1
Peningar

Japis enn og aftur gjaldþrota

2
Innlent

Mollý nú löglegt á Íslandi

3
Minning

Margrét Jónsdóttir er fallin frá

4
Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“

5
Heimur

Paola Márquez látin aðeins 30 ára gömul

6
Innlent

Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl

7
Heimur

Ferðamaður lést á Kanarí

8
Heimur

Matt Brown látinn aðeins 43 ára gamall

9
Fólk

Draumaeinbýli í miðbænum til sölu

10
Innlent

Innkalla hættulegar bílstólafestingar

Til baka

„Stærstu pólitísku svik aldarinnar“

Þingmenn Samfylkingarinnar mættu á hitafund um Fjarðarheiðargöng

Logi Einarsson
Logi EinarssonLogi mætti á hitafundinn í gær
Mynd: Víkingur

Logi Einarsson og Eydís Ásbjörnsdóttir, þingmenn Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi, mættu á fjölmennan opinn fund á Seyðisfirði í gær þar sem mikil óánægja ríkti meðal heimamanna vegna stöðu Fjarðarheiðarganga í nýrri samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar.

Samkvæmt Austurfrétt sóttu yfir 100 manns fundinn í Herðubreið, þrátt fyrir veðurviðvörun og óvissu um færð yfir Fjarðarheiði. Sumir vonuðust til að þingmennirnir fengju að upplifa aðstæður Seyðfirðinga á eigin skinni

„Við vitum öll að þótt heiðin sé skráð opin þá er ekki fyrir hvern sem er að keyra hana, alls ekki fyrir hjartveika – vonandi fáið þið að upplifa það á eftir,“ sagði Björt Sigfinnsdóttir á fundinum en þó nokkur hiti var í heimamönnum á fundinum.

Tilefnið var að í nýrri samgönguáætlun eru Fjarðarheiðargöng ekki lengur í forgangi. Fyrsti ræðumaður fundarins, Þorvaldur Jóhannsson, kallaði breytinguna „stærstu pólitísku svik aldarinnar.“

Logi sagði að breyting á forgangsröðun árið 2023 hefði rofið þá samstöðu sem ríkt hefði um hringtengingu. Göngin saman hefðu „skapað nauðsynlega hringtengingu“ en breytingin hefði orðið til þess að „samstaðan á Austfjörðum um hringtengingu hafi brostið.“

Eydís sagði að mikil vinna hefði farið í að ná sátt um hringtengingu innan sveitarfélaganna og að breytingin sumarið 2023 hefði verið „vond“ og „sett skarð í samfélagið.“

Á fundinum komu fram miklar áhyggjur af áhrifum breytinganna á öryggi og heilbrigðisþjónustu. Eyjólfur Þorkelsson, framkvæmdastjóri lækninga hjá HSA, sagði að með því að hætta við Fjarðarheiðargöng væri „kastað fyrir róða forsendum framþróunar bæði heilbrigðisþjónustu og sveitarfélagsins Múlaþings.“

Sigurveig Gísladóttir, fagstjóri hjúkrunar hjá HSA, sagði

„Við höfum nauman tímaramma til að koma fólki til Akureyrar eða Reykjavíkur. Fjarðagöngin eru tímaramminn sem mun drepa fólk.“

Þingmennirnir sögðust ætla að styðja þá samgönguáætlun sem kæmi frá meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis. „Ég styð þessa samgönguáætlun eins og hún hefur verið lögð fram,“ sagði Logi og lagði áherslu á nauðsyn samstöðu ríkisstjórnarinnar. „Við höfum sjö ára reynslu af því að flokkar leggjast hver fyrir annan. Þá gerist það sama og í gangamálum síðastliðin sjö ár, ekkert!“

Fundinum lauk án þess að sátt næðist og ljóst var að traust heimamanna á fyrirhugaðri forgangsröðun samgönguframkvæmda er lítið.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu auglýst laust til umsóknar
Innlent

Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu auglýst laust til umsóknar

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu fer með stjórn lögregluliðs í stærsta lögregluumdæminu
„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“
Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“

Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl
Innlent

Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl

Mollý nú löglegt á Íslandi
Innlent

Mollý nú löglegt á Íslandi

Ofbeldisfullur lögreglumaður rekinn eftir rannsókn
Myndband
Heimur

Ofbeldisfullur lögreglumaður rekinn eftir rannsókn

Paola Márquez látin aðeins 30 ára gömul
Heimur

Paola Márquez látin aðeins 30 ára gömul

Hundar halda áfram að bíta fólk í Reykjavík
Innlent

Hundar halda áfram að bíta fólk í Reykjavík

Bjarndýr réðst á fólk inn í verksmiðju
Heimur

Bjarndýr réðst á fólk inn í verksmiðju

Innkalla hættulegar bílstólafestingar
Innlent

Innkalla hættulegar bílstólafestingar

Útlendingar mættu ekki fyrir dóm
Innlent

Útlendingar mættu ekki fyrir dóm

Draumaeinbýli í miðbænum til sölu
Myndir
Fólk

Draumaeinbýli í miðbænum til sölu

Landið

Ekið á gangandi vegfaranda
Landið

Ekið á gangandi vegfaranda

Lögreglan leitar að vitnum
Séra Arnaldur blessar Árborg
Landið

Séra Arnaldur blessar Árborg

Dimma fannst á lífi í Rauðavatnsskógi
Landið

Dimma fannst á lífi í Rauðavatnsskógi

Dimma týnd á ný eftir átök við annan hrafn
Landið

Dimma týnd á ný eftir átök við annan hrafn

Æfir fyrir sögulegt sund niður Lagarfljótið
Landið

Æfir fyrir sögulegt sund niður Lagarfljótið

Jim Ratcliff flaug þyrlu á rjúpnaskotsvæði sitt í stað þess að keyra
Landið

Jim Ratcliff flaug þyrlu á rjúpnaskotsvæði sitt í stað þess að keyra

Loka auglýsingu