1
Innlent

Mollý nú löglegt á Íslandi

2
Minning

Margrét Jónsdóttir er fallin frá

3
Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“

4
Heimur

Paola Márquez látin aðeins 30 ára gömul

5
Innlent

Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl

6
Heimur

Ferðamaður lést á Kanarí

7
Innlent

Innkalla hættulegar bílstólafestingar

8
Fólk

Draumaeinbýli í miðbænum til sölu

9
Innlent

Hundar halda áfram að bíta fólk í Reykjavík

10
Heimur

Hitamet slegið í Noregi

Til baka

Halldóra segir stríðið gegn fíkniefnum ýta undir ofbeldi og ójöfnuð

„Það væri gæfuspor fyrir okkur Íslendinga að læra af mistökum Svía“

Halldóra Mogensen
Halldóra MogensenHalldóra vill að íslensk yfirvöld læri af mistökum Svía
Mynd: Facebook

Halldóra Mogensen, fyrrverandi þingmaður Pírata, segir að þróun í Svíþjóð sýni afleiðingar strangrar refsi- og bannstefnu í vímuefnamálum. Þetta kemur fram í færslu sem hún birti á Facebook þar sem hún vísar til fréttar um 15 ára stúlku sem framdi morð fyrir Foxtrot-glæpagengið í Svíþjóð.

Í færslunni bendir Halldóra á að lönd með slíka stefnu glími við alvarlegri glæpavanda en þau sem beita skaðaminnkandi nálgun. „Svíþjóð og önnur lönd með stranga refsi- og bannstefnu í vímuefnamálum eru að sjá meiri og verri glæpi en lönd sem taka upp skaðaminnkandi nálgun. Svíþjóð, með eina ströngustu vímuefnastefnu í vestur Evrópu, hefur nú lang versta gengjavandann á Norðurlöndunum.“

Hún segir rannsóknir sýna að glæpagengi sækist sérstaklega eftir viðkvæmum hópum. „Í sænskum rannsóknum hafa sérfræðingar í afbrotafræði og félagsfræði bent á að glæpagengi sæki sérstaklega í ungmenni sem búa í vanræktum hverfum í jaðarsettum samfélögum sem treysta síður hinu opinbera og stofnunum þess. Glæpahópar nýta sér einstaklinga í félagslega veikri stöðu.“

Að hennar mati er lykilatriði að bjóða ungu fólki raunverulega valkosti. „Ef við viljum koma í veg fyrir þessa þróun þurfum við að tryggja að ungt fólk eigi raunverulega valkosti. Við gerum þetta með því að byggja upp samfélag þar sem þau finna til öryggis, samfélag sem þau tilheyra og finna tilgang í að taka þátt í.“

Halldóra gagnrýnir jafnframt bannstefnu í fíkniefnamálum harðlega og segir hana ýta undir skipulagða glæpastarfsemi. „Refsi- og bannstefnan í fíkniefnamálum eflir skipulagða glæpastarfsemi og stuðlar að gengjamyndun. Með því að setja vímuefnamarkaðinn algjörlega utan laganna, gefur ríkið glæpagengjum einokun á þessum arðbæra markaði.“

Hún bætir við að slík stefna hafi víðtækar neikvæðar afleiðingar. „Sala á vímuefnum færir gríðarlegt fjármagn í hendur hættulegra glæpamanna sem nota gróðann til að fjármagna aðra glæpi. Stríðið gegn vímuefnum ýtir beinlínis undir ofbeldi, ójöfnuð og fleiri samfélagsvandamál.“

Að lokum segir Halldóra að Ísland ætti að draga lærdóm af stöðunni í Svíþjóð. „Það væri gæfuspor fyrir okkur Íslendinga að læra af mistökum Svía og segja skilið við þessa skaðlegu stefnu. Að heyja áfram þetta tapaða stríð gegn vímuefnum kostar okkur háar upphæðir sem hægt væri að beina frekar í að efla félagslega stöðu og andlega heilsu ungs fólks. Og leggja þannig grunninn að öruggara samfélagi til framtíðar.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Steingrímur Ari Arason er látinn
Minning

Steingrímur Ari Arason er látinn

Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu auglýst laust til umsóknar
Innlent

Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu auglýst laust til umsóknar

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“
Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“

Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl
Innlent

Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl

Mollý nú löglegt á Íslandi
Innlent

Mollý nú löglegt á Íslandi

Ofbeldisfullur lögreglumaður rekinn eftir rannsókn
Myndband
Heimur

Ofbeldisfullur lögreglumaður rekinn eftir rannsókn

Paola Márquez látin aðeins 30 ára gömul
Heimur

Paola Márquez látin aðeins 30 ára gömul

Hundar halda áfram að bíta fólk í Reykjavík
Innlent

Hundar halda áfram að bíta fólk í Reykjavík

Bjarndýr réðst á fólk inn í verksmiðju
Heimur

Bjarndýr réðst á fólk inn í verksmiðju

Innkalla hættulegar bílstólafestingar
Innlent

Innkalla hættulegar bílstólafestingar

Útlendingar mættu ekki fyrir dóm
Innlent

Útlendingar mættu ekki fyrir dóm

Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“
Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“

Brynjar Níelsson opnar sig um eigin vinnumáta
„Ég tel að þessar breytingar verði til hagsbóta fyrir lögreglu“
Pólitík

„Ég tel að þessar breytingar verði til hagsbóta fyrir lögreglu“

Inga farin í veikindaleyfi
Pólitík

Inga farin í veikindaleyfi

Kamilla gagnrýnir niðurskurð á Þjóðarbókhlöðunni
Pólitík

Kamilla gagnrýnir niðurskurð á Þjóðarbókhlöðunni

Segir Morgunblaðið vera „málgagn hins neikvæða nöldurs”
Pólitík

Segir Morgunblaðið vera „málgagn hins neikvæða nöldurs”

Gylfi Ólafsson nýr bæjarstjóri Ísafjarðar
Pólitík

Gylfi Ólafsson nýr bæjarstjóri Ísafjarðar

Loka auglýsingu