
Skúli Tómas Gunnlaugsson læknir, hefur eins og fram kom í fréttum í gær, verið ákærður fyrir manndráp af ásetningi en fimm önnur mál voru látin niður falla. Aðstandandi hins meinta fórnarlambs Skúla Tómasar hefur nú stigið fram með Facebook-færslu þar sem hann tjáir sig um málið.
Í færslunni skýtur hann föstum skotum á þá lækna sem opinberlega hafa stutt Skúla Tómas í málinu, þar á meðal Páll Matthíasson, geðlæknir og fyrrverandi forstjóri Landspítalans og Ragnar Freyr Ingvarsson, sérfræðingur í lyf- og gigtarlækningum, og landsþekktur mattgæðingur, en sagt var frá stuðningi þeirra á DV fyrir þremur árum.
„Það sem mig langar til að vita er hvað sá hópur af læknum sem hefur varið og stutt lífslokalækninn Skúla Tómas Gunnlaugsson í þessu máli hefur að segja,“ segir aðstandandinn í Facebook-færslu sem birtist í gær.
Hann heldur áfram:
„Nú hefur lögreglan rannsakað málið og komist að niðurstöðu, sent málið til ákæruvaldsins sem gefur út svo ákæru vegna manndráps. Kannski er þetta bara einn stór misskilingur?“
Að lokum tekur hann stjórnendur Landspítalans á teppið en Skúla Tómasi var leyft að starfa með sjúklingum á spítalanum á meðan lögreglan rannsakaði mál hans.
„Svo veltir maður fyrir sér hvað stjórnendur Landspítala hafa að segja. Þau hafa haft þennan mann í því að sinna sjúklingum á meðan lögreglan rannsakaði mál hans og á einnig á meðan saksóknari var með mál hans í ákærumeðferð.“

Komment