
Donald Trump Bandaríkjaforseti brást skjótt við fregnum af andláti fyrrverandi forstjóra FBI, Robert Mueller, og fagnaði andlátinu.
Fjölskylda Mueller staðfesti andlátið í yfirlýsingu til New York Times og sagði hann hafa látist í gær. Ekki var greint frá dánarorsök.
Forseti Bandaríkjanna skrifaði í tilefni af fregnunum á Truth Social: „Gott, ég er glaður að hann sé dáinn. Hann getur ekki lengur skaðað saklaust fólk!“
Samband Trump og Mueller var afar stirt á meðan rannsókn Mueller á afskiptum Rússa af forsetakosningunum 2016 stóð yfir. Trump gagnrýndi rannsóknina stöðugt og kallaði hana „nornaveiðar“.
Skýrsla Mueller fann ekki næg sönnunargögn til að ákæra Trump fyrir samráð við Rússland, en hreinsaði hann þó ekki af grun um mögulega réttartálmun. Niðurstaðan varð því umdeild, þar sem Trump lýsti yfir fullum sigri á sama tíma og niðurstöðurnar vöktu áfram spurningar.

Komment