1
Minning

Páll Halldór Jónsson er látinn

2
Pólitík

Jóhann Páll fer í tímabundið leyfi

3
Pólitík

Kallar Guðrúnu „raðljúgandi valdafíkil“

4
Fólk

Klassískt einbýli á frábærum stað til sölu

5
Innlent

Hrakmenni frömdu skemmdarverk

6
Heimur

Úlfur réðst á konu í verslunargötu í Hamborg

7
Heimur

Óvæntar vendingar í morðmáli Charlie Kirk

8
Pólitík

Eiríkur segir Guðrúnu hafa farið með „vísvitandi lygi“

9
Innlent

Aðstandandi meints fórnarlambs Skúla Tómasar tjáir sig

10
Heimur

Flugsamgöngur til Tenerife í slæmu standi vegna verkfalla

Til baka

Eiríkur flúði skotárás í fjallahéraði í Mexíkó

„Var í samfelldu kvíðakasti fyrstu dagana”

Eiríkur Viljar
Eiríkur ViljarFerðaðist um Ameríku á mótorhjóli í þrettán mánuði.
Mynd: YouTube-skjáskot

Eiríkur Viljar Hallgrímsson segist hafa fengið kvíðakast fyrstu dagana á 13 mánaða ferðalagi sínu á mótorhjóli yfir alla Ameríku. Eiríkur, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar, segist breyttur eftir ferðina, þar sem hann meðal annars þurfti að flýja skotárás í Mexíkó:

„Ég var búinn að ákveða að þefa uppi aðeins erfiðari leið, til þess að vera sem mest úr alfaraleið. Ég hef líklega bara verið um 5% af tímanum í Bandaríkjunum á malbiki. Ég hélt að ég væri mjög vel undirbúinn og var búinn að sjá þetta allt vel fyrir mér. En ég komst fljótt að því að ég hafði ekki hugsað hlutina nógu vel og ég held að ég hafi aldrei verið jafn nálægt því á ævinni að fá taugaáfall eins og fyrstu dagana í þessari ferð. Ég var búinn að plana þetta svo lengi, en svo þegar ég var kominn í aðstæðurnar varð þetta bara yfirþyrmandi og stórt og allt virkaði erfitt. Ég átti að vera að upplifa drauminn, en fannst þetta bara allt glatað fyrstu dagana. Ég fékk eiginlega bara kvíðakast í fyrsta sinn á ævinni. Þetta virkaði allt í einu allt saman heimskulegt, stórt og óviðráðanlegt. Ef ég hefði fengið einhvers konar „way out” þarna, þá hefði ég örugglega bara tekið því og farið aftur heim,” segir Eiríkur, sem segir að eftir að hann hafi heyrt í vinum sínum og fjölskyldu hafi hann náð að endurstilla á sér hausinn:

„Eftir að hafa rætt almennilega við vini og fjölskyldu náði ég að skipta um takt og hætta að stressa mig svona mikið á að halda fullkomlega plani. Ferðalagið byrjaði eiginlega fyrir alvöru eftir að ég sleppti tökunum og náði að slaka á og hætta að ofhugsa. Það tók smá tíma, en smátt og smátt fór ég að leyfa þessu að vera í flæði og hætta að reyna að stýra útkomunni of mikið.”

Tjaldað í Bandaríkjunum

Eiríkur gisti mest í tjaldi þegar hann var á ferðalaginu yfir Bandaríkin. Hann segir að það hafi verið skrýtið þegar hann sá fyrst skilti þar sem stóð að eigandi landsins ætti byssu og skóflu:

„Ég reyndi alltaf að finna næturstað sem var fyrir utan alfaraleið og helst við á eða vatn. Oft var þetta „private property” og maður hefur heyrt sögur af Bandaríkjunum og að það sé ekki vel séð að vera að vafra á landareignum óboðinn. Ég man eftir því þegar ég vaknaði einn morguninn eftir að hafa fundið mér gististað eftir myrkur í skógi í Vestur- Virginíu. Morguninn eftir þegar ég fór í göngutúr um svæðið áttaði ég mig á því að ég var ekki jafnmikið úr alfaraleið og ég hélt. Það voru skilti með reglulegu millibili sem gáfu til kynna að óviðkomandi aðgangur væri stranglega bannaður. Ég áttaði mig á því að ég ætti líklega að drífa mig í burtu þegar ég sá fyrstu skiltin sem stóð á: „I have a gun and a shovel.“. Ég áttaði mig ekki alveg strax á því hvað ætti væri við með skóflunni, en um leið og ég fattaði það dreif ég mig í burtu!”

Guð sprengdi dekkið

Eiríkur segist hafa kynnst Bandaríkjunum á algjörlega nýjan hátt með því að hjóla í gegnum allt landið og velja fáfarna vegi:

„Það fyrsta sem ég fattaði var hvað Bandaríkin eru stór. Það er allt stórt í Bandaríkjunum. Þegar maður er svo kominn niður í Biblíubeltið fer maður að sjá hluti sem eru bara eins og beint úr bíómyndum. Bæði fólkið, stemmningin og umhverfið,” segir Eiríkur, sem fer í þættinum yfir eitt eftirminnilegasta kvöldið á þessum slóðum:

„Það sprakk dekk á hjólinu mínu í Mississippi, rétt hjá stórum búgarði. Það var að koma myrkur og því ekkert annað að gera en að banka upp á hjá fólkinu á búgarðinum og biðja um ljós til að geta skipt um dekk. En það endaði með því að ég borðaði hjá þeim og gisti yfir nóttina. Í kvöldmatinn var þvottabjarnakjöt, sem þau sögðu að væri eftir „roadkill”. Hvort sem það er satt eða ekki var sest niður og haldist í hendur og farið með borðbæn fyrir matinn og ég fékk alvöru „Southern hospitality”. Gisti þarna yfir nóttina og var með þeim allan næsta dag og fékk sýn inn í lífið þeirra. Þau vildu meina að það hefði verið ætlun guðs að sprengja dekkið á hjólinu mínu og að það væri ekki tilviljun að ég hefði bankað upp á og sögðust ætla að biðja fyrir mér og ferðalaginu mínu þegar ég kvaddi þau og þau eru enn í sambandi við mig.

Lífshætta í Mexíkó

Í Mexíkó lenti Eiríkur í atviki sem hann segir vera eina skipti á ölllu þessu langa ferðalagi þar sem hann raunverulega varð hræddur um líf sitt:

„Ég hafði verið á flakki með öðrum strák sem var líka að ferðast um á mótorhjóli og við höfðum verið að kanna alls konar svæði í Mexíkó og vorum kannski orðnir full öruggir með okkur, þó að við vissum að það væru þarna svæði sem hefði kannski verið sniðugast að láta eiga sig. En þarna vorum við í Sierra Gorda fjallahéraðinu eftir myrkur og vorum að gera okkur klára fyrir að gista í tjaldi yfir nóttina. Það var komið algjört niðamyrkur en allt í einu sjáum við höfuðljós í fjarska og áttuðum okkur á því að það væri best að stoppa öll hljóð og slökkva á ljósunum okkar. En þá höfðu þessir aðilar þegar séð okkur og áður en við vissum af var byrjað að skjóta úr byssum allt í kringum okkur. Ég hef sjaldan orðið jafnhræddur og adrenalínið skaust út í líkamann. Við hentum því sem við gátum af dótinu okkar á hjólin og brunuðum af stað. En af því að það var niðamyrkur var erfitt að rata og ég held að ég hafi dottið fimm sinnum af mótorhjólinu á leiðinni upp á aðalveginn,” segir Eiríkur, sem segir að ef þessir aðilar hefðu viljað drepa þá félagana hefðu þeir líklega gert það.

Eiríkur hafði áður heyrt af því að einstaklingar á vegum glæpagengja eiga reglulega leið um svæðið, í þeim erindum að smygla fíkniefnum á milli Mexíkó og Bandaríkjanna.

„Við vissum af því að það gætu verið menn úr glæpagengjum þarna sem eru að vinna með og smygla fíkniefnum. Þegar við fórum að skoða þetta betur daginn eftir komumst við að því að þetta hafa líklega verið viðvörunarskot til að fæla okkur í burtu. Það var verið að láta okkur vita að við mættum ekki tjalda þarna. En það að láta skjóta úr byssum allt í kringum sig er lífsreynsla sem ég held að flestir vilji sleppa við að upplifa.”

Ástríða

Ferðalög eru ástríða hjá Eiríki og hann á og rekur Two Wheels Travel, sem er ferðaskrifstofa sem sérhæfir sig í mótorhjóla- og reiðhjólaferðum. Hann segir þetta ferðalag hafa verið ótrúlega lífsreynslu sem hafi breytt sér og að mörgu leyti mótað sig á nýjan hátt:

„Ég veit enn betur núna að ég get verið öflugur í krefjandi aðstæðum og kann að eiga við alls kyns aðstæður. Það er ekki margt sem kemur mér úr jafnvægi eftir að hafa farið í gegnum alls konar aðstæður og tilfinningar og ég horfi öðrum augum á hversdagslífið hérna heima og er þakklátur fyrir það sem ég hef. Maður á ekki að vera að pirra sig á ómerkilegum og smávægilegum hlutum. Ég sé mig sem algjöran forréttindapésa að hafa fæðst á Íslandi og hafa fengið tækifæri til að gera allt það sem ég hef gert.”

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Katrín fer til Úganda en Bergdís til Kína
Innlent

Katrín fer til Úganda en Bergdís til Kína

Lögmaður leiðir Miðflokkinn í Hafnarfirði
Pólitík

Lögmaður leiðir Miðflokkinn í Hafnarfirði

Alexander Skarsgård mætir á sérsýningu í Bíó Paradís í dag
Menning

Alexander Skarsgård mætir á sérsýningu í Bíó Paradís í dag

Sirrý gerð að deildarstjóra
Fólk

Sirrý gerð að deildarstjóra

Gunnar Smári hugar að krossfestingu
Fólk

Gunnar Smári hugar að krossfestingu

Fannar og Anita Brá selja í Kópavogi
Myndir
Fólk

Fannar og Anita Brá selja í Kópavogi

Börn Dönu Jóhannsdóttur stíga fram eftir ákæru á hendur Skúla
Innlent

Börn Dönu Jóhannsdóttur stíga fram eftir ákæru á hendur Skúla

Aðstandandi meints fórnarlambs Skúla Tómasar tjáir sig
Innlent

Aðstandandi meints fórnarlambs Skúla Tómasar tjáir sig

Eurovision færir sig til Asíu
Heimur

Eurovision færir sig til Asíu

Karlmaður sagður hafa notað HÍ til að þvætta vændispeninga
Innlent

Karlmaður sagður hafa notað HÍ til að þvætta vændispeninga

Engin tengsl fundust milli ferðamanna og þjófnaðar í Freysnesi
Innlent

Engin tengsl fundust milli ferðamanna og þjófnaðar í Freysnesi

Elías Héðinsson er fallinn frá
Minning

Elías Héðinsson er fallinn frá

Bíll alelda í Árbæjarhverfi
Innlent

Bíll alelda í Árbæjarhverfi

Fólk

Sirrý gerð að deildarstjóra
Fólk

Sirrý gerð að deildarstjóra

„Ég hlakka til að kynnast öllum“
Þórdís Vals fær nýtt starf
Fólk

Þórdís Vals fær nýtt starf

Gunnar Smári hugar að krossfestingu
Fólk

Gunnar Smári hugar að krossfestingu

Fannar og Anita Brá selja í Kópavogi
Myndir
Fólk

Fannar og Anita Brá selja í Kópavogi

Klassískt einbýli á frábærum stað til sölu
Myndir
Fólk

Klassískt einbýli á frábærum stað til sölu

„Við áttum að vera hipparnir sem ætluðu að koma á eilífum friði“
Myndband
Fólk

„Við áttum að vera hipparnir sem ætluðu að koma á eilífum friði“

Loka auglýsingu