
Anna Kristjánsdóttir, vélstjóri og húmoristi, segir farir sínar ekki sléttar gagnvart tveimur íslenskum konum á Los Cristianos á Tenerife, þar sem Anna hefur búið síðustu ár.
Í nýjustu dagbókarfærslu Önnu, sem hún birtir daglega á Facebook, segir hún frá tveimur íslenskum konum sem lýstu yfir miklum áhuga á að taka við leigu á íbúðinni sem Anna hefur dvalið í síðan hún flutti á eyjuna en hún hyggst nú flytja aftur heim til Íslands. Segir hún báðar konurnar hafa búið í litlum íbúðum og að önnur þeirra hafi sótt mikið í að taka við leigu Önnu.
„Eins og alþjóð ætti að vera kunnugt um, er ég að flytja til Íslands í vor og ekki bara það, tvær konur sem búa í nágrenninu voru tilbúnar til að taka yfir leiguna á íbúðinni sem ég bý í. Báðar bjuggu þær í litlum íbúðum með einungis einu svefnherbergi og með litlum svölum. Önnur þeirra sóttist stíft eftir íbúðinni minni og því óskaði ég þess sérstaklega við leigumiðlunina sem og eigandann að hún fengi íbúðina þegar ég héldi til Íslands sem þau samþykktu og tókst mér að ná samkomulagi um ásættanlegt leiguverð fyrir hennar hönd.“
Þannig hefst færsla Önnu en því næst segir hún frá því að konan hafi allt í einu hætt við allt saman og eftir standi Anna með skömmina.
„Í gærkvöldi fékk ég skilaboð frá umræddri manneskju sem tjáði mér að hún væri hætt við. Hin konan sem einnig bjó of þröngt í næsta íbúðakjarna ofan við mig var sömuleiðis hætt við og nú sit ég uppi með skömmina, að hafa aðstoðað Íslendinga um leigusamning á íbúðinni sem hættu svo við þegar samningurinn var tilbúinn.
Þetta segir mér það að treysta ekki fólki nema ég gjörþekki það.“

Komment