1
Innlent

Linda Pétursdóttir og fimmtíu aðrir vilja nýja stöðu verkefnastjóra sam­skipta

2
Innlent

Íris Helga kærði blaðamann DV

3
Peningar

Halla Tómasdóttir fær 100 milljónir í arð

4
Innlent

Bendir á hræsni Sjálfstæðismanna

5
Minning

Unnar Stefánsson er fallinn frá

6
Innlent

Bullandi tap hjá eigendum Morgunblaðsins

7
Heimur

Týndi Skotinn fundinn

8
Fólk

Egill Helgason um kanadískan fyrirlesara: „Hvílíkur endemis auli“

9
Pólitík

Hallgrímur hæðist að „hefnd flottu krakkanna“

10
Fólk

Hrefna ráðin í starfið

Til baka

Bendir á hræsni Sjálfstæðismanna

Víðir Reynisson sakaður um pólitískt inngrip af öðrum þingmönnum

Páll Magnússon
Páll Magnússon tók á móti listmanniSá fékk íslenskan ríkisborgara stuttu seinna.
Mynd: Alþingi

Mikið hefur rætt undanfarna daga um hinn unga Oscar Anders Florez Bocanegra en til stóð að vísa honum úr landi. Ákveðið var hins vegar fyrr í vikunni að fresta brottflutningi hans en Víðir Reynisson, formaður alls­herj­ar- og mennta­mála­nefndar Alþings, greip inn í málið.

Víðir sendi tölvupóst á útlend­inga­stofn­un og full­yrti að yf­ir­gnæf­andi lík­ur væru á því að Oscar myndi fá veitt­an ís­lensk­an rík­is­borg­ara­rétt frá Alþingi. Ákvað stofnunin því að fresta brottflutningi hans.

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins eru mjög ósáttir með þessa hegðun Víðis og hafa kallað hana pólitískt inngrip og sakað hann um trúnaðarbrest. Í viðtölum hefur Víðir sagt að hann standi við ákvörðun sína.

Í færslu á samfélagsmiðlum bendir Þórunn Ólafsdóttir á hræsni Sjálfstæðisflokksins í þessum efnum. „Hér skiptir máli hvort þú ert barn eða Albarn,“ skrifar Þórunn á Facebook og vísar þar í Damon Albarn, söngvara Blur og Gorillaz, en hann fékk ríkisborgararétt á Íslandi árið 2021 eftir að hafa heimsótt Pál Magnússon, þáverandi formann alls­herj­ar- og mennta­mála­nefndar Alþings, á Alþingi.

Þá hafi þingmenn ekki verið jafn ósáttir og nú.

„Ríkur, hvítur og frægur karl kíkti í kaffi til nefndarformanns hér um árið og sagðist vilja fá ríkisborgararétt, sem hann fékk. Páli þótti svo mikið til heimsóknarinnar koma að hann smellti myndinni af þeim félögum sjálfur á netið. Ég hef nákvæmlega ekkert á móti þvi að umræddur maður hafi fengið ríkisborgararétt, mér finnst bara ágætt að rifja upp hentisemi þessara háu herra.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Komment


sindri
Fólk

Verðlaunakokkur selur íbúð í Seljahverfi

Inga-Saeland-e1713029912932
Innlent

Inga segir Kvennaathvarfið lífsnauðsynlegt

Volker Turk
Heimur

Bandaríkjastjórn refsar fjórum dómurum með því að frysta eigur þeirra

Arne Bye
Heimur

Norskur kvensjúkdómalæknir dæmdur fyrir tugi nauðgana

Cho Tun Aung
Heimur

Sex ára stelpa handtekin vegna morðs á hershöfðingja

Þórshöfn við Þistilfjörð
Landið

„Ég náði dúninum en varpið fór forgörðum“

Kristrún Frostadóttir1
Pólitík

Kristrún gerir ekki það sama og Bjarni Ben

Loka auglýsingu