Allt ætlaði um koll að keyra á samfélagsmiðlum um helgina þegar tónlistar- og útvarpskonan Salka Sól Eyfeld tilkynnti að hún fengi ekki að halda áfram með útvarpsþátt sinn sem hefur verið á dagskrá árum saman á Rás 2.
„Ég hefði svo innilega viljað halda áfram að vakna með ykkur um helgar en ákvörðunin um að þættinum yrði ekki framhaldið á dagskrá Rásar 2 var ekki mín,“ skrifaði Salka meðal annars í færslu á samfélagsmiðlum.
Í kjölfar þess að hún skrifaði færsluna hafa þúsundir athugasemda verið skrifaðar í athugasemdakerfum Facebook og fjölmiðla og er ljóst að fólk á eftir að sakna þess að hlusta á Sölku í útvarpinu.
Samkvæmt Matthíasi Má Magnússyni, dagskrárstjóra Rásar 2, hefur Salka staðið sig vel í starfi sínu en segir að brotthvarf hennar sé hluti af stórum breytingum á Rás 2.
„Salka Sól hefur verið í fjölmörgum þáttum á Rás 2 og á RÚV undanfarin ár, og ég vona innilega að vegir RÚV og Sölku eigi eftir að liggja saman í framtíðinni, þótt sunnudagsþættirnir hafi verið aflagðir. Salka hefur staðið sig mjög vel í þáttagerð og notið vinsælda og rödd hennar mun vonandi heyrast áfram í íslensku útvarpi,“ sagði Matthías við fyrirspurn Mannlífs.
„Breytingarnar á sunnudögum eru partur af viðameiri breytingum á dagskrá Rásar 2 sem verið er að innleiða hægt og bítandi og hlustendur munu verða varir við á komandi vikum og mánuðum.“


Komment