
Öll spjótin beinast nú að rektor Háskólans á Bifröst, Margréti Jónsdóttur Njarðvík, sem lét gervigreind gera rannsókn á starfsmönnum skólans eftir nafnlausa ábendingu. Yfirlýsing sem hún sendi til að skýra mál sitt gerði síðan illt verra.

Færri vita að Margrét er ekki sú frægasta í sinni fjölskyldu. Hún er móðir varaformanns Miðflokksins, Snorra Mássonar, sem er enn þekktari fyrir að vera yfirlýsingaglaður. Bróðir hans og sonur Margrétar er Bergþór Másson, en saman mynda þeir hlaðvarpsteymið Skoðanabræður.
Bergþór hefur, eins og Margrét, lagst á altari gervigreindar. Síðasta haust seldi hann íbúð sína og hóf dvöl á leigumarkaði, eftir að hafa spurt gervigreindina ráða.
„Núna með tilkomu gervigreindar get ég reiknað hvað sem er. Ég komst að þeirri niðurstöðu að það væri ekki góð fjárfesting að eiga íbúð,“ sagði hann í viðtali. „Ég setti allt í Bitcoin,“ bætti hann við.
Nú hefur vantrausti verið lýst á Margréti, bitcoin hefur fallið um 40% á hálfu ári, en vók-leiður Miðflokkur Snorra Mássonar flýgur með himinskautum í könnunum, eins og hross sem skeiðar upp regnboga.
Komment