Kvenkyns ferðamaður berst nú fyrir lífi sínu eftir alvarlegt slys í sundlaug á hóteli í Costa Adeje á Tenerife síðdegis á laugardag, samkvæmt upplýsingum frá spænskum yfirvöldum en greint er frá málinu í þarlendum fjölmiðlum.
Tilkynning um atvikið barst um klukkan 13:30 þegar sundlaugavörður á hótelinu dró konuna upp úr lauginni og kallaði eftir aðstoð heilbrigðisstarfsfólks. Áður en viðbragðsaðilar komu á vettvang fékk sundlaugavörðurinn leiðbeiningar í gegnum síma frá neyðarlínunni þar til sjúkraflutningamenn komu á staðinn. Við komu sjúkraflutningsmanna kom í ljós að konan sýndi alvarleg einkenni drukknunar. Hún var í kjölfarið flutt með hraði á sjúkrahús til frekari meðferðar.
Lögreglan aðstoðaði viðbragðsaðila og tók skýrslu af fólki vegna rannsóknar á slysinu.
Engar frekari upplýsingar hafa verið gefnar upp um ástand konunnar né hver hún er.


Komment