1
Fólk

Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins

2
Innlent

Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal

3
Innlent

Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli

4
Innlent

Magnús tekinn fram yfir fyrrverandi þingmann

5
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

6
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

7
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

8
Peningar

Helgi í Góu verður ríkari

9
Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

10
Heimur

Áratugalöng leit endaði í faðmlagi systkina

Til baka

Brynj­ar gagnrýnir „afneitunarsinna“ og ESB

Hefur þó mestar áhyggjur af viðbitinu á Landspítalanum

Brynjar Níelsson Eiríkur Hauksson Anna Kristjánsdóttir
Brynjar á góðri stunduFacebook-færslur Brynjars vekja oft á tíðum kátínu
Mynd: Facebook/Anna Kristjánsdóttir

Brynj­ar Níelsson, lögmaður og fyrrverandi þingmaður, fer hörðum orðum um svokallaða afneitunarsinna í nýrri Facebook-færslu sinni, þar sem hann beinir sjónum bæði að loftslagsmálum, covid-bólusetningum og Evrópusambandinu. Hann segir slíkt fólk meðal þess hættulegasta í samfélaginu og að það þurfi „að koma böndum á“ það.

Brynj­ar nefnir sérstaklega þá sem efast um að hækkun hitastigs jarðar af mannavöldum sé vísindaleg staðreynd og þá sem telja að „þvingaðar covid bólusetningar hafi verið meira til góðs en skaða.“ Hann bendir jafnframt á að afneitunarsinnar séu ekki nýtt fyrirbæri í sögunni og að þeir hafi „þurft að sæta ofsóknum og slaufunum í gegnum aldirnar,“ jafnvel þótt þeir hafi stundum haft rétt fyrir sér.

Í færslunni segir hann þó að einn hópur afneitunarsinna þurfi ekki að óttast slíkar ofsóknir. Þar eigi við þá sem neiti því „að ESB ríkin hafi lagt mikið á sig við að brjótast til fátæktar með skattahækkunum og íþyngjandi regluverki.“ Hann bætir við að sumir trúi jafnvel „að evran sé sterkur gjaldmiðill og að við fáum undanþágu frá regluverki ESB hvað varðar auðlindir okkar ef við sækjum um aðild.“

Brynj­ar fullyrðir að þetta fólk blási „á staðreyndir án þess að blikna“ og heldur áfram: „en flest þeirra ef ekki öll þjást af loftslagskvíða og hafa farið tíu sinnum í covid bólusetningar.“

Að lokum slær hann léttari tón og segir að hann sjálfur hafi ekki miklar áhyggjur af hvorki ESB, bólusetningum né loftslaginu. „Mestu áhyggjur mínar í augnablikinu eru að Landspítalinn hafi skipt út Smjörva fyrir ítalskt viðbit,“ skrifar Brynj­ar.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Shape sendir frá sér nýtt lag eftir 24 ára hlé
Menning

Shape sendir frá sér nýtt lag eftir 24 ára hlé

„Við erum sennilega eitt af þessum böndum sem trúa því að þau eigi eitthvað eftir ósagt.“
Uppljóstrarinn sem afhjúpaði leyndarmál Manchester City sviptur vitnavernd
Heimur

Uppljóstrarinn sem afhjúpaði leyndarmál Manchester City sviptur vitnavernd

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar
Pólitík

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar

Dularfull innbrot á heimilum finnskra þingmanna
Heimur

Dularfull innbrot á heimilum finnskra þingmanna

Merkúríus gæti verið að skreppa saman hraðar en áður var talið
Heimur

Merkúríus gæti verið að skreppa saman hraðar en áður var talið

Hundruðum leikfanga rigndi yfir knattspyrnuvöll í Tyrklandi
Myndband
Sport

Hundruðum leikfanga rigndi yfir knattspyrnuvöll í Tyrklandi

Stórfurðulegur þjófnaður á Suðurnesjum
Innlent

Stórfurðulegur þjófnaður á Suðurnesjum

Maó leitar að sögum í hversdagsleikanum
Menning

Maó leitar að sögum í hversdagsleikanum

Dansaði samfellt í tæpa 177 klukkustundir
Myndband
Heimur

Dansaði samfellt í tæpa 177 klukkustundir

Foreldrar börðust gegn barnavernd og höfðu betur
Innlent

Foreldrar börðust gegn barnavernd og höfðu betur

Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína
Heimur

Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga
Innlent

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga

Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike
Heimur

Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike

Pólitík

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar
Pólitík

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar

Vísar á bug sölu á Landsvirkjun
Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið
Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar
Pólitík

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu
Pólitík

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“
Pólitík

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“

Loka auglýsingu