1
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

2
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

3
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

4
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

5
Heimur

Flugáhöfn þurfti að stöðva kynferðislega iðju í háloftunum

6
Pólitík

Tómas Þór sakar ríkisstjórnina um „skítkast“ og svikin loforð

7
Innlent

Almenningur fékk ekki að vita hvernig alvarleg sakamál enduðu

8
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

9
Peningar

Bændur kveðja sinn eigin lífeyrissjóð

10
Innlent

Kvörtun vegna erlendra ökuskírteina fékk ekki brautargengi

Til baka

Volæði Windsor-fjölskyldunnar

Beta Dís á barmi taugaáfalls, Fergie í felum og konungur í kreppu.

Andrew, Vilhjálmur og Katrín
Vilhjálmur, Andrew og KatrínVandræði Windsor-fjölskyldunnar eru nú stærri en nokkru sinni
Mynd: ADRIAN DENNIS / AFP

Fyrrverandi prinsinn Andrew eyddi stórum hluta 66 ára afmælis síns í haldi lögreglu. Hann var handtekinn grunaður um misferli í opinberu starfi, síðar sleppt en sætir áframhaldandi rannsókn, en í kjölfarið hefur komið fram að bresk stjórnvöld hyggist íhuga að svipta hann sæti í erfðaröðinni þegar öllum lögreglurannsóknum lýkur.

Andrew er nú áttundi í röðinni til krúnunnar, en ef öll samveldisríkin sem Karl III er þjóðhöfðingi yfir samþykkja, gæti þingið sett lög sem myndu afnema þetta síðasta formlega tákn konungsstöðu hans. Karl konungur hefur þegar svipt bróður sinn titlum og heiðursnafnbótum, en það hefur ekki dugað til að slá á reiði almennings vegna tengsla Andrews við hinn dæmda kynferðisbrotamann Jeffrey Epstein.

Birting milljóna skjala, svokallaðra Epstein-skjala, af hálfu bandaríska dómsmálaráðuneytisins hefur varpað nýju ljósi á vináttu Andrews og Epstein, sem og tengsl fyrrverandi eiginkonu hans, Söruh Ferguson við níðinginn. Á bak við luktar dyr stendur Windsor-ættin frammi fyrir einni alvarlegustu krísu í sögu sinni.

Óstöðugur og í afneitun

Sérfræðingar í málefnum konungsfjölskyldunnar segja að Andrew eigi erfitt með að sætta sig við fall sitt. Fyrrverandi fréttaritari BBC, Jennie Bond, segir hann lifa í stöðugum ótta um hvað komi næst í ljós. Aðrir heimildarmenn segja hann hafa neitað að yfirgefa Royal Lodge í Windsor og verið í afneitun gagnvart raunverulegri stöðu sinni.

Andrew er sagður hafa misst tengsl við raunveruleikann og halda enn í formlega ávarpið „Sir“ gagnvart starfsfólki, þrátt fyrir að hann hafi í raun enga eigin starfsmenn lengur. Heimildir herma einnig að hann sé æfur yfir því að þurfa að aflétta áformum um ríkisútför sína.

„[Hann] sá fyrir sér stórfenglega athöfn í kapellu heilags Georgs í Windsor, sem yrði sjónvarpað til syrgjandi þjóðar, en áætlanir hans hafa verið settar í tætarann.“

Karl konungur sleginn

Karl konungur er sagður „sundurlaus af sorg“ yfir handtöku bróður síns. Samkvæmt The Times hafði hann grun um að frekari upplýsingar um tengsl Andrews við Epstein myndu koma fram, en hafi tekið frásögn bróður síns trúanlega af tryggð. Nú hyggst hann þó styðja lögreglu að fullu í rannsóknum sínum, að sögn heimilda innan hallarinnar.

Dætur Andrews í krísu

Dætur Andrews, Berta Dís prinsessa og Evgenía prinsessa, eru sagðar eiga mjög erfitt með ástandið. Í Epstein-skjölunum koma fram tölvupóstar sem gefa til kynna að Beta Dís hafi, sem ung kona, verið hluti af félagslegum tengslum foreldra sinna við Epstein. Sérfræðingar segja slíkar upplýsingar „grimmilegar“ og afar þungbærar fyrir dótturina.

Heimildir herma að Beta Dís sé á barmi taugaáfalls og glími við umfang ásakana á hendur föður hennar. Evgenía á hins vegar að hafa slitið samskiptum við hann, meðal annars í ljósi starfa sinna með samtökum gegn mansali.

Ferguson í felum

Sarah Ferguson hefur haldið sig fjarri sviðsljósinu eftir að málið blossaði upp. Hún dvaldi um tíma á lúxus-heilsubótarmiðstöð í Sviss og er nú sögð vera í felum hjá vinum í Bretlandi, miður sín og sígrátandi. Höfundurinn Andrew Lownie telur að hún þurfi að bera vitni fyrir bandaríska þinginu um það sem hún viti um Epstein.

Þögn Harrýs og spenna hjá Vilhjálmi

Harrý prins hefur enn ekki tjáð sig opinberlega, þrátt fyrir að hafa áður gagnrýnt meðferð stofnunarinnar á máli Andrews í ævisögu sinni Spare. Heimildir segja ólíklegt að hann taki þátt í umræðunni nú.

Á sama tíma birtust Vilhjálmur krónprins og Katrín prinsessa opinberlega í fyrsta sinn eftir handtökuna á Bafta-hátíðinni. Líkamstjáningarsérfræðingar telja merki um bælda spennu hafa verið greinileg, og Vilhjálmur viðurkenndi sjálfur að hann væri ekki í „rólegu hugarástandi“.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Handtekinn fyrir fjóra mismunandi glæpi
Innlent

Handtekinn fyrir fjóra mismunandi glæpi

Íbúum fjölgar hlutfallslega mest í minnsta sveitarfélaginu
Innlent

Íbúum fjölgar hlutfallslega mest í minnsta sveitarfélaginu

Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal
Sport

Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu
Pólitík

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri
Pólitík

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á sambýliskonu sína
Innlent

Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á sambýliskonu sína

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni
Myndir
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

Grein sálfræðings um að læra að opna sig
Skoðun

Dávur í Dali

Grein sálfræðings um að læra að opna sig

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall
Heimur

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall

Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Myndband náðist af ódæðinu
Andrew Tate sagður hafa haft gróft klámefni með hesti og áli í fórum sínum
Heimur

Andrew Tate sagður hafa haft gróft klámefni með hesti og áli í fórum sínum

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall
Heimur

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl
Heimur

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum
Heimur

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum

Loka auglýsingu