
Í gjafavöruverslun á áströlskum flugvelli, þar sem hillur voru fullar af mjúkum leikfangadýrum, vakti ein loðin pokarotta sérstaka athygli, Stóru brúnu augun hennar hreyfðust.
Farþegi sem var að skoða í verslun á brottfararsvæði á Hobart-flugvelli í Tasmaníu kom auga á lifandi pokamús sem kíkti út á milli leikfangakengúra, að sögn verslunarstjórans Liam Bloomfield.
„Farþegi lét einn starfsmann vita, sem átti erfitt með að trúa því sem hún heyrði,“ sagði Bloomfield. „Hún hafði svo samband við flugvallarstjórn og sagði: við erum með pokarottu í búðinni.“
Starfsmaður náði myndbandi af dýrinu áður en það varð vart við athyglina og fór út úr versluninni.
Starfsfólki flugvallarins tókst síðar að fjarlægja pokarottuna án þess að hún skaðaðist.
„Ég ímynda mér að hún hafi séð tuskudýrin sem voru til sölu í hillunni og ákveðið að búa sér heimili með þeim. Hún vildi falla inn í hópinn,“ sagði Bloomfield í gríni.
Óljóst er hvernig pokarottan komst inn í verslunina eða hversu lengi hún var þar. Ólíklegt er talið að um grín hafi verið að ræða, þar sem einhver hefði þá þurft að fara með dýrið í gegnum röntgenskoðun til að komast með það inn á lokað brottfararsvæði.

Komment