1
Heimur

Flugvél á leið frá Tenerife sneri við eftir hópslagsmál um borð

2
Heimur

Orrustuþota hrapaði skammt frá Moskvu

3
Innlent

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík

4
Fólk

Anna Marsý trúlofuð en týndi hringnum

5
Heimur

Dómari skipar Trump að afhenda gögn

6
Heimur

Dánarorsök Kaylee Hottle staðfest eftir banaslys

7
Heimur

Gagnrýnendur hrósa nýrri þáttaröð Klovn

8
Heimur

Karlmenn flykkjast í háreyðingu eftir að stuttbuxur voru leyfðar í vinnunni

9
Heimur

U16 landsliðsmenn Englendinga lentu í slagsmálum

10
Heimur

Kona ákærð fyrir morð á breskri fjögurra barna móður í Frakklandi

Til baka

„Íslendingar eru þrælar, tjóðraðir með krónufjötrum við staura“

Kristinn Hrafnsson gagnrýnir gróða bankanna harðlega

Króna
Íslenska krónanKristinn er ekki hrifinn af ofurgróða bankanna
Mynd: Shutterstock

Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, gagnrýnir harðlega mikinn hagnað íslensku bankanna og segir almenning bera kostnaðinn af því í gegnum háa vexti og krónukerfið. Í Facebook-færslu sem hann birti nýverið setur hann spurningarmerki við það að ríkið og bankamenn telji eðlilegt að bankarnir skili um hundrað milljörðum króna í hagnað.

„100 milljarða króna gróði íslensku bankana er bara í fínu lagi að mati ríkistjórnarinnar,“ skrifar Kristinn og bendir á að bankamenn hafi varið hagnaðinn með því að vísa til arðsemi eigin fjár, svokallaðs RoE. „Ég sé einnig að einhverjir bankamenn fullyrða að þetta sé ekki mikið því þetta sé álíka hlutfall gróðaskila til eigenda og tíðkist í Evrópu (RoE). En jafnvel þar eru íslensku bankarnir hærri en víðast í Evrópu.“

Kristinn segir að þessi samanburður einblíni fyrst og fremst á hagsmuni eigenda bankanna.

„Þarna er einblínt á hagsmuni eigenda. Ef samanburðurinn á að vera á forsendum viðskiptavina er eðlilegra að nota mælistikuna hvað gróðinn er hátt hlutfall af „eignum“ bankans (RoA).“ Hann útskýrir að þessar eignir séu í raun skuldir almennings. „Þær „eignir“ eru að langstærstum hluta húsnæðislánin þín, önnur lán til einkaaðila, lán til fyrirtækja – líklegast eru þetta 60–80% af eignasafni. Eignir bankana eru sum sé skuldir landsmanna.“

Í færslunni ber Kristinn saman arðsemi eigna íslenskra og evrópskra banka og segir muninn sláandi. „Hreinn gróði sem hluti af eignasafni (RoA) er á bilinu 0,4%–0,8% í stórum evrópskum bönkum. Stóru viðskiptabankarnir þrír á Íslandi eru með þetta hlutfall 1,5–1,9%, eftir að gróði liðins árs var gerður upp.“ Hann birtir jafnframt tölulegan samanburð sem sýnir að hlutfallið sé mun hærra hér á landi.

Af þessu dregur Kristinn þá ályktun að hagnaður bankanna ætti að vera mun lægri ef miðað væri við Evrópu. „Útfrá þessum forsendum mætti álykta að „heilbrigður“ heildarhagnaður bankanna á Íslandi ætti að vera 25–50 milljarðar króna, miðað við evrópskan samanburð.“ Hann segir þetta þýða að almenningur borgi aukalega fyrir íslenska gjaldmiðilinn. „Það þýðir þá væntanlega, ef litið er til peningasjoppana eingöngu, eru Íslendingar að borga 50–75 milljarða aukalega á ári fyrir að hafa krónu.“

Í lok færslunnar notar Kristinn myndrænt og harkalegt orðalag til að lýsa stöðu almennings gagnvart bankakerfinu. „Íslendingar eru þrælar, tjóðraðir með krónufjötrum við staura og vextirnir eru blóðug hnútasvipa sem ristir upp holdið á bökum þeirra.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Halla Tómasdóttir heimsækir Landsmót skáta
Myndir
Landið

Halla Tómasdóttir heimsækir Landsmót skáta

Nyrsta skátamiðstöð í heimi iðar af lífi
Utanríkisráðuneytið forðast efnisleg svör um fund Marco Rubio
Pólitík

Utanríkisráðuneytið forðast efnisleg svör um fund Marco Rubio

Flugvél rann út af flugbraut í úrhellisrigningu
Myndband
Heimur

Flugvél rann út af flugbraut í úrhellisrigningu

Daði og fjölskylda á ferð um landið
Myndband
Fólk

Daði og fjölskylda á ferð um landið

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga
Innlent

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni
Myndir
Innlent

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni

Netárás lamaði heimasíður fjölmargra aðila á Austurlandi
Landið

Netárás lamaði heimasíður fjölmargra aðila á Austurlandi

Fjórir Palestínumenn og ólöglegur landnemi létust í blóðugum átökum á Vesturbakkanum
Heimur

Fjórir Palestínumenn og ólöglegur landnemi létust í blóðugum átökum á Vesturbakkanum

Íslandsmótið í sjósundi 2026
Myndband
Sport

Íslandsmótið í sjósundi 2026

Móðir Ben Needham hafnar kenningu lögreglu
Heimur

Móðir Ben Needham hafnar kenningu lögreglu

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík
Innlent

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík

U16 landsliðsmenn Englendinga lentu í slagsmálum
Myndband
Heimur

U16 landsliðsmenn Englendinga lentu í slagsmálum

Peningar

Nýtt fyrirtæki Guðmundar í Brimi greiðir yfir milljarð í arð
Peningar

Nýtt fyrirtæki Guðmundar í Brimi greiðir yfir milljarð í arð

Metár og eigendaskipti hjá Þórsnesi í Stykkishólmi
Lilja Dögg og Gylfi Þór á eftirsóttum lista
Peningar

Lilja Dögg og Gylfi Þór á eftirsóttum lista

Engar eignir fundust í þrotabúi Pizza 67
Peningar

Engar eignir fundust í þrotabúi Pizza 67

Brauð & Co komið í hendur stórfyrirtækis
Peningar

Brauð & Co komið í hendur stórfyrirtækis

Móðurfélag Ölgerðarinnar hagnaðist gríðarlega
Peningar

Móðurfélag Ölgerðarinnar hagnaðist gríðarlega

Bullandi hagnaður hjá Nóa Siríus
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Nóa Siríus

Loka auglýsingu