1
Fólk

Björgvin Franz kominn með kærustu

2
Minning

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París

3
Minning

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin

4
Heimur

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi

5
Minning

Hörður Torfa kveður Megas

6
Sport

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu

7
Innlent

Lögreglan leitar að tveimur mönnum

8
Innlent

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar

9
Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur

10
Innlent

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann

Til baka

Gagnrýnir Facebook-færslu Stebba Jak harðlega

„Slík umfjöllun á ekkert erindi í opinbera umræðu“

Stebbi Jak 2
Stefán var söngvari DimmuSævar er afar ósáttur við skrif Stebba Jak
Mynd: Facebook/Stebbi Jak

Lögmaður mannsins sem kærði tónlistarmanninn Stefán Jakobsson fyrir líkamsárás segir óásættanlegt að vegið sé að persónu umbjóðanda síns í gegnum samfélagsmiðla og fjölmiðla. Frá því segir Vísir. Stefán var sýknaður í málinu fyrr í vikunni og tilkynnti í kjölfarið á Facebook að hann hygðist hætta sem söngvari hljómsveitarinnar Dimmu, í langri færslu sem vakti gríðarlega athygli.

Sævar Þór Jónsson, lögmaður mannsins, sendi frá sér yfirlýsingu þar sem hann undirstrikar að „lögvarinn réttur hvers manns að tjá sig um niðurstöðu dómsmála“ sé ótvíræður. Hann telur þó að Stefán, sem gengur undir nafninu Stebbi Jak, hafi farið yfir strikið í Facebook-færslunni sem hann birti í gær.

Í yfirlýsingunni segir að þar sé „vegið að æru umbjóðanda míns, hann titlaður „gerandi“ og fjallað um persónulega heilsufarssögu hans og viðkvæm einkamálefni á opinberum vettvangi“.

Sævar gagnrýnir sérstaklega það sem hann kallar atlögu að friðhelgi einkalífs, þar sem upplýsingar úr sjúkraskrám og öðrum viðkvæmum gögnum séu dregnar fram opinberlega. Slík umfjöllun eigi ekki heima í opinberri umræðu og geti valdið frekara tjóni. Að hans mati gefi hún jafnframt „ranga og einhliða mynd af málavöxtum“.

Í yfirlýsingu sinni rakti Stebbi Jak atburðarás málsins sem staðið hefur yfir í tvö og hálft ár. Færslan bar yfirskriftina „Hættur í Dimmu“, en þar tilkynnti hann jafnframt brotthvarf sitt úr hljómsveitinni. Sagði hann ástæðu þess meðal annars vera ágreining við bassaleikarann Silla Geirdal og eiginkonu hans, sem hann telur hafa tekið afstöðu gegn sér vegna tengsla við kærandann.

Í færslunni segir Stebbi meðal annars: „Í gær lauk tveggja og hálfs árs óvissutíma með skýrum sýknudómi vegna ákæru um líkamsárás. Ég hafði alltaf trú á að þetta færi vel, en léttirinn að fá þetta staðfest er ólýsanlegur.“ Hann kveðst jafnframt munu vísa til mannsins sem áður var nefndur „brotaþoli“ sem „geranda“.

Í yfirlýsingu lögmannsins er jafnframt bent á að dómur héraðsdóms sé ekki endanleg niðurstaða þar sem áfrýjunarfrestur sé enn í gildi. Ríkissaksóknari hefur fjórar vikur til að áfrýja niðurstöðu málsins.

Að lokum segir í yfirlýsingunni að umbjóðandi hans muni ekki bregðast við einstökum ásökunum opinberlega, þar sem slíkur málflutningur „dæmi sig sjálfur“.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlýsingu Sævars í heild sinni:

Yfirlýsing vegna opinberrar umfjöllunar Stefáns Jakobssonar

Undirritaður lögmaður sendir frá sér eftirfarandi athugasemd fyrir hönd umbjóðanda míns vegna yfirlýsingar sem Stefán Jakobsson birti á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum.

Það er lögvarinn réttur hvers manns að tjá sig um niðurstöðu dómsmála, en það er hins vegar með öllu óásættanlegt að nýta slíkan vettvang til að vega að persónu umbjóðanda míns með þeim hætti sem gert er. Í yfirlýsingunni er vegið að æru umbjóðanda míns, hann titlaður „gerandi“ og fjallað um persónulega heilsufarssögu hans og viðkvæm einkamálefni á opinberum vettvangi.

Sérstaklega er mótmælt þeirri atlögu að friðhelgi einkalífs umbjóðanda míns sem felst í því að draga fram upplýsingar úr sjúkraskrám og persónulegum högum til að sverta ímynd hans. Slík umfjöllun á ekkert erindi í opinbera umræðu, er til þess fallin að valda frekari skaða og dregur upp ranga og einhliða mynd af málavöxtum.

Rétt er að árétta að niðurstaða héraðsdóms er ekki endanleg þar sem áfrýjunarfrestur er enn yfirstandandi. Að öðru leyti mun umbjóðandi minn ekki svara einstökum ásökunum eða fullyrðingum Stefáns á opinberum vettvangi, enda er það mat okkar að slíkur málflutningur dæmi sig sjálfur.

Lögð er rík áhersla á að fjölmiðlar sýni ábyrgð og gæti þess að gerast ekki málpípa fyrir ómálefnalegar dylgjur og opinbera útlistun á viðkvæmum persónuupplýsingum.

Fyrir hönd umbjóðanda míns.

Virðingarfyllst,

Sævar Þór Jónsson hrl.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur
Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur

Myndefni sýnir tvo menn sem lögreglan leitar nú að.
Lögreglan leitar að tveimur mönnum
Innlent

Lögreglan leitar að tveimur mönnum

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi
Heimur

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann
Innlent

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann

Katie Couric missti minnið tímabundið
Heimur

Katie Couric missti minnið tímabundið

Björgvin Franz kominn með kærustu
Fólk

Björgvin Franz kominn með kærustu

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París
Minning

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar
Innlent

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin
Minning

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu
Sport

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum
Innlent

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur
Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur

Myndefni sýnir tvo menn sem lögreglan leitar nú að.
Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Lögreglan leitar að tveimur mönnum
Innlent

Lögreglan leitar að tveimur mönnum

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann
Innlent

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar
Innlent

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum
Innlent

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum

Loka auglýsingu