Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Gunnsteinn Rúnar Gíslason er látinn

Gunnsteinn Rúnar Gíslason er látinn

Gunn­steinn Rúnar Gíslason, sem um ára­tuga skeið gegndi lyk­il­hlut­verki í sam­fé­lag­inu í Árnes­hreppi á Ströndum, er lát­inn, 93 ára að aldri. Hann lést á Heil­brigð­is­stofnun Vest­ur­lands á Akranesi þann 13. apríl síð­ast­lið­inn. Mbl.is sagði frá and­lát­inu.

Gunn­steinn fædd­ist 4. des­em­ber 1932 í Steins­túni í Norð­ur­firði og var sonur hjón­anna Gísla Guð­laugs­sonar og Gíslínu Vil­borgar Val­geirs­dóttur. Hann átti þrjá albræður, þá Guðlaug, Ólaf Andrés og Ágúst, auk þess sem Trausti Magn­ús­son og Hilmar Hjart­ar­son ólust upp með honum.

Ungur að árum hóf Gunn­steinn nám, fyrst í Reykja­skóla í Hrúta­firði á árunum 1950 til 1952 og síðar í Sam­vinnu­skól­anum haustið 1952. Kenn­ara­starf varð hans fyrsta starfs­vett­vangur, en hann kenndi við Finn­boga­staða­skóla í Árnes­hreppi í fimm ár frá 1955.

Ævistarf hans mót­að­ist þó einkum af störfum í verslun og sveit­ar­stjórn. Hann var kaup­fé­lags­stjóri Kaup­fé­lags Stranda­manna í yfir þrjá ára­tugi, frá 1960 til 1993, og síðar úti­bús­stjóri Kaup­fé­lags Stein­gríms­fjarðar í Norð­ur­firði til árs­ins 2009.

Gunn­steinn tók sæti í sveit­ar­stjórn Árnes­hrepps árið 1958 og gegndi emb­ætti odd­vita frá 1971. Hann lét af störfum árið 2006 eftir 48 ára sam­fellt starf í sveit­ar­stjórn. Auk þess sinnti hann ýmsum öðrum störfum í heima­byggð, meðal ann­ars sem hafn­ar­stjóri í Norð­ur­firði og rekstr­ar­að­ili gisti­heim­il­is­ins Bergistanga í ald­ar­fjórð­ung.

Hann var jafn­framt virkur í kirkju­starfi og gegndi for­mennsku í sókn­ar­nefnd Árnes­sóknar í ára­tugi, frá 1986 til 2021. Þá stund­aði hann útgerð um langt skeið og gerði út trillur til grá­sleppu-, skak- og hákarla­veiða allt fram til árs­ins 2019.

Eig­in­kona hans var Margrét Jóns­dóttir frá Stóru-Ávík, fædd 1939. Þau eign­uð­ust fimm börn: Jón Unnar, Gíslínu Vilborgu, Guðrúnu, Gísla Baldvin og Álfheiði Hildi.

Síðustu ár ævinnar bjuggu Gunn­steinn og Margrét á Akranesi. Minn­ing­ar­at­höfn verður haldin í Akra­nes­kirkju næst­kom­andi mánu­dag klukkan 13 og útför fer fram í Árnes­kirkju á Ströndum 23. apríl, á sum­ar­dag­inn fyrsta, klukkan 14.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Minning

Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

Minning

Guðrún Birna Gísla­dóttir er látin

Minning

Björgvin Birg­is­son er fall­inn frá

Minning

Stein­grímur Ingi Björns­son fyrr­ver­andi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu lát­inn

Minning

Sig­ur­laug Guð­munds­dóttir Rósinkranz er fallin frá