Vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð á sérhæð í steinuðu húsi í Vatnsendahverfi er nú komin á sölu.
Það eru þau Fannar Þór Arnarsson og Anita Brá Ingvarsdóttir sem selja hana en Fannar er framkvæmdastjóri KIWI og Anita Brá leiðir markaðsmál og þjónustuupplifun hjá Advania.
Um er að ræða 128,6 fermetra eign með sérinngangi á jarðhæð, sér bílastæði og rúmgóðri timburverönd sem snýr til suðurs.
Íbúðin er sögð björt og vel nýtt, með flæðandi parketi á meginrýmum en flísalögðum gólfum í forstofu, baðherbergi og þvottahúsi. Úr borðstofu er útgengt á stóra, afgirtan pall þar sem einnig er að finna útigeymslu. Af veröndinni er víðsýnt yfir Elliðavatn og til fjalla, þar á meðal Bláfjalla og Hellisheiðar.
Staðsetning eignarinnar er talin mjög góð, en Vatnsendaskóli er í næsta nágrenni og fjölbreytt þjónusta í Ögurhvarfi í stuttri fjarlægð, svo sem matvöruverslun, heilsurækt, bakarí og afþreying.
Söluverð eignarinnar er 104.900.000 krónur.


Komment