1
Heimur

Spítali kærir sjúkling sem neitar að fara

2
Innlent

Sóleyju Tómasdóttur hótað af ofbeldismanni

3
Heimur

Faðir stúlku sem lést úr heilahimnubólgu í Kent lýsir veikindunum

4
Menning

Birnir er enginn venjulegur gæi

5
Fólk

Óska eftir tilboðum í risastórt einbýli í Garðabæ

6
Pólitík

Guðmundur Árni og Kommúnistaflokkurinn ósammála um ástæðu Kínaferðar

7
Heimur

Fjórtán ára Svíi talinn sekur um morð og morðtilraun

8
Landið

Þýskt herskip við Vopnafjörð

9
Innlent

Einn látinn eftir sprenginguna í Korngörðum

10
Innlent

Ragna fær nýtt embætti

Til baka

Buffy-stjarna lést í svefni

„Fjölskyldan biður um næði á þessum tíma á meðan við syrgjum missinn“

Buffy
Nickolas og meðleikkonur hans í BuffyBuffy-þættirnir voru gríðarlega vinsælir á sínum tíma

Leikarinn Nicholas Brendon, sem var hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Xander Harris í sjónvarpsþáttunum Buffy the Vampire Slayer á árunum 1997 til 2003, er látinn, 54 ára að aldri.

Nicholas Brendon
Mynd: ARAYA DOHENY / GETTY IMAGES VIA AFP

Brendon lést í svefni í gær, föstudaginn 20. mars af náttúrulegum orsökum, að því er fjölskylda hans staðfesti í tilkynningu á Facebook-síðu hans.

„Við erum miður okkar yfir því að tilkynna andlát bróður okkar og sonar, Nicholas Brendon. Hann lést í svefni af náttúrulegum orsökum,“ sagði í yfirlýsingunni. „Fjölskyldan biður um næði á þessum tíma á meðan við syrgjum missinn og minnumst manns sem lifði með ákefð, ímyndunarafli og hjarta.“

Brendon fæddist í Los Angeles í Kaliforníu og öðlaðist frægð á tíunda áratugnum fyrir hlutverk sitt í Buffy the Vampire Slayer, þar sem hann lék í nær öllum 144 þáttum þáttaraðarinnar.

Hann kom einnig fram í þáttunum Criminal Minds þar sem hann lék Kevin Lynch á árunum 2007 til 2014.

Fjölskylda hans sagði jafnframt að þótt flestir þekktu hann fyrir leiklistina hefði hann á síðustu árum fundið nýja ástríðu í myndlist.

„Á síðustu árum fann Nicky mikla ástríðu í málun og listsköpun. Hann elskaði að deila þeim hæfileika sínum með fjölskyldu, vinum og aðdáendum. Hann var ástríðufullur, viðkvæmur og óþreytandi í sköpun sinni. Þeir sem þekktu hann best vissu að listin var ein hreinasta spegilmynd hans,“ sagði í yfirlýsingunni.

Þar kom einnig fram að Brendon hefði átt við erfiðleika að stríða á lífsleiðinni en hafi verið í meðferð og bjartsýnn á framtíðina þegar hann lést.

Áður en hann sló í gegn í Buffy the Vampire Slayer hafði hann einnig komið fram í vinsælum þáttum á borð við Dave’s World og Married… With Children.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Bloggarinn sem gagnrýndi Pútín kominn á geðsjúkrahús
Heimur

Bloggarinn sem gagnrýndi Pútín kominn á geðsjúkrahús

„Vladimir Putin verður að segja af sér og sæta réttarhöldum sem stríðsglæpamaður og þjófur.“
Fann járnvír flæktan í aspasnum
Innlent

Fann járnvír flæktan í aspasnum

Lögreglan bað Slökkviliðið um aðstoð í nótt
Innlent

Lögreglan bað Slökkviliðið um aðstoð í nótt

Segir samkomulag hafa verið í burðarliðnum þegar árásir hófust
Heimur

Segir samkomulag hafa verið í burðarliðnum þegar árásir hófust

Ísraelar banna bænir við Al-Aqsa á Eid-hátíðinni
Heimur

Ísraelar banna bænir við Al-Aqsa á Eid-hátíðinni

Shia LaBeouf tók tryllingskast á lögreglumenn
Myndband
Heimur

Shia LaBeouf tók tryllingskast á lögreglumenn

Einn látinn eftir sprenginguna í Korngörðum
Innlent

Einn látinn eftir sprenginguna í Korngörðum

Goðsögnin Chuck Norris er látin
Heimur

Goðsögnin Chuck Norris er látin

Breskur blaðamaður heppinn að sleppa lifandi frá loftárás Ísraelshers
Myndband
Heimur

Breskur blaðamaður heppinn að sleppa lifandi frá loftárás Ísraelshers

Ragga nagli varar við „endurkomu mjónulúkksins“
Fólk

Ragga nagli varar við „endurkomu mjónulúkksins“

Sóleyju Tómasdóttur hótað af ofbeldismanni
Innlent

Sóleyju Tómasdóttur hótað af ofbeldismanni

Þýskt herskip við Vopnafjörð
Landið

Þýskt herskip við Vopnafjörð

Heimur

Bloggarinn sem gagnrýndi Pútín kominn á geðsjúkrahús
Heimur

Bloggarinn sem gagnrýndi Pútín kominn á geðsjúkrahús

„Vladimir Putin verður að segja af sér og sæta réttarhöldum sem stríðsglæpamaður og þjófur.“
Goðsögnin Chuck Norris er látin
Heimur

Goðsögnin Chuck Norris er látin

Segir samkomulag hafa verið í burðarliðnum þegar árásir hófust
Heimur

Segir samkomulag hafa verið í burðarliðnum þegar árásir hófust

Ísraelar banna bænir við Al-Aqsa á Eid-hátíðinni
Heimur

Ísraelar banna bænir við Al-Aqsa á Eid-hátíðinni

Shia LaBeouf tók tryllingskast á lögreglumenn
Myndband
Heimur

Shia LaBeouf tók tryllingskast á lögreglumenn

Loka auglýsingu