1
Fólk

Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins

2
Innlent

Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal

3
Innlent

Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli

4
Innlent

Magnús tekinn fram yfir fyrrverandi þingmann

5
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

6
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

7
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

8
Heimur

Áratugalöng leit endaði í faðmlagi systkina

9
Innlent

Bruggaði ólöglega af krafti á Selfossi en lögreglan tæmdi lagerinn

10
Fólk

Gömul sál í nýjum búningi í Hafnarfirði til sölu

Til baka

Segir orðalag Miðflokksins rangt í þingályktunartillögu

„Getur verið að orðið „hylming“ sé þarna ranglega notað vitandi vits?“

Eiríkur Rögnvaldsson
Eiríkur og frúBrot á lögum ef þingsályktunin verður samþykkt?
Mynd: Facebook

Eiríkur Rögnvaldsson, uppgjafaprófessor í íslenskri málfræði, gagnrýnir orðalag í nýrri þingsályktunartillögu Miðflokksins þar sem lagt er til að undirbúa lög um „bann við hylmingu andlits“.

Í færslu á samfélagsmiðlum bendir Eiríkur á að hugtakanotkunin sé röng og útskýrir að „þarna er nafnorðið „hylming“ látið samsvara sögninni „hylja“ sem er rangt – „hylming“ er lögfræðilegt íðorð, leitt af sögninni „hylma“ en ekki „hylja“, og hefur aðra merkingu samkvæmt bæði Íslenskri nútímamálsorðabók og Lögfræðiorðasafni (vísar til auðgunarbrots).“

Hann segist í fyrstu hafa talið um einföld mistök að ræða og hafi bent á að annað orð hefði átt betur við: „Í fyrstu hélt ég að hinir sjálfskipuðu verndarar íslenskunnar í Miðflokknum hefðu þarna skriplað á skötu eins og getur komið fyrir besta fólk, og skrifaði um þetta pistil þar sem ég benti á að orðið „hulning“ væri fornt orð sem hefði átt þarna við – en ekki „hylming“.“

Við nánari skoðun hafi hann þó farið að efast um að um mistök sé að ræða. Hann bendir á að meðal flutningsmanna tillögunnar séu sérfræðingar sem ættu að þekkja rétt orðalag: „Í hópi tillöguflytjenda er bæði lögfræðingur og íslenskufræðingur sem hefðu átt að vita betur og átta sig á að „hylming“ á ekki við þarna.“

Eiríkur veltir því upp hvort orðavalið kunni að vera meðvitað: „Getur verið að orðið „hylming“ sé þarna ranglega notað vitandi vits til að vekja neikvæðar kenndir hjá þingmönnum og almenningi?“

Hann tekur þó fram að hann geti ekki fullyrt um slíkt, en segir það mögulega samræmast umræðu sem hann telur vera í gangi: „Ég get auðvitað ekkert fullyrt um það, en það væri þá í anda þeirrar áróðursherferðar sem Morgunblaðið og Miðflokkurinn eru nú í gagnvart múslimum.“

Í annarri Facebook-færslu birtir Eiríkur ljósmynd frá árinu 2020 sem sýnir hann og eiginkonu hans með grímur fyrir andlitinu. Við færsluna skýtur hann á Miðflokkinn og segir: „Hér má sjá skýrt brot á væntanlegum lögum um "bann við hylmingu andlits".“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Merkúríus gæti verið að skreppa saman hraðar en áður var talið
Heimur

Merkúríus gæti verið að skreppa saman hraðar en áður var talið

Minnsta reikistjarna sólkerfisins minnkar og minnkar
Hundruðum leikfanga rigndi yfir knattspyrnuvöll í Tyrklandi
Myndband
Sport

Hundruðum leikfanga rigndi yfir knattspyrnuvöll í Tyrklandi

Stórfurðulegur þjófnaður á Suðurnesjum
Innlent

Stórfurðulegur þjófnaður á Suðurnesjum

Maó leitar að sögum í hversdagsleikanum
Menning

Maó leitar að sögum í hversdagsleikanum

Dansaði samfellt í tæpa 177 klukkustundir
Myndband
Heimur

Dansaði samfellt í tæpa 177 klukkustundir

Foreldrar börðust gegn barnavernd og höfðu betur
Innlent

Foreldrar börðust gegn barnavernd og höfðu betur

Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína
Heimur

Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga
Innlent

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga

Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike
Heimur

Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike

Stórfelldir fíkniefnainnflytjendur handteknir á Laugavegi
Innlent

Stórfelldir fíkniefnainnflytjendur handteknir á Laugavegi

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið
Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

Fékk veskið aftur 51 ári eftir að það týndist
Heimur

Fékk veskið aftur 51 ári eftir að það týndist

Tvö höfuð eru betri en eitt hjá þessari litlu skjaldböku
Myndband
Heimur

Tvö höfuð eru betri en eitt hjá þessari litlu skjaldböku

Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið
Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

„Ríkisstjórnin hamast við að moka flórinn eftir þessa sóða, en þeir standa á hliðarlínunni hrópandi ókvæðisorð“
Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning
Pólitík

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar
Pólitík

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu
Pólitík

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“
Pólitík

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

Loka auglýsingu