Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Edda minnist Björgvins Halldórssonar

„Hann var klett­ur­inn okkar fjöl­skyld­unnar þegar Gísli dó“

Edda Björgvinsdóttir
Edda Björg­vins­dóttir Þjóð­ar­ger­semi minn­ist ann­arrar þjóð­ar­ger­semis Mynd: Þjóðleikhúsið

Leik­konan Edda Björg­vins­dóttir minn­ist stór­söngv­ar­ans Björgvin Hall­dórs­son með hlýjum og per­sónu­legum orðum í færslu á sam­fé­lags­miðlum en útför hans fer fram í Hall­gríms­kirkju klukkan 15:00 í dag.

Í færsl­unni lýsir hún djúpum sorgum og segir miss­inn þung­bæran fyrir bæði fjöl­skyldu og þjóð. „Himn­arnir gráta. Björgvin Hall­dórs­son okkar er far­inn. Hann var klett­ur­inn okkar fjöl­skyld­unnar þegar Gísli dó. Björgvin - vinur okkar og fjöl­skyldu­með­limur. Ómet­an­legur fjár­sjóður heillar þjóðar. Þetta er full­kom­lega óskilj­an­legt,“ skrifar Edda.

Hún rifjar upp náið sam­band fjöl­skyldn­anna í gegnum árin og segir þær hafa gengið saman í gegnum lífið, deilt gleði og sorgum og stutt hver aðra. „Ragn­heiður frænka mín varð skotin í sætu popp­stjörn­unni um svipað leyti og ég varð skotin í stóra Kaffi­brúsa­k­arl­inum og frá þeim tíma­punkti fylgd­umst við að í gegn um lífið - hlógum og grétum saman, ólum upp börnin okkar saman og stóðum við bakið hvert á öðru alla tíð,“ skrifar hún.

Edda lýsir sér­stak­lega stuðn­ingi Björg­vins á erf­iðum tímum eftir frá­fall eig­in­manns hennar, Gísla. „Þegar Gísli okkar dó þá steig Björgvin ákveðið inn, tók utan um fjöl­skyld­una og tjasl­aði okkur saman fyrstu vik­urnar. Hann skipu­lagði allt í kring um útför­ina, söngv­ar­ana, athöfn­ina, útsend­ing­una og bók­staf­lega hélt í okkur líf­inu.“

Hún segir erfitt að setja í orð hversu stórt hlut­verk Björgvin hafi gegnt í íslensku sam­fé­lagi. „Það er eig­in­lega ekki hægt að byrja að ræða þetta stór­veldi sem Björgvin var í lif­enda lífi enda hefur verið ótrú­lega mikið rætt og ritað um þessa þjóð­ar­eign. Allir kunna sögu af orð­snilld stór­söngv­ar­ans.“

Edda rifjar einnig upp hlýja nær­veru hans og ein­stakan per­sónu­leika. „„Don´t be a stranger“ sagði hann ef honum fannst líða of langt á milli heim­sókna. Stór orð eins og meist­ari, snill­ingur og þjóð­ar­ger­semi ná ekki að lýsa broti af því sem þessi ein­staki maður var í öllu sínu veldi.“

Að lokum sendir hún fjöl­skyldu hans sam­úð­ar­kveðjur

„Við elskum hann skil­yrð­is­laust og ég faðma heitt og inni­lega Ragn­heiði, Svölu, Krumma, Sigurð og stór­fjöl­skyldu Björg­vins og sendi mína dýpstu sam­úð­ar­kveðjur. Mig brestur orð. Þjóðin kveður ein­stakan dýr­grip með þungu hjarta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Öskurapi með vesen

Tveir gistu í fangageymslum lögreglu í nótt.
Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Minning

Séra Hjalti Þor­kels­son er fall­inn frá

„Og nú er hann flog­inn á braut í morg­un­birt­unni, dáinn, horf­inn, harma­fregn“

„Guðjón var með ótrú­lega áru og per­sónu­töfra“

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Borgþór Vest­fjörð Kjærne­sted er fall­inn frá