1
Innlent

Húsnæðislaus og flogaveik einstæð móðir segist svikin af Reykjavíkurborg

2
Innlent

Margrét Löf segist vera „mjög lífsglöð og góðhjörtuð manneskja“

3
Innlent

Varað við neyslu á ferskum kjúklingi

4
Fólk

Selja eitt dýrasta einbýli Íslands

5
Innlent

Gagnrýnir harðlega drátt í sakamáli vegna andláts móður sinnar

6
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir slys

7
Sport

Sigmundur Davíð hrósar innflytjendum

8
Fólk

„Hann kunni ekki að biðja um hjálp“

9
Innlent

Óánægja með myndband Hagstofunnar um daglegt líf kvenna

10
Innlent

Telur launaskrið og verðbólgu vera yfirstéttinni að kenna

Til baka

Bið eftir geislameðferðum við „krabbameinum er komin langt úr hófi fram“

Framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins segir að „einn af hverjum þremur Íslendingum getur vænst þess að fá krabbamein einhvern tíma á ævinni og öll erum við aðstandendur“

Halla Þorvaldsdóttir
Halla ÞorvaldsdóttirFramkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Íslands
Mynd: Aðsend

Halla Þorvaldsdóttir framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins segir í grein að „einn af hverjum þremur Íslendingum getur vænst þess að fá krabbamein einhvern tíma á ævinni og öll erum við aðstandendur.“

Hún færir í tal að það sé misviðrasamt á landinu þessar vikurnar, skýjabakkar á ferðinni en bjart með köflum, og segir Halla að þetta sé „staða sem við Íslendingar þekkjum og erum þjálfuð í að takast á við. Við höfum regnjakkann við höndina þrátt fyrir að sólin skíni, því við þurfum að vera tilbúin fyrir hvað sem er.“

Halla nefnir að einn af hverjum þremur Íslendingum „getur vænst þess að fá krabbamein einhvern tíma á ævinni og öll erum við aðstandendur, en sem betur fer eru stöðugar framfarir í greiningu og meðferð krabbameina, afrakstur vísindastarfs um allan heim, sem leiðir bæði til þess að almennt lifir fólk lengur, eftir að hafa fengið krabbamein og dánartíðni af völdum þess lækkar.“

Hún segir að það sé heldur að „létta til en á sama tíma eru blikur á lofti. Krabbameinsfélagið hefur lengi vakið athygli á nauðsyn þess að koma upp skýrri, tímasettri og fjármagnaðri krabbameinsáætlun um hvernig takast eigi á við þær stóru áskoranir sem fylgja hraðri fjölgun krabbameinstilvika og sívaxandi hópi fólks sem þarf margs konar heilbrigðisþjónustu eftir krabbamein.“

Að meðaltali greindust 2.055 krabbameinstilvik á árunum 2019 til 2024, en Krabbameinsfélagið spáir því að tilvikin verði eitthvað um 3.000 talsins árið 2040. Í lok árs 2024 voru 19.154 á lífi sem höfðu fengið krabbamein og spár benda til þess að hópurinn telji að minnsta kosti 27.000 árið 2040.

Segir Halla að „þessi aukning er ekki nýtilkomin. Til samanburðar voru krabbameinstilvikin að meðaltali 1.190 á árunum 1999–2003. Fjölgunin nemur þannig 67% á 20 ára tímabili, langt umfram íbúafjölgun, og fram til ársins 2040 er spáð um 50% aukningu til viðbótar.“

Halla segir einfaldlega að heilbrigðisþjónustan hér á landi ráði illa við fjöldann „í dag og er ekki í stakk búin til að taka við aukningunni að óbreyttu“ og bætir því við að „á bakvið allar þessar tölur er svo auðvitað mikill fjöldi fólks. Það er krefjandi verkefni fyrir einstaklinga og fjölskyldur að takast á við krabbamein og því fylgir mikil óvissa.“

Halla er á því að spurningin sem blasir við íslensku samfélagi sé sú hvernig við ætlum standa með öllu þessu fólki og bregðast við einni stærstu heilbrigðisáskorun samtímans og hún spyr hvort að við „forgangsröðum fjármunum til að tryggja bestu mögulega meðferð og stuðning þannig að hægt sé að njóta lífsins með og eftir krabbamein?“

Halla spyr hvort við sem þjóð höfum kjark til að taka ákvarðanir er leiða til þess að færri fái krabbamein í framtíðinni og einnig hvort við séum tilbúin til að gera breytingar í skattamálum, auka hreyfingu á öllum skólastigum eða halda í takmarkanir á áfengissölu, svo eitthvað sé nefnt.

Hún segir að „afstaða Krabbameinsfélagsins er skýr en við þurfum afgerandi svör og skýra stefnu frá stjórnvöldum.

Í máli Höllu kemur fram að bið eftir geislameðferðum við sumum „krabbameinum er komin langt úr hófi fram, vísbendingar eru um að bið eftir skurðaðgerðum, við sumum meinum, sé líka að lengjast og við höfum dregist aftur úr varðandi innleiðingu krabbameinslyfja.“

Halla ljær máls á því að Krabbameinsfélagið hafi í nokkur ár „talað fyrir brýnni þörf fyrir nýja dag- og göngudeild blóð- og krabbameinslækninga á Landspítala, sem löngu hefur sprengt utan af sér húsnæðið. Eins og áður sagði fær hluti fólks með krabbamein ekki geislameðferð á réttum tíma, vegna þess að nauðsynlegt húsnæði, tækjabúnaður og starfsfólk er ekki til staðar.“

Að mati hennar eru í raun og veru „dökkir skýjabakkar framundan, sem ógna árangri hér á landi og geta gert það að verkum að við drögumst aftur úr nágrannaþjóðunum.“

Krabbameinsfélagið er með stærstu hagsmunasamtökunum á Íslandi og lætur sig allt varða er snýr að krabbameinum og félagið fundaði nýverið með forstjóra og forsvarsfólki krabbameinsþjónustunnar á Landspítala og lýsti þar yfir áhyggjum sínum bæði varðandi stöðuna í dag og til framtíðar.

„Sem betur fer talaði félagið ekki fyrir daufum eyrum á fundinum“ segir Halla og bætir við að „engum dylst að gríðarlegur metnaður er hjá starfsfólki spítalans um að krabbameinsþjónusta hér á landi sé fyrsta flokks.“ Hún segir það sama gilda um „starfsfólk á öðrum heilbrigðisstofnunum sem sinna fólki með krabbamein.“

Halla bendir á að „innan spítalans“ sé einnig verið að „leita leiða til að leysa húsnæðisvanda dag- og göngudeildar til bráðabirgða og í samstarfi við heilbrigðisráðuneyti og Sjúkratryggingar er unnið að því að leysa bið eftir geislameðferð, bæði með aukinni mönnun, meðal annars með ráðningu starfsfólks erlendis frá og samningaumleitunum við sjúkrahús erlendis.“

Halla bendir á að „starfsfólkið gerir þetta ekki eitt síns liðs“ því traustur stuðningur og skilningur „stjórnvalda er nauðsynlegur.“

Þann 2. júní síðastliðinn steig Alþingi „mikilvægt skref“ með samþykkt þingsályktunartillögu um „aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum“ til ársins 2030 og er óhætt að segja að „einhugur hafi verið á Alþingi í málinu, allir þingmennirnir 57 sem voru viðstaddir atkvæðagreiðsluna studdu hana, þvert á flokka,“ segir Halla.

Að hennar mati er aðgerðaáætlunin „mjög gott fyrsta skref í átt að virkri krabbameinsáætlun og blæs okkur byr í brjóst en björninn er ekki unninn“ því „áætlunin er einungis að mjög litlu leyti fjármögnuð og nær ekki til allra þátta, til dæmis ekki húsnæðis, tækja, lyfjamála eða mönnunar.“

Hún segir að hins vegar séu í henni aðgerðir er munu skipta máli til að tryggja áframhaldandi lækkun dánartíðni, aukna lifun og bætt lífsgæði þess stóra hóps sem fær krabbamein og aðstandenda þeirra.

„Þetta reddast ekki af sjálfu sér“ segir Halla og leggur áherslu á að við „þurfum að vera tilbúin, því með skýrum, markvissum og víðtækum aðgerðum og réttri forgangsröðun fjármuna getur skýjabakkinn gefið eftir og sólin náð að skína.“

Hún segir að lokum að „almenningur leggur traust sitt á Krabbameinsfélagið í baráttunni gegn krabbameinum sem félagið rekur fyrir öflugan stuðning fólksins í landinu“ og félagið tekur hlutverk sitt sem öflugan málsvara almennings „alvarlega og mun fylgjast þétt með framgangi mála, því lífið liggur við.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Selja eitt dýrasta einbýli Íslands
Myndir
Fólk

Selja eitt dýrasta einbýli Íslands

Var byggt árið 2008
Kristján Ágúst verður bráðlega vígður
Landið

Kristján Ágúst verður bráðlega vígður

Vestfirðingur ákærður fyrir að hrækja í andlit lögreglumanns
Innlent

Vestfirðingur ákærður fyrir að hrækja í andlit lögreglumanns

Telur launaskrið og verðbólgu vera yfirstéttinni að kenna
Innlent

Telur launaskrið og verðbólgu vera yfirstéttinni að kenna

Fluttur á bráðamóttöku eftir slys
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir slys

Margrét Löf segist vera „mjög lífsglöð og góðhjörtuð manneskja“
Innlent

Margrét Löf segist vera „mjög lífsglöð og góðhjörtuð manneskja“

„Hann kunni ekki að biðja um hjálp“
Viðtal
Fólk

„Hann kunni ekki að biðja um hjálp“

Húsnæðislaus og flogaveik einstæð móðir segist svikin af Reykjavíkurborg
Innlent

Húsnæðislaus og flogaveik einstæð móðir segist svikin af Reykjavíkurborg

Gagnrýnir harðlega drátt í sakamáli vegna andláts móður sinnar
Innlent

Gagnrýnir harðlega drátt í sakamáli vegna andláts móður sinnar

Rússneskur lögreglumaður sem barðist gegn barnaníði ákærður fyrir landráð
Heimur

Rússneskur lögreglumaður sem barðist gegn barnaníði ákærður fyrir landráð

Reiði vegna hrópa Tourette-aðgerðarsinna á Bafta
Myndband
Heimur

Reiði vegna hrópa Tourette-aðgerðarsinna á Bafta

Varað við neyslu á ferskum kjúklingi
Innlent

Varað við neyslu á ferskum kjúklingi

Innlent

Vestfirðingur ákærður fyrir að hrækja í andlit lögreglumanns
Innlent

Vestfirðingur ákærður fyrir að hrækja í andlit lögreglumanns

Lögreglumaðurinn var við skyldustörf
Gagnrýnir harðlega drátt í sakamáli vegna andláts móður sinnar
Innlent

Gagnrýnir harðlega drátt í sakamáli vegna andláts móður sinnar

Telur launaskrið og verðbólgu vera yfirstéttinni að kenna
Innlent

Telur launaskrið og verðbólgu vera yfirstéttinni að kenna

Fluttur á bráðamóttöku eftir slys
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir slys

Margrét Löf segist vera „mjög lífsglöð og góðhjörtuð manneskja“
Innlent

Margrét Löf segist vera „mjög lífsglöð og góðhjörtuð manneskja“

Húsnæðislaus og flogaveik einstæð móðir segist svikin af Reykjavíkurborg
Innlent

Húsnæðislaus og flogaveik einstæð móðir segist svikin af Reykjavíkurborg

Loka auglýsingu