Halla Tómasdóttir forseti og maður hennar, Björn Skúlason, tóku í gær á móti Downs-börnum og fulltrúum Félags áhugafólks um Downs-heilkennið á degi sem helgaður er heilkenninu.
Dagsetningin er táknræn og vísar til þess að Downs heilkennið orsakast af aukalitningi í litningapari 21. Markmið dagsins er að vekja jákvæða athygli á einstaklingum með Downs heilkenni og hvetja til virkrar þátttöku þeirra í samfélaginu. Hefð er fyrir því að klæðast mislitum sokkum á þessum degi til að fagna fjölbreytileikanum.
Listamennirnir Arna Dís Ólafsdóttir & Lóaboratorium, fullu nafni Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir, hönnuðu í sameiningu ósamstætt sokkapar í tilefni dagsins, en í ár eru „sokkarnir” prentaðir á bolla, á töskur og á boli. Einnig voru útbúin tattú með sokkunum. Varningurinn er seldur til styrktar Félagi áhugafólks um Downs-heilkennið.
„Hún virðist vera æðisleg sem forseti! Til hamingju Ísland að hafa kosið hana,“ segir kona ein í viðbrögðum við myndunum af Höllu og börnunum.
Komment