1
Fólk

Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins

2
Innlent

Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal

3
Innlent

Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli

4
Innlent

Magnús tekinn fram yfir fyrrverandi þingmann

5
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

6
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

7
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

8
Heimur

Áratugalöng leit endaði í faðmlagi systkina

9
Innlent

Bruggaði ólöglega af krafti á Selfossi en lögreglan tæmdi lagerinn

10
Fólk

Gömul sál í nýjum búningi í Hafnarfirði til sölu

Til baka

Kallar Guðrúnu „raðljúgandi valdafíkil“

„Þess vegna bið ég ykkur, íslenskir stjórnmálamenn: Haldið kjafti.“

Bragi Páll
Bragi PállBragi Páll skefur ekki af hlutunum
Mynd: Björgvin Gunnarsson

Rithöfundurinn Bragi Páll Sigurðsson gagnrýnir íslenska stjórnmálamenn harðlega í nýrri Facebook-færslu og sakar þá um að ala á ótta og fordómum í stað þess að takast á við raunveruleg vandamál samfélagsins.

Færslan hefst á skýrum orðum:

„Hættið að keyra yfir fólk!“

Hann segir stjórnmálamenn annaðhvort ófæra um að takast á við áskoranir eða einfaldlega áhugalausa

„Íslenskir stjórnmálamenn virðast annaðhvort ófærir um að takast á við raunverulegar áskoranir landsmanna, eða hreinlega áhugalausir. Ég veit ekki hvort er sorglegra.“

Ver aðgerðir vegna Gaza

Bragi Páll fjallar um aðgerðir Íslendinga sem fóru til Kaíró til að aðstoða fólk frá Gaza og segir þær hafa verið nauðsynlegar vegna aðgerðaleysis stjórnvalda:

„Við sem fórum til Kaíró á sínum tíma til að bjarga fólki frá Gaza gerðum það vegna þess að íslensk stjórnvöld voru augljóslega ekki að fara að gera neitt. Það er þjóðarmorð í gangi.“

Hann leggur áherslu á að um hafi verið að ræða viðkvæma hópa:

„Þarna var fyrst og síðast verið að bjarga konum, börnum og fárveiku fólki, einstaklingum sem voru þegar með samþykkta fjölskyldusameiningu á Íslandi.“

Þá hafnar hann alfarið ásökunum um mútur eða tengsl við hryðjuverk:

„Sú orðræða að greiddar hafi verið mútur til að flytja inn hryðjuverkamenn er ekki bara órökstudd lygi; hún er bókstaflega lífshættuleg.“

Sakar stjórnmálamenn um að ala á ótta

Bragi segir að orðræða stjórnmálamanna hafi raunverulegar afleiðingar:

„Þegar fólk í valdastöðu lýgur upp á almenna borgara hefur það afleiðingar. Þau búa til grýlur úr saklausu fólki svo þau geti stillt sjálfum sér upp sem grýlubönum.“

Hann bendir einnig á að allir sem hafi komið frá Gaza hafi farið í gegnum strangt ferli:

„Allir sem komust út af Gaza þurftu að sleppa í gegnum nálarauga þriggja stjórnvalda: Ísraels, Egyptalands og Íslands. Hver einasti einstaklingur þurfti að vera með hreinan skjöld.“

Segir stjórnmálin snúast um að dreifa athyglinni

Í færslunni segir Bragi að stjórnmálamenn reyni að beina athygli frá öðrum málum:

„Þeir egna fólki saman til að draga athyglina frá raunverulegum vanda Íslands: Háum vöxtum, fákeppni, okurdýru húsnæði og misskiptingu.“

Hann telur einnig að fordómar séu að aukast

„Kynþáttafordómar og ofbeldi gegn innflytjendum fara vaxandi. Ótti og einangrun eykst.“

Hvetur til samstöðu

Bragi Páll beinir beinum skilaboðum til stjórnmálamanna:

„Þess vegna bið ég ykkur, íslenskir stjórnmálamenn: Haldið kjafti. Ef þið ætlið ekki að leysa vandamálin sem við stöndum frammi fyrir, þá ættuð þið að minnsta kosti ekki að gera líf fólks enn verra með lygum og rasisma.“

Hann gagnrýnir einnig þá sem taki undir slíka orðræðu:

„Svo hef ég séð fólk sem ég þekki, gott fólk sem mér þykir vænt um, taka undir orð Guðrúnar og annarra raðljúgandi valdafíkla. Til þín sem kaupir þessa þvælu: Ekki láta óheiðarlegt fólk hræða þig. Innflytjendur eru ekki vandamálið í þínu lífi.“

Að lokum hvetur hann til samstöðu gegn sundrungu:

„Leyfum þeim ekki að sundra okkur. Öryggi okkar, lífsgæði og friður samfélagsins er í húfi.

Snúum bökum saman gegn þeim sem nota lygina sem vopn og sláum þau úr höndum þeirra. Þeim er alveg sama hvern er ekið yfir á meðan þau fá að sitja við stýrið. Hættum að láta keyra yfir okkur!“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Hundruðum leikfanga rigndi yfir knattspyrnuvöll í Tyrklandi
Myndband
Sport

Hundruðum leikfanga rigndi yfir knattspyrnuvöll í Tyrklandi

Áhorfendur vöktu athygli á aðstæðum palestínskra barna á Gaza.
Stórfurðulegur þjófnaður á Suðurnesjum
Innlent

Stórfurðulegur þjófnaður á Suðurnesjum

Maó leitar að sögum í hversdagsleikanum
Menning

Maó leitar að sögum í hversdagsleikanum

Dansaði samfellt í tæpa 177 klukkustundir
Myndband
Heimur

Dansaði samfellt í tæpa 177 klukkustundir

Foreldrar börðust gegn barnavernd og höfðu betur
Innlent

Foreldrar börðust gegn barnavernd og höfðu betur

Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína
Heimur

Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga
Innlent

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga

Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike
Heimur

Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike

Stórfelldir fíkniefnainnflytjendur handteknir á Laugavegi
Innlent

Stórfelldir fíkniefnainnflytjendur handteknir á Laugavegi

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið
Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

Fékk veskið aftur 51 ári eftir að það týndist
Heimur

Fékk veskið aftur 51 ári eftir að það týndist

Tvö höfuð eru betri en eitt hjá þessari litlu skjaldböku
Myndband
Heimur

Tvö höfuð eru betri en eitt hjá þessari litlu skjaldböku

Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið
Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

„Ríkisstjórnin hamast við að moka flórinn eftir þessa sóða, en þeir standa á hliðarlínunni hrópandi ókvæðisorð“
Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning
Pólitík

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar
Pólitík

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu
Pólitík

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“
Pólitík

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

Loka auglýsingu