hún lést þann 18. apríl síðastliðinn samkvæmt dánartilkynningu sem birtist í Morgunblaðinu. Þóra rak heimilið á sínum tíma ásamt Jóni Ársælssyni, sem lést árið 2003. Nafn hennar var nýlega í umræðunni þegar fimm menn stigu fram í þættinum Kveik í febrúar og sögðu frá því að þeir hefðu...
MinningValdimar Örnólfsson er fallinn frá23. apríl 2026 Valdimar Örnólfsson, íþróttafrömuður og skíðakappi, lést 20. apríl, 94 ára að aldri. Vísir greinir frá andlátinu. Foreldrar hans voru Örnólfur Valdimarsson kaupmaður og útgerðarmaður og Ragnildur Kristbjörg Þorvarðardóttir kennari og húsmóðir. Hann var einn áhrifamesti íþróttafrömuður landsins og varð landsþekktur fyrir leikfimiþætti sína í Ríkisútvarpinu á árunum 1957–1982. Valdimar átti stóran þátt í uppbyggingu skíðaíþróttar á Íslandi og stofnaði, ásamt...
MinningBirgir Valur Ágústsson er fallinn frá21. apríl 2026 Birgir Valur Ágústsson, verkfræðingur á Akureyri, er látinn 86 ára að aldri. Greint er frá andláti hans á Akureyri.net Hann fæddist á Þórshöfn 10. október 1939 og lést á hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri 14. apríl. Eiginkona hans er Ingunn Þóra Baldvins og eignuðust þau fimm börn. Foreldrar Birgis voru Helga Jóhanna Ágústsdóttir og Ágúst Georg Steinsson, og var hann þriðji...
MinningGunnsteinn Rúnar Gíslason er látinn17. apríl 2026 Gunnsteinn Rúnar Gíslason, sem um áratuga skeið gegndi lykilhlutverki í samfélaginu í Árneshreppi á Ströndum, er látinn, 93 ára að aldri. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi þann 13. apríl síðastliðinn. Mbl.is sagði frá andlátinu. Gunnsteinn fæddist 4. desember 1932 í Steinstúni í Norðurfirði og var sonur hjónanna Gísla Guðlaugssonar og Gíslínu Vilborgar Valgeirsdóttur. Hann átti þrjá albræður, þá...
MinningSvavar Sigmundsson er fallinn frá16. apríl 2026 Svavar Sigmundsson, fyrrverandi dósent og forstöðumaður Örnefnastofnunar Íslands, lést 11. apríl, 86 ára að aldri. Morgunblaðið greinir frá andláti hans. Hann fæddist 7. september 1939 í Túni í Hraungerðishreppi, sonur Sigmundar Ámundasonar og Guðrúnar Guðmundsdóttur. Svavar lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum að Laugarvatni 1958 og cand.mag.-prófi í íslensku frá Háskóla Íslands 1966. Hann starfaði sem lektor, sendikennari í Helsinki og Kaupmannahöfn,...