1
Fólk

Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins

2
Innlent

Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal

3
Innlent

Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli

4
Innlent

Magnús tekinn fram yfir fyrrverandi þingmann

5
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

6
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

7
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

8
Heimur

Áratugalöng leit endaði í faðmlagi systkina

9
Innlent

Bruggaði ólöglega af krafti á Selfossi en lögreglan tæmdi lagerinn

10
Fólk

Gömul sál í nýjum búningi í Hafnarfirði til sölu

Til baka

Eiríkur segir Guðrúnu hafa farið með „vísvitandi lygi“

„Með aðgerðum sínum tókst fáeinum fórnfúsum Íslendingum, aðallega konum, að bjarga tugum saklausra kvenna og barna úr bráðri lífshættu“

Guðrún Hafsteinsdóttir-2
Guðrún HafsteinsdóttirEiríkur hjólar í Guðrúnu í nýrri Facebook-færslu
Mynd: Víkingur

Eiríkur Rögnvaldsson prófessor emeritus gagnrýnir Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formann Sjálfstæðisflokksins, harðlega fyrir ummæli sem hún lét falla í þættinum Spursmál fyrir jól. Hann sakar hana um að hafa farið með ósannindi um aðkomu Íslendinga að því að flytja fólk frá Gasa en samtökin Solaris hefur nú kært Guðrúnu fyrir meiðyrði vegna ummæla hennar.

Í Facebook-færslu segir Eiríkur að það sé „hafið yfir allan vafa“ að Guðrún hafi ekki sagt satt þegar hún hélt því fram að „einstaklingar hér í samfélaginu voru að fara að landamærunum í Egyptalandi, til þess að ná fólki út sem enginn vissi deili á.“

Að sögn Eiríks hafi Guðrún vitað betur og bendir hann á að um hafi verið að ræða konur og börn sem þegar höfðu fengið hæli á Íslandi á grundvelli fjölskyldusameiningar og væru skráð hjá ráðuneyti hennar.

Hann segir:

„Það er þess vegna lygi, vísvitandi lygi, að „enginn vissi deili á“ þessu fólki. Það var allt skráð hjá ráðuneyti Guðrúnar.“

Kýs að trúa Solaris

Í færslunni fjallar Eiríkur einnig um ummæli Guðrúnar um meintar mútugreiðslur í tengslum við flutning fólks yfir landamæri. Hann segir ekki hægt að fullyrða um slíkt en bendir á að samtökin Solaris hafi neitað því að mútur hafi verið greiddar og að hann kjósi að trúa þeim þar til annað kemur í ljós.

Hann gagnrýnir jafnframt að slíkar ásakanir séu settar fram án sönnunargagna og segir þær alvarlegar í ljósi þess að Sjálfstæðisflokkurinn hafi lengi lagt áherslu á réttarríkið og meginregluna um að fólk sé saklaust uns sekt sé sönnuð.

„Sannleikurinn verður aukaatriði, eins og hjá Trump – það er nóg að sá fræjum þess að eitthvað vafasamt sé á ferðum og þá er býsna erfitt að bera það til baka.“

Segir mannúð gleymast í umræðunni

Eiríkur telur að meginatriði málsins hafi fallið í skuggann í umræðunni. Hann segir að með aðgerðum fáeinna Íslendinga hafi tekist að bjarga tugum kvenna og barna úr lífshættu.

„Með aðgerðum sínum tókst fáeinum fórnfúsum Íslendingum, aðallega konum, að bjarga tugum saklausra kvenna og barna úr bráðri lífshættu – fólki sem þegar hafði fengið hæli á Íslandi en ráðuneyti Guðrúnar og Bjarna Ben höfðu ekki sinnt að koma til bjargar.“

Að hans mati er gagnrýnivert að sú staðreynd hafi fengið litla athygli í samanburði við umræður um möguleg brot.

Bæti hann við að lokum:

„Hvað sem um meinta glæpi Palestínumanna á Íslandi er að segja er ljóst að þeir eru ekki framdir af þessum konum og börnum og það lýsir svo átakanlegum skorti á mannúð og mannkærleika að nefna þetta ekki heldur horfa eingöngu á meintar mútugreiðslur að manni er orða vant.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Merkúríus gæti verið að skreppa saman hraðar en áður var talið
Heimur

Merkúríus gæti verið að skreppa saman hraðar en áður var talið

Minnsta reikistjarna sólkerfisins minnkar og minnkar
Hundruðum leikfanga rigndi yfir knattspyrnuvöll í Tyrklandi
Myndband
Sport

Hundruðum leikfanga rigndi yfir knattspyrnuvöll í Tyrklandi

Stórfurðulegur þjófnaður á Suðurnesjum
Innlent

Stórfurðulegur þjófnaður á Suðurnesjum

Maó leitar að sögum í hversdagsleikanum
Menning

Maó leitar að sögum í hversdagsleikanum

Dansaði samfellt í tæpa 177 klukkustundir
Myndband
Heimur

Dansaði samfellt í tæpa 177 klukkustundir

Foreldrar börðust gegn barnavernd og höfðu betur
Innlent

Foreldrar börðust gegn barnavernd og höfðu betur

Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína
Heimur

Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga
Innlent

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga

Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike
Heimur

Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike

Stórfelldir fíkniefnainnflytjendur handteknir á Laugavegi
Innlent

Stórfelldir fíkniefnainnflytjendur handteknir á Laugavegi

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið
Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

Fékk veskið aftur 51 ári eftir að það týndist
Heimur

Fékk veskið aftur 51 ári eftir að það týndist

Tvö höfuð eru betri en eitt hjá þessari litlu skjaldböku
Myndband
Heimur

Tvö höfuð eru betri en eitt hjá þessari litlu skjaldböku

Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið
Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

„Ríkisstjórnin hamast við að moka flórinn eftir þessa sóða, en þeir standa á hliðarlínunni hrópandi ókvæðisorð“
Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning
Pólitík

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar
Pólitík

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu
Pólitík

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“
Pólitík

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

Loka auglýsingu