
Úkraínskir drónar gerðu árásir á nokkur svæði í Rússlandi í nótt og ollu bæði skemmdum á innviðum og eldsvoðum, á sama tíma og yfirvöld í Dagestan hafa hafið neyðarbólusetningar vegna hættu á smitsjúkdómum eftir flóð.
Samkvæmt rússneskum yfirvöldum voru samtals 87 úkraínskir drónar skotnir niður yfir fjölmörgum svæðum, þar á meðal Sánkti Pétursborg-, Nizhny Novgorod-, Belgorod- og Kursk-svæðunum auk Krímskaga sem er undir stjórn Rússa.
Í Leningrad-héraði voru 19 drónar skotnir niður. Brak úr þeim olli skemmdum á hluta olíuleiðslu nálægt hafnarborginni Primorsk, en engin slys urðu á fólki. Yfirvöld sögðu unnið væri að öruggri losun úr leiðslunni.
Í Nizhny Novgorod-héraði voru 30 drónar stöðvaðir yfir iðnaðarsvæði í Kstovo. Þar olli brak skemmdum á tveimur verksmiðjum olíufélagsins Lukoil og kviknaði í kjölfarið eldur. Þá varð einnig tjón á varmaorkuveri, íbúðarhúsum og lóðum, og urðu sum heimili rafmagnslaus.
Neyðarástand vegna hamfaraflóða
Á sama tíma standa yfir viðbrögð við neyðarástandi í Dagestan eftir miklar flóðhamfarir. Heilbrigðisyfirvöld hafa hafið bráðabólusetningar gegn lifrarbólgu A til að koma í veg fyrir mögulegan faraldur.
Bólusetningarnar beinast einkum að starfsfólki í matvælaiðnaði, leikskólum, skólum og heilbrigðisþjónustu, auk viðbragðsaðila og fólks sem hefur þurft að yfirgefa heimili sín vegna flóðanna.
Fyrr í vikunni veiktust yfir 30 manns í borginni Kaspiisk, að því er talið er vegna mengaðs drykkjarvatns, og hefur rannsókn verið hafin á málinu.
Flóðin, sem urðu í kjölfar mikilla rigninga í lok mars, hafa haft víðtæk áhrif í Norður-Kákasus. Tugir þúsunda misstu rafmagn, samgöngur raskaðust og járnbrautir skemmdust. Um 800 heimili fóru undir vatn og yfir 3.000 manns voru fluttir á brott.

Komment